Prentarinn - 01.01.1981, Page 3
hefur sta
Nú við þessi áramót tók Félag bókagerðarmanna yfir
starfsemi bókagerðarfélaganna 3ja. Skrifstofa félagsins
er að Hverfisgötu 21 og er síminn 16313 fyrst urn sinn.
Skrifstofan verður staðsett í vesturhluta jarðhæðar
hússins en það húsnæði hefur verið leigt út hingað til.
Stjórn félagsins hefur ráðið eftirtalda nrenn til
starfa: Magnús Einar Sigurðsson í fullt starf, Ólaf
Emilsson í fullt starf. Ómar Harðarson í hálft starf og
Svan Jóhannesson í hálft starf. Stjórn félagsins ákvað
að ekki væri rétt að svo komnu máli að auka starfs-
mannahaldið frá því sem var hjá gömlu félögunum,
tveir menn voru í fullu starfi hjá HÍP. tveir menn í
hálfu starfi hjá GSF og opið á skrifstofu BFÍ tvisvar í
viku og önnuðust formaður og gjaldkeri BFÍ þá vinnu.
Af þessu má vera ljóst að stjórnin vill forðast alla
„yfirbyggingu" og láta tímann og reynsluna skera úr
um það hvort þörf er á meiri starfskrafti.
Það er von stjórnarinnar að skrifstofan verði þess
megnug nú í allra næstu framtíð, að auka og bæta
þjónustuna við félagsmenn á sem flestum sviðum. Hér
skal þess þó getið að ekki fer hjá því að nú í upphafi árs
verður að inna af hendi ýmsa undirbúningsvinnu. í því
sambandi má nefna flutninga og önnur slík atriði, áður
en starfsemin getur komist verulega á skrið.
Meiningin er að koma á all-glöggri starfsskiptingu á
milli starfsmanna félagsins, en enn á eftir að ganga
endanlega frá henni. Ljóst er þó að Ólafur mun alfarið
sjá um fjármálin, það vill segja bókhald, innheimtu og
greiðslur. Hinir þrír starfsmennirnir munu fyrst og
frenrst sjá um félagslega þætti og er eðlilegt að ætla að
þeir muni skipta með sér verkefnum eftir iðnsviðum að
vissu marki. Magnús á HÍP iðnsvið, Svanur á BFÍ
iðnsvið og Ómar á GSF iðnsvið.
Þá má geta þess að meiningin er að auka útgáfu
„Prentarans málgagns FBM“ til muna og ef að sá
draumur rætist er ljóst að veruleg vinna fer í þá starf-
semi, en ritstjóri blaðsins er einn af starfsmönnunum.
r
mmims
'ii'Sn Íí’
X , * . .
Hér á Hverfisgötu 21 verður skrifstofa félagsins til húsa og
síminn er 16313.
Að síðustu vill stjórn félagsins árna félagsmönnum
farsældar á nýju ári og væntir þess að eiga gott samstarf
við þá. Það hefur sjaldan verið meiri ástæða en einmitt
nú á þessu fyrsta ári Félags bókagerðarmanna að
brýna fyrir okkur öllum að sýna stéttarvitund og þol-
gæði, þolgæði vegna þess að ýmislegt getur rekist hvað
á annars horn þann tíma sem það tekur FBM að slíta
barnsskónum. —mes.
Prentarinn málgagn Félags bókageröarmanna • Útgefandi FBM Hverfis-
götu 21 • Ritstjóri Magnús Einar Sigurðsson • Ljóssetning og prentun
Prentsmiöjan ODDI hf • Filmuvinna Korpus hf • Bókbandsvinna Sveina-
bókbandið hf • Letur Times og Vega • Forsíöa er hönnuö af Þórleifi V.
Friörikssyni
PRENTARINN 1.-1/81
3
—’-m ~~ ir —>———i