Prentarinn - 01.01.1981, Side 10

Prentarinn - 01.01.1981, Side 10
3. Rætt um gerð félagsskírteina og spjaldskrár FBM. — Frestað til næsta fundar. 4. Samþykkt að láta prenta bréfsefni til bráðabirgða. 5. Samþykkt að Magnús Einar Sigurðsson og Ólafur Entilsson verði ráðnir í fullt starf hjá félag- inu. Starfskjör þeirra verða þau sömu og var hjá HlP. 6. Samþykkt að halda stjórnarfundi hálfsmánaðarlega og að þeir hefjist kl. 15. Stjórnarmönnum sem ekki eru fastir starfsmenn sé greitt dag- vinnutap á stjórnarfundum. 7. Rætt um húsnæðismál FBM og samastað félagsins i framtíðinni. Samþykkt að segja upp leigjendum á jarðhæð Hverfisgötu 21. Málinu annars frestað. 8. Ráðstefna í Ungverjalandi um vís- inda- og tækniþróun í grafiskum iðnaði. Boð um að senda fulltrúa. Samþykkt að svara boðinu jákvætt. 2. desember1980 1. Sýnd 15 minútna löng óklippt kvikmynd af stofnfundi FBM. Frestað að taka ákvörðun um hvort á að láta fullgera myndina. 2. Samþykkt að ráða Svan Jóhannes- son og Óntar Harðarson í hálfsdags starf hvorn frá 1. janúar. Saniþykkt að kjörin verði þau sömu og hjá öðrum starfsmönnum FBM. 3. Bréf frá félagsmálaráðuneytinu um ástand og horfur í atvinnumál- um bókagerðargreina. Samþykkt að fela starfsmönnum að kanna þetta eins og frekast er kostur og svara bréfinu. 4. Bréf frá GSF um reglur og úthlut- anir úr Menningar- og utanfarar- sjóði GSF. Samþykkt að hafa söniu eindaga hjá honum og Styrktar- tryggingasjóði HÍP. Eindagar verði 1. mars og 1. október 1981. 5. Bréf frá GSF. Bréfið fjallar um ákvörðun stjórnar FBM að af- greiða aðild félagsins að ASÍ fyrir áramót. Formaður gat um and- stöðu við samþykkt stjórnar FBM og var samþykkt að fresta málinu. 6. Erindi frá iðnnema í Ijósmyndun um aðstöðu í sambandi við kaup og kjör. Samþykkt að vísa málinu til Iðnnemasambands íslands. 7. Húsnæðismál. Samþykkt að fela Eggert Sigurðssyni, Ólafi Entilssyni og Geir Þórðarsyni umsjón með sölu á húseign félagsins að Óðins- götu 7. 8. Samþykkt að fela starfsmönnum að útbúa félagsskírteini og taka manntal á verkstæðum strax eftir áramót. 9. Samþykkt að láta kosningu trúnaðarmanna á vinnustöðum fara fram sem fyrst eftir áramót. 10. Samþykkt að fela gjaldkera að ganga frá samskonar skyndilána- fyrirgreiðslu fyrir félagsmenn í AI- þýðubankanum eins og verið hef- ur. 11. Prentarinn. Ákveðið að brot blaðs- ins verði í A4. 12. Félagsgjöld: Samþykkt að þeir sem taka laun eftir sveinatöxtum greiði 25 kr. á viku og aðrir félagsmenn greiði kr. 14 á viku. 15. desember 1980 1. Bréf frá Hjúkrunarheintili aldraðra í Kópavogi varðandi styrk. Vísað til aðalfundar. 2. Bréf frá Föroya prentarafelag, þakkir vegna boðs á stofnfund. 3. Bréf frá NGU vegna trygginga- mála. 4. Bréf nr. 713 frá IGF um ráðstefn- una í Ungverjalandi 12.— 13. maí 1981. 5. Lagðar fram tillögur FBM um könnun á kjörum bókagerðar- manna. Sbr. síðustu kjarasamninga félaganna. Haldinn hefur verið einn fundur með FÍP um málið, og annar með fulltrúa verkalýðs- hreyfingarinnar í Kjararann- sóknarnefnd. 6. Samþykkt að fela starfsmönnum að kanna heppilegt fyrirkomulag síma á skrifstofunni svo og kaup á frí- merkjavél. 7. Trúnaðarmannaráðskosningarnar. Uppástungur bárust um 42 menn í ráðið, 17 nöfn af HÍP iðnsviði. 13 af BFÍ iðnsviði og 12 af GSF iðnsviði. Samþykkt var að tilnefna eftirtalda menn í kjörnefnd til að úrskurða um lögmæti uppástungnanna: Braga Jónsson, Herntann Aðal- steinsson og Sigurð Guðgeirsson. 8. Forntaður gat þess að síðasta tölu- blaði HÍP Prentarans yrði dreift til allra félagsmanna FBM. 9. Samþykkt að fela Helga Magnús- syni endurskoðanda að vera end- urskoðandi FBM. 8. janúar 1981 1. Samþykkt að stjórnarfundir verði vikulega fyrst um sinn á þriðju- dögum kl. 16.00. 2. Samþykktur styrkur úr Sjúkrasjóði til Ingibjargar Leifsdóttur, Blaða- prenti. 3. Samþykktir styrkir úr Utanfarar- og menningarsjóði GSF til þeirra Ragnars Kristjánssonar og Ólafs Steingrimssonar. en umsóknir þeirra bárust GSF fyrir áramót. Styrkurinn er veittur vegna nám- skeiðs hjá Planeta verksmiðjunum í Austur-Þýskalandi. 4. Samþykkt að þeir nemar sem greitt er af til Sjúkrasjóðs njóti skyndi- lánafyrirgreiðslu í Alþýðubank- anunt. 5. Samþykkt fyrirkomulag inntöku- beiðna. hvaða upplýsingar eigi að koma þar fram. Inntökugjald verður kr. 10 og skal mynd af við- komandi fylgja inntökubeiðninni. 6. Eftirtaldir voru kosnir í úthlutun- amefnd atvinnuleysisbóta: Ólafur Emilsson, Svanur Jóhannesson og Ársæll Ellertsson. Undir þessum lið kom fram að þremur félagsmönn- unt hefur verið sagt upp í Skjald- borg á Akureyri og eru þeir kornnir á atvinnuleysisskrá. 7. Samþykkt að reyna að efna til annars bridgenámskeiðs á næst- unni og ákveðið að tala við Stellu Gunnarsdóttur þar að lútandi. 8. Samþykkt að ekki verði gefin út félagsbréf eins og HÍP og GSF gerðu, en þess í stað var ákveðið að reynt yrði að gefa út Prentarann eigi sjaldnar en einu sinni í mánuði 10 PRENTARINN 1.-1.81

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.