Fréttatíminn - 25.02.2011, Blaðsíða 23
og frek þannig að ég hélt mínu til
streitu. En það voru alltaf vandræði,
afbrýðisemi og slíkt.
Það sem mér fannst merkilegt
var að strax á eftir og á meðan á
nauðguninni stóð vissi ég að þetta
var nauðgun. Þótt í raun og veru hafi
ég lítið vitað um kynferðisofbeldi á
þeim tíma. Ég gerði mér strax grein
fyrir því að þetta væri ekki rétt og ég
yrði að fara. Og ég fór.“
Upplifði hluti sem 15 ára barn
átti ekki að upplifa
Erla var fimmtán ára þegar karl-
maður, sem vann hjá sama fyrir-
tæki og hún, fór að sýna henni mik-
inn áhuga. „Mig minnir að hann hafi
fyrst fengið mig með sér heim til sín
til að taka upp tónlist, sem hann átti,
á spólu. Ég gat aldrei gert mér grein
fyrir því af hverju ég lét tilleiðast. En
hann tældi mig þarna með sér inn í
rúm. Ég var bara unglingur, saklaus
og „naív“. Kannski er maður það allt-
af þegar maður er fimmtán ára. Ég
var mjög hrekklaus.“
Við tók nokkurra mánaða mis-
notkunarsamband. Erla hafði átt
einn kærasta áður en hún lenti í
klónum á þessum manni, sem var
um fimmtán árum eldri en hún.
„Minn fyrsti kærasti var ári eldri
en ég; það samband var voða sak-
laust og krúttlegt. En þarna upplifði
ég hluti sem fimmtán ára krakki á
ekkert að upplifa. Ég vil ekki fara
út í nákvæmar lýsingar, enda man
ég lítið af því sem gerðist í svefnher-
berginu. Hann notaði gjafir og pen-
inga til að tæla mig; var með stans-
lausan fagurgala við mig og keypti
vín fyrir mig og vinkonur mínar. Alls
konar svona. Hann sagði mér frá því
að hann hefði verið hrifinn af mér
frá því ég var tólf ára. Hann lýsti föt-
unum sem ég hafði gengið í og skóla-
töskunni minni. Hann hafði fylgst
með mér frá því ég var barn! Svo sá
hann sér leik á borði þegar ég fór að
vinna á sama vinnustað og hann. Ég
man að kona sem var að vinna með
mér kom einhvern tíma að máli við
mig og varaði mig við honum; sagði
mér að passa mig á þessum manni,
þetta væri ekki góður maður. Þá var
það bara orðið of seint.“
Hafði hann orð á sér fyrir barna-
níð?
„Já, ég fékk það staðfest þegar ég
ræddi við aðra konu sem lenti í hon-
um þegar hún var á leikskólaaldri.
Hann var þekktur fyrir að áreita
börn. Allt í kringum þetta var rugl-
að og sjúkt. Enn þann dag í dag á ég
erfitt með að losna við þessa tilfinn-
ingu: Af hverju í ósköpunum leyfði
ég honum þetta? Hvernig datt mér í
hug að taka þátt í svona? Skömmin
og niðurlægingin er rosaleg. Ég fór
á nokkrum mánuðum úr því að vera
fyrirmyndarunglingur og náms-
maður, hæfileikaríkur og duglegur
krakki, niður í að vera bara ekkert.
Framhald á næstu opnu
ERTU ORKULAUS?
VILTU LIFA LÍFINU LIFANDI?
Tímapantanir í síma 615 4070 //gudrunhelga@talnet.is
Guðrún Helga Rúnarsdóttir
Microscopisti með sérhæfingu í basísku
mataræði aðstoðar þig við að koma Ph
gildi líkamans í lag og fræðir þig um
mikilvægi basískrar næringar.
Það er grundvallaratriði fyrir heilsuna,
að halda sýrustigi líkamanns í jafnvægi
En hvað þýðir að vera súr og afhverju
er betra að vera basískur?
Ertu með hátt eða lágt Ph gildi?
›
›
›
D
es
ig
ns
tu
di
oB
/
/
FI
T
Ég er kliiikkaður
í Cocoa Puffs!
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/
N
AT
5
35
87
0
2/
11