Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 10.01.2013, Page 6

Fjarðarpósturinn - 10.01.2013, Page 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 10. janúar 2013 Áhugi á CrossFit eykst hratt og stöðvum fjölgar. Í nóvember settu nokkrir Garðbæingar upp nýja crossfitstöð, CrossFit XY að Miðhrauni 2 í Molduhrauninu. Mörgum finnst það vera í Hafn­ arfirði enda tengt við iðnað­ arhverfið í Kaplakrika og svo má ekki gleyma að svæðið tilheyrði Hafnarfirði allt til að Hafn­ arfjarðarbær lét það af hendi í skiptum fyrir Setbergs landið. Nýja stöðin sem var opnuð í nóvember er í glæsilegu 1.000 m² húsnæði þar sem íþróttasalir rúma um 650 m². Aðgangur er að heitum og köldum pottum og að sjálfsögðu almenn baðaðstaða. Nýtt íþróttagólf er í öllum sölum, hátt er til lofts og bjart og öll aðstaða er hin besta. Tvenn hjón eiga stöðina, þau Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir og Guðmundur Þórðarson og Unnar Sveinn Helgason og Helga Hlín Hákonardóttir. Unnar, sem er yfirþjálfari, hefur kennt CrossFit í um þrjú ár og rak m.a. stöð á Akureyri. Hann æfði og keppti handbolta með FH og er keppnismaður í CrossFit og keppti m.a. á heimsleikunum í Los Angeles 2012. Hann segir að markmið með CrossFit æfingum sé að bæta líðan og heilsu, „að styrkja vöðva til að takast á við dagleg störf og bæta lífshæfni almennt,“ segir Unnar og telur það markmið eigi að ríkja í allri líkamsrækt. „Með CrossFit kemst fólk í form fyrir lífið en ekki fyrir spegilinn enda byggir CrossFit á fjölliðamóta hreyfing­ um en ekki einhliða afmörkuðum æfingum,“ segir Unnar. Hann minnir jafnramt á að mikill mun­ ur er á hefðbundnu CrossFit og keppnisíþróttinni CrossFit og allir geti byrjað að æfa CrossFit óháð reynslu eða formi. Svanhildur Nanna er fram­ kvæmda stjóri og þjálfari. Hún æfði fimleika með Björk í 12 ár og kenndi fimleika í 8 ár. Hún er líka keppnismanneskja í Cross­ Fit. Með þeim starfa þaulreyndir íþrótta menn og CrossFit iðk­ endur en það eru Jónas Stefánsson sem var markmaður í hand bolta hjá FH, Haukum og Þór og er keppnismaður í CrossFit, Árni Björn Kristjánsson sem var keppnismaður og þjálf­ ari í tennis og varð Íslandsmeistari í Ólympískum lyftingum 2011 og keppti á heimsleikunum í Cross Fit 2011 og 2012 og Víg­ lundur Helgason (bróðir Unnars) sem lék handbolta með FH og hefur mikla reynslu sem nuddari. Hefst með grunnnámskeiði Allir byrjendur í CrossFit fara fyrst á grunnnámskeið en þar er lögð áhersla á undirstöðuæfingar CrossFit, þjálfun í réttri líkams­ beitingu og bætt þrek. Þegar grunnnámskeiði lýkur er boðið upp á opna tíma þar sem þjálfari leiðbeinir iðkendum, auk þess sem hægt er að mæta í aukatíma milli kl. 10 og 12 virka daga og þeim sem hafa áhuga á að prófa er boðið upp á prufutíma. Unnar segir að almennt sé miðað við að fólk mæti 3­4 sinnum í viku og hægt sé að kaupa 3, 6 og 12 mánaða kort. Nánari upplýsingar má finna á www.crossfitxy.is Ný CrossFit stöð í Molduhrauninu Unnar S. Helgason, einn eigenda CrossFit XY U N bókhald ehf Almenn bókhaldsþjónusta Stofnun félaga Skattframtöl fyrir einstaklinga og fyrirtæki Allt á einum stað UN Bókhald ehf • Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði 568 5730 • unbokhald.is • unbokhald@unbokhald.is Hafnarfjarðarbær og Vega­ gerðin undirrituðu í síðustu viku samn ing um að Vegagerðin greiði helming kostnaðar við gerð ákveðinna hjólreiða­ og göngustíga í Hafnarfirði. Sk. sam komulaginu greiðir vega­ gerðin samtals 31 millj. króna til ársins 2014 og verða gerðir stígar á þessu ári við Bæjarhraun milli Flatahrauns og Hólshraun, við Hvammabraut hjá kirkju­ garðinn og við Risann í Kapla­ krika á þessu ári. Stígar verða gerðir frá Hólshrauni við Fjarð­ ar kaup að Engidal og við Suður­ braut frá Háholti að Byggðabraut árið 2014. Sambærilegir samn­ ingar eru gerðir við nágranna­ sveitar félögin og mun stígagerðin bæta almennar samgöngur hjól­ andi og gangandi á