Fjarðarpósturinn - 04.04.2013, Blaðsíða 10
10 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 4. apríl 2013
Þann 4. mars sl. var gerð
hagkvæmnigreining á úthlutun
lóða í Skarðshlíð. Þann 13.
mars var greiningin til umræðu
í bæjarstjórn en þá var
Fjarðarpóstinum neitað um að
fá aðgang að skjalinu og borið
við að það væri vinnugagn. Nú
bar svo við þegar Fjarðar
pósturinn ítrekaði beiðni sína
26. mars sl. að hún var send
blaðinu samdægurs!
Greiningin er í sjálfu sér
mjög einföld og ekki skoðuð
hagkvæmni þess að taka hverfið
í notkun í áföngum.
Í fylgiskjali með greiningunni
segir Sigurður Páll Harðarson,
sviðsstjóri umhverfs og fram
kvæmdasviðs Hafnarfjarðar
bæjar að hagkvæmnigreiningin
hafi aðeins náð til íbúðarhluta
Skarðshlíðar. Niðurstaðan var í
stuttu máli sú að til að klára
uppbyggingu Skarðshlíðar þarf
um 2 ma.kr. Tekjur sem kæmu
á móti af gatnagerðar og veitu
gjöldu m væru um 3,4 ma.kr.
mið að við núverandi gjaldskrár.
Mismunur er því jákvæður um
1,4 ma. kr.
Hann tekur fram að kostnað
ar liðir eru hlutfallaðir miðað
við hlutdeild hverfisins í upp
byggingu grunnskóla, leikskóla
og tengingu Ásvallarbrautar við
Kaldárselsveg. Því til viðbótar
sé kostnaður sem fellur til beint
við að klára þá gatnagerð sem
eftir er.
Ekki var í þessari hagkvæmni
greiningu reiknaður sérstaklega
sá rekstrarkostnaður bæjarins
sem hlýst af því að komið er
nýtt fullbyggt hverfi. Benda
má á að á móti þeim kostnaði
koma tekjur s.s. útsvar, fast
eigna gjöld o.s.frv.
Þá fara 90% af lóðargjöldum
til greiðslu erlendra skulda.
húsnæði í boði
Til leigu snyrtilegt ca 85 m²
skrifstofuhúsnæði við Reykja
víkurveg í Hafnarfirði. Laust strax.
Allar uppl. í s. 695 1095 eða
gyda@fastko.is
Höfum til leigu 2 góðar skrifstofur
að Bæjarhrauni 2 með aðgang að
móttökuritara/símasvörun. Hentar
vel einyrkjum sem þurfa að hafa
aðila til að sinna símasvörun, mót
töku gagna og léttum skrifstofu
störfum. Áhugasamir sendið póst á
3skref@3skref.is eða í s. 849 6800.
þjónusta
Kaupi bilaðar gamlar þvottavélar
og þurrkara. Uppl. í s. 772 2049.
Tölvuviðgerðir alla daga, kem á
staðinn, hægstætt verð.
Sími 664 1622 587 7291.
Tölvuaðstoð og viðgerðir
Viðgerðir og kennsla í tölvunotkun.
Apple* & Windows. Kem í
heimahús. Sími 849 6827
hjalp@gudnason.is
Bílaþrif. Kem og sæki.
Alþrif, þvottur, bón og vélarþvottur.
Úrvals efni. Hagstætt verð.
Uppl. í s. 845 2100.
Búslóðaflutningar, píanóflutningar,
allur almennir flutningar. Extra
stór bíll. Matti s. 692 7078.
smáauglýsingar
aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s
s ím i 5 6 5 3 0 6 6
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a .
V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . m a x 1 5 0
s l ö g . M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r.
Tapað - f u n d i ð o g fæs t g e f i n s : FR Í TT
R e k s t r a r a ð i l a r :
F á i ð t i l b o ð í r a m m a a u g l ý s i n g a r !
www.fjardarposturinn.is
– bæjarblað Hafnfirðinga!
Þjóðlífsmyndir í Bæjarbíói
Í aprílmánuði eru á dagskrá
myndirnar Íslandsmynd SÍS og
Stepping Stone between the Old and
the Words. Sýningar eru þriðjudaga
kl. 20 og laugardaga kl. 16.
Tilraun til að beisla ljósið
Í aðalsal Hafnarborgar stendur yfir
sýning 16 listamanna og heilara. Í
Sverrissal er sýning Erlu Stefáns
dóttur, Skynjun mín.
Stofnfundur
hollvinasamtaka Sólvangs
Stofnfundur Holl vina samtaka Sól
vangs verður haldinn á 1. hæð á
Sólvangi þriðjudaginn 9. apríl nk.
kl. 18.
Sendið stuttar tilkynningar á
ritstjorn@fjardarposturinn.is
menning
& mannlíf
Loftnet - netsjónvarp
Viðgerðir og uppsetning á loftnetum,
diskum, síma- og tölvulögnum,
ADSL/ljósleiðurum, flatskjám og
heimabíóum. Húsbílar - hjólhýsi!
