Fjarðarpósturinn - 04.04.2013, Qupperneq 11
www.fjardarposturinn.is 11 Fimmtudagur 4. apríl 2013
Íþróttir
Handbolti:
Úrslitakeppni kvenna:
4. apríl kl. 18, Vestmannaeyj.
ÍBV FH
4. apríl kl. 19.30, Hlíðarendi
Valur Haukar
6. apríl kl. 13.30, Kaplakriki
FH - ÍBV
6. apríl kl. 16, Ásvellir
Haukar - Valur
8. apríl kl. 18, Vestmannaeyj.
ÍBV FH
8. apríl kl. 19.30, Hlíðarendi
Valur Haukar
Körfubolti úrslit:
Konur:
Grindavík Haukar: 10955
Kaffisetur
Samfylkingarinnar 60+
í Hafnarfirði
Opið hús alla
fimmtudaga kl. 10-12
Strandgötu 43
Líflegar umræður um þjóðmál og
allt á milli himins og jarðar.
Sjáumst.
Samfylkingin.
Sími 414 9900 www.tekkland.istekkland@tekkland.isHoltagarðar AkureyriReykjavíkurvegurBorgartún
.
Samanburður á verðskrá aðalskoðunar bifreiða
undir 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd, skv.
vefsíðum fyrirtækjanna 1. mars 2013
8.945
9.840
9.600
Tékkland
Aðalskoðun
Frumherji
Í samræmi við 2. mgr. 36. greinar skipulagslaga
auglýsir sveitarstjórn eftirfarandi niðurstöðu sína
vegna breytingar á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar.
Erindið var tekið fyrir á fundi Bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar þann 27.02.2013:
Tekin fyrir að nýju tillaga Skipulags- og byggingar-
sviðs að breytingu á aðalskipulaginu hvað varðar
Hringbraut 16 og lóðir kring um St. Jósefsspítala.
Tillagan var samþykkt í auglýsingu skv. 30. og 31.
grein skipulagslaga nr. 123/2010, en við nánari
athugun hefur komið í ljós að engir hagsmunir
skerðast og er því hægt að fara með tillöguna
sem óverulega breytingu á aðalskipulagi sk. 2.
mgr. 36. greinar sömu laga.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að farið
verði með aðalskipulagsbreytinguna sem óveru-
lega skv. 2. mgr. 36. greinar skipulagslaga nr.
123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir
eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
„bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að
farið verði með aðalskipulagsbreytingu fyrir
Suðurbæ Hafnarfjarðar dags. 27.11.12 sem
óverulega skv. 2. mgr. 36. greinar skipulags
laga nr. 123/2010.“
breyting á
aðalSkipulagi
HaFnarFjarðar 20052025
Í Fjarðarpóstinum 27. mars sl.
er mjög góð og þörf hugvekja
um Sólvang eftir Elísabetu
Valgeirsdóttur, sem ég fagna og
vil þakka. Þar kemur fram, að
alger óvissa er um
framtíð Sólvangs, en
stjórnvöld hafa gefið í
skyn, að núver andi
starfsemi Sólvangs
verði lögð niður, þegar
nýtt öldrunarheimil efst
í Vallahverfi kemst í
notkun og vistmenn á
Sólvangi fluttir þangað.
Þegar litið er til þess,
að þetta nýja heimili
mundi aðeins fjölga um 5 þeim
vistrýmum, sem nú eru á
Sólvangi, er nánast ekkert komið
til móts við þá knýjandi þörf í
Hafnarfirði að fjölga verulega
vistrýmum við þá öldruðu og
öryrkja, sem þurfa á hjúkrun að
halda á vistheimilum.
Þar sem enn eru ekki hafnar
framkvæmdir við öldrunar heim
ilið á Völlum, þótt næstum þrjú
ár séu liðin frá fyrstu skóflu
stungu, ætti að mínu mati að
taka til alvarlegrar umhugsunar
að fresta þeim framkvæmdum,
en þess í stað að ráðast sem fyrst
í að hrinda í framkvæmd fyrri
áformum um stækkun Sólvangs
að vestanverðu við húsið.
