Fjarðarpósturinn - 10.01.2013, Qupperneq 15
www.fjardarposturinn.is 15 Fimmtudagur 10. janúar 2013
Nýr dansskóli hefur hafið
starfsemi sína í Hafnarfirði og er
til húsa í íþróttahúsinu við
Strandgötu.
Dansskóli Birnu Björnsdóttur
býður upp á vandað, markvisst
dansnám, og er bæði boðið upp á
byrjenda og framhaldsflokka.
Allir kennarar skólans eru vel
þjálfaðir, með margra ára reynslu
af dansnámi, kennslu og choreo
grafíu. Kenndir eru ýmsir
dansstílar og má þar helst nefna
jazzballet, street jazz, jazzfunk,
söngleikjadans, modern, hip
hop, break og fleira.
Meðal þess sem nemendur
læra má nefna grunntækni, stökk,
hringi, samsettar tækni æfingar
og dansrútínur ásamt ýmsum
dansstílum, en sérstök áhersla er
lög á að kynnast sem flestum
dansstílum. Einnig er unnið
mikið með sviðsframkomu og
leikræna tjáningu, en dans gleði
og skemmtun er höfð í fyrirrúmi.
Birna Björnsdóttir hefur unnið
sem danshöfundur árum saman
og sett upp fjölda sýninga ásamt
því að vera danshöfundur í fjölda
vinsælla söngleikja. Þar má
nefna söngleikina Grease og
Gosa í Borgarleikhúsinu, söng
leikinn Fame í Vetrargarðinum,
barnaleikritið Kalla á þakinu í
Borgarleikhúsinu og uppfærslu
Þjóðleikhússins á Ástin er diskó,
lífið er pönk. Kardimommu
bærinn í Þjóleikhúsinu.
Birna hefur einnig verið
höfund ur dansa og sviðs hreyf
inga fyrir Eurovisonfara Íslend
inga árum saman og hefur unnið
mjög mikið við auglýsinga og
myndbandagerð. Tónlistar
mynd bönd áramótaskaup aug
lýs ingar o.fl. Þá er ótalin vinna
hennar við framleiðslu Lata
bæjar þáttanna, þar sem hún
hefur haft umsjón með dönsum
og sýningum síðustu 10 ára.
Ýmsar nýjungar verða í boði
fyrir Hafnfirðinga og aðra nem
endur skólans á árinu. T.d. verður
danskeppni í Gaflaraleikhúsinu
og dansworkshop. Einnig munu
allir nemendur taka þátt í nem
endasýningum í Borgar leikhús
inu.
Kynning á
hópfim leikum
Á laugardaginn kl. 13.3015
verður Fimleikafélagið Björk
með kynningu á hópfimleikum
hjá félaginu. Að þessu sinni eru
aðallega vonast eftir að fá
stúlkur og pilta á aldrinum
1315 ára til að koma og kynna
sér þessa vinsælu íþrótt. Allir
eru þó vel komn
ir. Þjálfarar og
stjórnarfólk fim
l e i k a d e i l d a r
verða á staðnum.
Berg-Ejvind
Sýningar Kvikmyndasafnsins
hefjast á nýju ári þriðjudaginn
15. janúar kl. 20. Á dagskrá
janú ar og febrúar mánaðar
verður sænska kvik myndin
BergEjvind och hans hustru
eða FjallaEyvindur og kona
hans frá árinu 1918.
Kvikmyndin er byggð á
leikriti Jóhanns Sigurjónssonar,
FjallaEyvindi, þar sem stóru
stef mannlífsins líf og dauði, ást
og fórn, vinátta og afbrýði og
að lokum hatrið eru til umfjöll
unar í átakamikilli ástarsögu
þeirra Eyvindar og Höllu. Þau
neyðast til að segja sig úr lögum
við samfélagið og flýja til fjalla.
Andstætt mannheimum eru
fjöllin þeim hliðholl í fyrstu.
Þau eignast þar dótturina Tótu
og komast vel af. En þar kemur
að náttúran býr þeim örlög, sem
að lokum dregur þau öll til
dauða. Náttúran gaf og náttúran
tók...
Myndin markar þáttaskil í
þróun myndmálsins í alþjóða
sögu kvikmyndanna og kom
Svíþjóð sem kvikmyndalandi á
heimskortið. Náttúruöflin og
hrikalegt landslagið gegndu svo
nýstárlegu hlutverki í myndinni.
Jóhann Sigurjónsson segir frá
því að heimsstyrjöldin fyrri hafi
komið í veg fyrir að myndin
væri tek in á Íslandi. En hann
var mjög ánægður með upp
töku staðina sem Sjöström valdi
í nyrstu héruðum Svíþjóðar og
Lapp lands og bætti við að svip
brigði Eyvindar og Höllu í
mynd inni hefðu komið geði
hans „í heima ástarinnar, í
skugga land þrautanna, út á
hengi flug dauðans, já inn í
friðar faðm hans“.
FjallaEyvindur var frumsýnd
í aðalkvikmyndahúsi Stokk
hólms, Röda Kvarn, á nýársdag
1918 en á Íslandi í Gamla Bíói
á páskum 21. apríl 1919. Hún
gekk til 8. maí eða mun lengur
en algengt var á þeim tíma og
var endursýnd dagana 19. og
20. maí vegna fjölda áskorana.
Alþjóðlegar viðtökur voru
góðar og höfðu Frakkar það á
orði að fyrsti ástardúett kvik
mynd anna hefði litið dagsins
ljós.
Dansskóli Birnu Björns í Hafnarfirði