Fjarðarpósturinn - 10.01.2013, Side 12
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 10. janúar 2013
Helstu verkefni heimaþjónustudeildar eru:
Almenn ráðgjöf
Félagsstarf eldri borgara
Félagsleg heimaþjónusta
Ferðaþjónusta fatlaðra og eldri borgara
Leiguíbúðir fyrir eldri borgara
Liðveisla fyrir fatlaða
Mötuneyti aldraðra
Félagsstarf aldraðra
Heimsendur matur. Pantanir í síma 585 5700
Starfsmenn heimaþjónustudeildar eru:
Kolbrún Oddbergsdóttir, félagsráðgjafi, deildarstjóri.
Sér um almenna félagsráðgjöf, ferðaþjónustu, leiguíbúðir og
vistunarmat aldraðra. kolla@hafnarfjordur.is
Sjöfn Guðmundsdóttir, fulltrúi umsjónarmaður félagslegrar
heimaþjónustu. sjofng@hafnarfjordur.is
Hjallabraut 33, mötuneyti og félagsstarf.
Opið virka daga.
Sími í mötuneyti 555 0765
Sími í vinnustofu 555 3283
Hárgreiðslustofa s. 565 3680
Höfn, Sólvangsvegi 1. Mötuneyti og félagsstarf.
Opið virka daga. Sími 565 2392
Leikfimi í Bjarkarhúsinu Sími 565 2311 / 564 0730
Leikfimikort seld í Hraunseli Flatahrauni 3
Heimaþjónustudeild
Félagsþjónustunnar í Hafnarfirði
Strandgötu 33 Sími 585-5700
FJÖRÐUR: Fjarðargötu 13-15, sími 540-9400
SÓLVANGUR; Sólvangsvegi 2-3, sími 550-2600
Vildarkortið 67 +
Fyrir eldri borgara í Hafnarfirði.
Kortið veitir korthöfum:
Ókeypis í sund/vatnsleikfimi.
Ókeypis í söfnin.
Ókeypis þjónustu Bókasafnsins
Ofantaldir hafa gert samkomulag við Hafnarfjarðarbæ um
þjónustu við korthafa.Neyðarlínan 112
Ert þú virkur þátttakandi í félagsstarfinu?
Ef ekki, er þá ekki eitthvað
þar sem þér hentar.
Skoðaðu málið.
Hraunsel er opið alla virka daga frá kl 13:00 og fram til kl 16:30 þá
líkur almennri dagskrá.
Starfsfólk Hraunsels eru Jónína Óskarsdóttir, jonina@hafnar-
fjordur.is, en hún sér um daglegan rekstur félagsheimilisins. Þrif
annast Hólmfríður Kjartansdóttir. Handmennt Jóhanna Björnsdótt-
ir. Gler, Kristín G. Gunnbjörnsdóttir.
FERÐALÖG.
Farnar eru styttri og lengri ferðir sem ferðanefnd sér um. Má þar
nefna ferðir á sögustaði, haustlitaferð og orlofsferð sem tekur yfir
nokkra daga. Einnig sér nefndin um sparidaga á Hótel Örk.
DANSLEIKIR Í HRAUNSELI.
Þar sem fólk skemmtir sér, eru vel sóttir og haldnir að jafnaði á
mánðar fresti.
SPIL
Á vegum spilanefndar er bæði félagsvist á mánudögum og fimmtu-
dögum, bridge á þriðjudögum og föstudögum, bingó á miðviku-
dögum.
Allt mjög vel sótt.
GANGAN.
Gengið er alla mánudaga kl 10.00 Gangan tekur um eina og hálfa
klst. og er fyrir alla (hægfara og hraðfara). Gengið verður frá Hauka-
húsinu á Ásvöllum. Þátttaka hefur ávallt verið sérlega góð.
ÍÞRÓTTIR
Ýmsar íþróttir eru á boðstólum s.s. pílukast, boccia, pútt, leikfimi,
vatnsleikfimi, Qi gong.
Eitthvað fyrir alla.
MENNINGARMÁL
Af og til er boðið upp á ferðir í söfn og leikhús. Auk þess sér menn-
ingarmálanefndin um opið hús tvisvar á ári.
LISTIR
Útskurður í tré fer fram í gamla Lækjarskóla. Glerskurður, mynd-
mennt, saumar og línudans fer fram í Hraunseli. Möguleiki á nám-
skeiðum á fleiri sviðum, þá auglýst sérstaklega.
Gaflarakórinn er fjölmennur og æfir tvisvar í viku. Hann kem-
ur gjarnan og skemmtir gestum við hátíðleg tækifæri. Kórstjóri
Kristjana Þ. Ásgeirsdóttir sími 699 8191.
Eldri borgarar í Hafnarfirði
Bjóðum upp á fjölbreytt og spennandi sjálfboðaliðastörf
fyrir fólk á öllum aldri.
Hafðu samband í síma 565 1222
Hafnarfjarðardeild