Til staðar eru teikn
ingar af nýbyggingu
við Sól vang með 40
vist rým um. Augljós
ávinn ingur yrði af slíkri
stækkun Sólvangs að
því er varð ar verulega
fjölgun vistrýma, ákjós
anlega staðsetn ingu,
aðra hag kvæmni og að
halda vörð um sögu og
fram tíð Sólvangs.
Megi sú ógæfa aldrei gerast,
að núverandi starfsemi Sólvangs
verði lögð niður. Því eru Hafn
firðingar hvattir til varnar Sól
vangi og því ómetan lega
hlutverki, sem sú merka stofn un
hefur þjónað í þágu hinna
öldruðu í næstum 60 ár. Tek ég
undir lokaorðin í grein Elísa
betar, að Hafnfirðingar kynni sér
þetta velferðarmál aldr aðra áður
en það verður of seint.
Höfundur er hæstaréttar-
lögmaður og fv. bæjarfulltrúi.
Verjum Sólvang
Árni
Gunnlaugsson
6 sóttu um
starf skólastjóra
Víðistaðaskóla
Sex einstaklingar sóttu um
stöðu skólastjóra Víði staða
skóla, sem auglýst var fyrir
skömmu. Eftirtaldir sóttu um
stöðuna:
Anna Bergsdóttir, skólastjóri
Grunnskóla Grundarfjarðar,
Anna Kristín Guðmundsdóttir,
deildarstjóri í Víðistaðaskóla,
Friðþjófur Helgi Karlsson,
skóla stjóri Smáraskóla,
Hrönn Bergþórsdóttir, starfandi
skólastjóri í Setbergsskóla,
Þorkell Ingimarsson, fv.
skólastjóri,
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir,
f.v. skólastýra.
Hefðbundið ráðningarferli er
nú að fara af stað.
Leikfélag Hafnarfjarðar frum
sýnir á laugardaginn barna og
fjölskylduleikritið Sjóræningja
prinsessuna eftir Ármann Guð
mundsson, einn af meðlimum
Ljótu Hálfvitanna, en hann sem
ur einnig tónlistina ásamt Guð
mundi Svavarssyni. Leikstjóri er
Lárus Vilhjálmsson.
Verkið fjallar á ærslafenginn
hátt um ævintýri barnanna Soffíu
og Matta sem alist hafa upp hjá
gistihúsinu Sporðlausu haf meyj
unni á friðsælli eyju í Suður
höfum allt frá því að Soffía kom
þangað með dularfullum hætti
sem ungabarn. Ólíkt Matta upp
eldisbróður sínum þráir hún að
lenda í ævintýrum og heldur því
statt og stöðugt fram að hún sé
sjóræningjaprinsessa, fóstur for
eldrum sínum til mikillar
ar mæðu. En svo gerist það eitt
óveð urs kvöld að tveir grunsam
legir náungar skjóta upp kollin
um á Sporðlausu hafmeyjunni
og áður en Soffía veit af er hún
komin út á rúmsjó með stór
hættu legum og ótrúlega heimsk
um sjóræningjum á leið til
Milljón maðkaeyju þar sem
mann ætur ráða ríkjum.
Næstu sýningar á verkinu eru
sunnudagana 14., 21. og 28. apríl
kl 14. Panta má miða á midi.is og
í síma 5655900.
Leikritið er sýnt í Gaflara leik
húsinu við Víkingastræti.
Sjóræningjaprinsessan
kemur í Hafnarfjörð
Aron Rafn í Guif
Haukar og Guif í Svíðþjóð
hafa gert samkomlag um félags
skipti Arons Rafns Eðvarðssonar,
markmanns Hauka, eftir yfir
stand andi tímabil. Aron hefur
gert þriggja ára samning við
sænska liðið. Aron tekur með
þessu skref í þá átt sem mark
miðin hafa verið hjá honum og
Hauk um síðustu ár, að Aron
skipi sér í hóp þeirra bestu á
heimsvísu. „Við Haukarnir sjá
um á eftir frábærum Haukastrák
úr okkar herbúðum en munum
stoltir vinna með Aroni áfram á
hans afreksleið, eins og öðrum af
okkar drengjum. Það skarð sem
Aron lætur eftir sig hjá Haukum
verður vandfyllt, en Haukar eru
ekki á flæðiskeri staddir í mark
mannsmálum,“ segir í tilkynn
ingu frá Haukum.