Fjarðarpósturinn - 10.01.2013, Page 18
18 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 10. janúar 2013
Hafnarfjarðarbær lét í haust
kanna ánægju með þjónustu
Hafnarfjarðar og annarra
stærstu sveitarfélaga landsins
og gera samanburð þar á. Einn ig
var skoðuð þróun frá fyrri
mælingum. Þetta var netkönnun
sem 4787 svöruðu þar af 488
Hafnfirðingar. Svarhlutfall var
61% hjá Hafnfirðingum og
58,5% að meðaltali hjá öllum.
89% voru ánægðir með
Hafnar fjörð sem stað til að búa
á, 7% voru hlutlausir og 4%
voru óánægðir. Er jákvæðnin
yfir meðaltali í öðrum sveitar
félögum.
78% voru ánægðir með
að stöðu til íþróttaiðkunar, 12%
voru hlutlausir og 9% voru
óánægðir. Er ánægjan eins og
meðaltal í öðrum sveitar félög
um.
76% voru ánægð með gæði
umhverfisins í nágrenni við
heimili sitt, 10% voru hlutlaus
og 14% voru óánægð. Er ánægj
an einnig eins og meðal talið.
68% voru ánægð með þjón
ustu leikskólanna, 22% voru
hlutlaus og 11% voru óánægð
og var ánægjan eins og meðal
talið.
61% voru ánægð með þjón
ustu Hafnarfjarðar í heild, bæði
út frá reynslu og áliti, 26% voru
hlutlaus og 12% voru óánægð
og er ánægjan minni en meðal
tal í öðrum sveitarfélögum.
58% voru ánægðir með þjón
ustu grunnskólanna, 29% voru
hlutlausir og 13% voru óánægð
ir og er ánægjan þó nokkuð
undir meðaltali í öðrum sveitar
félögum.
54% voru ánægðir með það
hvernig bærinn sinnir menning
ar málum, 38% voru hlutlausir
og 8% voru óánægðir og var
ánægjan í takt við önnur sveit
arfélög.
47% voru ánægðir með
þjónustu við barnafjölskyldur,
32% voru hlutlausir og 21%
voru óánægðir og er ánægjan þó
nokkuð undir meðaltali í öðr um
sveitarfélögum.
39% voru ánægðir með skipu
lagsmál almennt, 34% voru
hlutlausir og 27% voru óánægð
ir sem er hæsta óánægju hlut
fallið í könnuninni í Hafn ar firði
en jákvæðnin var þá sama og
meðaltalið.
35% vor ánægðir með þjón
ustu við fatlaða í bænum, 47%
voru hlutlausir en 18% voru
óánægðir og var það aðeins
undir meðaltalinu.
Óánægja eykst með
þjónustu
22,8% þykir starfsfólk
bæjarins hafa illa leyst úr erind
um sínum, en árið 2008 var
hlutfallið 11,3%.
Óánægja og ánægja eykst
með skipulagsmál
Þeim sem eru mjög ánægðir
með skipulagsmál fækkar um
meira en helming frá 2008 og
frekar ánægðum fækkar aðeins
en að sama skapi fækkar mjög
óánægðum töluvert á meðan
frekar óánægðir eru næstum
jafnmargir og 2008.
Ánægja barnafjölskyldna
minnkar
Ánægja með þjónustu við
barnafjölskyldur minnkar frá
2008 þegar hún var meiri í
Hafnarfirði en í öðrum
sveitarfélögum yfir í það að
vera þó nokkuð minni núna.
Afstaða eldri borgara
neikvæðari
Ánægja með þjónustu við
eldri borgara minnkar mikið og
óánægjan eykst verulega
Nálægð við fjölskyldu skiptir
mestu
Þegar Hafnfirðingar eru
spurð ir um það hvað mestu máli
skiptir þegar valið er hvar á að
búa er nálægð við fjölskyldu
mikilvægast og mikilvægara en
í öðrum sveitarfélögum. Hins
vegar skipta atvinnumöguleikar
miklu minna máli en í hinum
sveitarfélögunum og mikilvægi
aðgengi að heilbrigðisþjónustu
og möguleikar á framhaldsskóla
minna máli. Fleiri voru ánægðir
með framboð á atvinnu en þeir
sem voru óánægðir en helm
ingur svaraði hvorki né.
Flestir vilja bæta
samgöngumál
15,2% svarenda telja að
mikilvægast sé að bæta sam
göng ur í Hafnarfirði, 13,2%
leikskólamál, 12,2% íþróttir og
tómstundir og 11,5% þjónustu
við börn/barnafólk. Fæsti
nefndu atvinnumál, upplýsinga
flæði, dagvistun, lóða og hús
næðismál, allt undir 3% völdu
þessa flokka.