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
F A T A B R E Y T I N G A R
& V I Ð G E R Ð I R
OPIÐ 12.30-17.00
Lokað miðvikudaga
Jakobína Kristjánsdóttir
KJÓLAKLÆÐSKERI
Flókagata 3 (Bílskúr)
220 Hafnarfjörður
Sími 84 746 84
Síðan 2001
Hinn árlegi viðburður Bjartra daga, Gakktu í
bæinn, verður föstudagskvöldið 31. maí en þá
hafa listamenn og menningarstofnanir boðið
heim. Einnig hafa verslanir og veitingastaðir í
miðbænum boðið uppá viðburði og/eða tilboð.
Viðburðurinn stendur frá kl. 18 til 22.
Viltu vera með, bjóða heim og/eða standa
fyrir skemmtilegum viðburði? Vill gatan/
hverfið gera eitthvað skemmtilegt?
bjartir dagar vekja athygli á því sem er að
gerast í bænum – láttu vita af þér!
Nánari upplýsingar gefur Ásbjörg Una Björnsdóttir,
asbjorguna@hafnarfjordur.is, s. 585 5776.
gakktu í bæinn á
björtum dögum
Almennt:
Hér að ofan er reynt að leggja á mat að klára uppbyggingu
Skarðshlíðar hvað varðar íbúðarhluta þess. Miðað við þá
aðferðarfræði sem hér er lögð fram er ljóst að tekjur af
gatnagerðargjöldum eru um 1.4 ma.kr. yfir þeim kostnaðarliðum
(utan áfallins kostnaðar), sem þarf að framkvæma.
Hafa ber hinsvegar í huga að kostnaðarliðum vegna grunnskóla,
leikskóla og Ásvallarbrautar er deilt niður á hverfið í takt við
áætlaðan fjölda grunn og leikskólabarna og hlutfallslega
hlutdeild hverfisins í Ásvallarbraut.
Síðan má velta fyrir sér hagkvæmni hverfisins þegar það byrjar
að byggjast. Ef reiknað er með að fjölgun í hverfinu fylgi fjölgun
íbúa í Hafnarfirði koma inn auknar tekjur vegna þeirra. Á móti
hinsvegar kemur aukinn kostnaður vegna þjónustu sem
sveitarfélagið þarf að bæta beint við vegna viðkomandi íbúa s.s.
grunnskóli, leikskóli og viðbót í gatnakerfinu sem kallar á aukinn
rekstrarkostnað o.s.frv.
Heildarkostnaður vegna uppbyggingar Skarðshlíðar:
Upphæð í millj.kr.
Áfallinn kostnaður á verðlagi dagsins í dag:
Gatnagerðarog skipulagskostnaður 1.785.597.402
– Samtals áfallinn kostnaður 1.785.597.402
Kostnaður sem er eftir:
Uppbygging grunnskóla hluti Skarðshlíðar 973.517.550
Uppbygging leikskóla hluti Skarðshlíðar 300.294.427
Ásvallarbraut hluti Skarðshlíðar 187.528.685
Gatnagerðarkostnaður 509.802.876
– Samtals kostnaður sem eftir er 1.971.143.538
– Heildarkostnaður 3.756.740.940
Tekjur af gatnagerðar- og veitugjöldum:
Einbýli 1.471.693.300
Raðhús 921.146.774
Parhús 263.877.765
Fjölbýli 714.842.879
– Samtals 3.371.560.718
Hagkvæmnigreining fékkst loks afhent
Einföld samantekt á kostnaði og tekjum við uppbyggingu Skarðshlíðar
Knattspyrnudómaranámskeið!
Knattspyrnudeild FH í samstarfi við KSÍ mun
halda dómaranámskeið mánudaginn 8. apríl kl. 19.00.
Gefur námskeiðið réttindi til þess að dæma sem „unglingadómari“, en
það er dómgæsla og aðstoðardómgæsla í yngri flokkum í fótbolta.
Talsverð fríðindi fylgja því að hafa þessi réttindi
en handahafar dómaraskírteinis fá frítt inná alla
leiki í Íslandsmóti í öllum deildum. Það er alltaf
mikil þörf fyrir góða knattspyrnudómara og
hverjum þeim áhugamanni um knattspyrnu er hollt
að setja sig í spor dómarans, þekkja
knattspyrnulögin og þær forsendur sem dómarar
byggja ákvarðanir sínar á.
Þess ber að geta að knattspyrnudeild FH fékk á dögunum viðurkenningu
fyrir framlag sitt til dómaramála í yngri flokkunum.
Námskeiðið fer fram í Kaplakrika og er frítt fyrir þátttakendur á
námskeiðið. Vinsamlega sendið skráningu á netfangið steinar@fh.is.
Síðan taka iðkendur krossapróf 15. apríl kl. 19.00 í Kaplakrika.
Steinar Ó. Stephensen dómarastjóri FH
Sölumaður - afgreiðsla
Óskum eftir að ráða sölukonu á heitum
pottum og fylgihlutum ásamt símsvörun.
Umsóknum skal skila á tölvupósti
á info@trefjar.is fyrir 9 apríl 2013
Við Reykjanesvita.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
www.facebook.com/
fjardarposturinn
Ertu búin/n að Líka við?