höfuðborgar­ svæðinu. Víða pottur brotinn Öryggi gangandi vegfarenda í Hafnarfirði er víða bágborið, sérstaklega þar sem fara þarf yfir götur. Fjarðarpósturinn hefur nokkrum sinnum bent á ómerktar „gangbrautir“ en það eru staðir sem flestir ætla að séu gang­ brauti r en eru það ekki vegna þess að lögboðnar merk ingar vant ar. Þetta á m.a. við um þver­ anir yfir Fjarðargötuna þar sem tekið eru úr gangstéttarbrún og miðeyju og fólk áætlar að þar sé gangbraut en einnig víða þar sem hraðahindranir eru með sebra­ merkingu líkt og gang brautir en enga gangbrautar merk ingar. Í skýrslu sem Mann vit vann fyrir Vegagerðina og var birt í des­ ember sl. er líka bent á sam bæri­ leg dæmi og bent er á hættur sem því fylgja að merkja gangbraut aðeins með tveimur samhliða línum. Þess má geta að fyrir all nokkrum árum voru sebrabrautir víða fræstar burtu í Hafnarfirði og svona tvær sam hliða línur settar í staðinn en í dag eru þær víðast komnar aftur enda minnk­ aði aðgerðin öryggi veg farenda. Í reglugerð um umferða merki og notkun þeirra segir um merkingu gangbrauta: „Gang­ braut (M13) yfir akbraut skal að jafnaði merkt með hvítum samhliða röndum langsum á vegi. Heimilt er þó að merkja gang braut með tveimur óbrotn­ um línum eða bóluröðum þvert yfir akbrautina. Merkingu þessa má einnig nota þar sem hjól­ reiða stígur eða reiðvegur þverar veg“. Í sömu reglum segir um gang­ brautarmerki: „Merki þetta er notað við gangbraut og skal vera báðum megin akbrautar. Ef eyja er á akbraut má merkið einnig vera þar.“ Reiðhjól og mótorknúin farartæki á gangstéttum Á sínum tíma var veitt heimild fyrir því að hjóla mætti á gang­ stéttum en það var gert þar sem hvergi voru hjólreiðastígar og umferð á götum hafði aukist til muna. Í nágrannalöndum okkar Gangbrautir sem eru ekki gangbrautir Samkomulag um gerð hjólreiða- og göngustíga er bannað að hjóla á gangstéttum að viðurlögðum sektum. Undanfarið hafa bæst við á gangstéttarnar rafdrifin reiðhjól og sk. rafvespur sem ná umtals­ verðum hraða enda virðist vera minnsta mál að taka hraðatak­ mark anir úr sambandi og það gert í miklum mæli. Í sérreglum í umferðalögum fyrir reiðhjól, bifhjól og torfæru­ tæki segir m.a. um reiðhjól: „Heim ilt er að hjóla á gangstétt og gangstíg, enda valdi það ekki gangandi vegfarendum hættu eða óþægindum. Hjólreiðamaður á gangstétt eða gangstíg skal víkja fyrir gangandi vegfarend um.“ Þar segir einnig: „Bifhjóli má eigi aka á gangstétt eða gang­ stíg..“. Í skilgreiningu á léttu bifhjóli segir í lögunum: „Bifhjól sem búið er brunahreyfli sem ekki er yfir 50 rúmsentimetrar að slag­ rúmmáli eða búið rafhreyfli og er eigi hannað til hraðari aksturs en 45 km á klst.“ Í skilgreiningu á reiðhjóli segir jafnframt í lögunum: „a. Ökutæki, sem knúið er áfram með stig­ eða sveifarbúnaði og eigi er eingöngu ætlað til leiks. b. Vélknúinn hjólastóll, sem eigi er hannaður til hraðari aksturs en 15 km á klst. og verður einungis ekið hraðar með verulegri breytingu. c. Lítil vél­ eða raf­ knúin ökutæki, sem hönnuð eru til aksturs á hraða frá 8 km og upp í 25 km á klst. Undir þessa skilgreiningu fellur m.a. vélknúið hlaupahjól sem búið er stigbretti, er á hjólum og með stöng að framan sem á er stýri. Slíkum farartækjum má ekki aka á akbraut.“ Því mætti ætla að það væri ljóst skv. lögunum að ekki sé heimilt að aka sk. rafvespum á gang­ stéttum en Umferðarstofa hefur aðra skoðun á málinu og skil­ grein ir þær sem reiðhjól skv. skil­ greiningu c en ekki sem bif hjól búið rafhreyfli sem eigi er hann að til hraðari aksturs en 45 km/klst. Hér mætti halda að væri gangbraut en allar merkingar vantar. Á Vesturgötunni er tekið úr gangstéttum og miðeyju en engar merkingar. Hér á Strandgötunni er gangbraut sæmileg áberandi en þó vantar skilti á miðeyju skv. reglugerðinni. Hér vantar allar merkingar en gangandi hafa samt á tilfinningu að þarna sé gangbraut. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.