Þá voru margir sem sögðu að
bæta þyrfti aðhald og sparnað
og að bæta þyrfti samgöngur og
gagnakerfi.
Ánægja minnkar frá 2008
Það vekur athygli að ánægja í
könnuninni allri minnkar meira
í Hafnarfirði en í öðrum sveitar
félögum. Árið 2008 virðist
ánægja hafa verið almennt
meiri í Hafnarfirði en í öðrum
sveitarfélögum en skv. könn
uninni núna hefur dæmið snúist
við í flestum tilfellum.
Capacent Gallup gerði könn
unina sem var netkönnun gerð
15. október til 29. nóvember sl.
Stofnað 1982
Dalshrauni 24 • Sími 555 4855
steinmark@steinmark.is
Reikningar • Nafnspjöld
Umslög • Bæklingar
Fréttabréf
Bréfsefni
Og fleira
Loftnet - netsjónvarp
Viðgerðir og uppsetning á loftnetum,
diskum, síma- og tölvulögnum,
ADSL/ljósleiðurum, flatskjám og
heimabíóum. Húsbílar - hjólhýsi!
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
þjónusta
Kaupi bilaðar gamlar þvottavélar
og þurrkara. Uppl. í s. 772 2049.
Tölvuviðgerðir alla daga, kem á
staðinn, hægstætt verð.
Sími 664 1622 - 587 7291.
Bílaþrif. Kem og sæki.
Alþrif, þvottur, bón og vélarþvottur.
Úrvals efni. Hagstætt verð.
Uppl. í s. 845 2100.
Topptölvur. Allar almennar
tölvuviðgerðir fyrir einstaklinga og
fyrirtæki. Fast verð. Sæki og skila.
topptolvur@gmail.com. s. 848 2627.
tapað - fundið
Gullarmband (ættargripur) tapaðist
3. jan. líklegast á Bæjarhrauni.
Uppl. í s. 863 3999.
Stórt úr fannst á göngustíg í
Norðurbænum í Hafnarfirði um miðja
desember. Uppl. í síma 823 8702
smáauglýsingar
aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s
s ím i 5 6 5 3 0 6 6
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a .
V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . m a x 1 5 0
s l ö g . M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r.
Tapað - f u n d i ð o g fæs t g e f i n s : FR Í TT
R e k s t r a r a ð i l a r :
F á i ð t i l b o ð í r a m m a a u g l ý s i n g a r !
www.fjardarposturinn.is
– bæjarblað Hafnfirðinga!
89% íbúa ánægðir með að búa í Hafnarfirði
Mest óánægja með skipulagsmál – ánægja minnkar meira í Hafnarfirði
Hafnfirðingar una glaðir við sitt að mestu.
Nýjar sýningar í
Hafnarborg
Tvær nýjar sýningar verða opnaðar í
Hafnarborg á laugardaginn kl. 15.
Ný innsetning eftir Björk Viggós-
dóttur, sem ber yfirskriftina
Að dráttar afl – hringlaga hreyfing,
verður opnuð á efri hæð safnsins og
sýning á teikningum eftir Ingólf
Arnarsson í Sverrissal. Báðir hafa
listamennirnir unnið sér sess í
íslensku listalífi; Björk sem ungur og
efnilegur listamaður en Ingólfur sem
einn af frumkvöðlum sam tímalistar á
Íslandi sem á að baki rúmlega þrjátíu
ára áhrifamikinn feril en teikningar
hans einkennast af fíngerðum línum,
nákvæmni og tíma.
Boðið verður upp á samtal við lista-
mennina í tengslum við sýningarnar.
Björk Viggósdóttir ræðir við gesti
um sýninguna Aðdráttarafl –
hringlaga hreyfing fimmtudaginn
17. janúar kl. 20. Ingólfur Arnarsson
ræðir við gesti um sýninguna
Teikningar fimmtudaginn 24. janúar
kl. 20.
Tónleikar í Hafnarborg
Á sunnudaginn kl. 20 verða fyrstu
tónleikar ársins í Hafnarborg þar
sem fram koma Sæunn Þorsteins-
dóttir sellóleikari og Sam Armstrong
píanóleikari. Sæunn og Armstrong
hafa bæði hlotið mikið lof fyrir
heillandi tónlistarflutning, en á tón-
leikunum munu þau leika verk eftir
Beethoven, Brahms, Britten og
Martinu.
menning &
mannlíf
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
F J A R Ð A R
B Ó N
Kaplahrauni 22
www.fjardarbon.is
fjardarbon@fjardarbon.is
sími 565 3232
• Alþrif • Mössun
• Eðal-bónhúðun
• Djúphreinsun • Vélaþvottur
Fjölmennt var á þrettándagleði sem Haukar stóðu að í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ á Ásvöllum
þar sem jólasveinarnir kvöddu áður en þeir héldu heim á leið.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n