Prentarinn - 10.03.1990, Qupperneq 22
Mannabreytingar hjá
Alþjóðasambandinu
Þann 30. apríl 1990 lætur Alfred
Kaufmann af störfum sem fram-
kvæmdastjóri IGF. Alfred hóf
störf hjá IGF árið 1974 og hefur
því staðið í eldlínunni í fimmtán
ár. Eldlínu einhverra mestu
breytinga sem gengið hafa yfir í
okkar iðngreinum og á þessum
tíma hefur reynt hvað mest á
hvers virði alþjóðasamtök eins
og IGF eru í réttindabaráttu
bókagerðarmanna. Vissulega
greinir menn á um hversu mikið
gildi alþjóðasambönd á borð við
IGF hafa og halda sumir því
fram að einungis sé um mátt-
vana stofnanir að ræða. Stað-
reyndin er þó önnur og ættu allir
að geta viðurkennt það ef þeir
kynna sér málin. Við í FBM vit-
um hvert gildi það hefur haft fyr-
ir okkur þegar okkar deilur hafa
harðnað að vita af og njóta þess
alþjóðlega stuðnings sem IGF
svo sannarlega framkallar við
slíkar kringumstæður.
Við sem höfum setið við
stjórnvöl í FBM vitum jafnframt
hvers mikils virði það er í okkar
störfum að kynnast viðhorfum
og reynslu félaga í öðrum lönd-
um á þeim málþingum sem fyr-
irskrifuð eru í lögum IGF. Alfred
Kaufmann hefur reynst góður
framkvæmdastjóri og hefur unn-
ið sér aðdáun allra þeirra sem
hafa átt samskipti við hann, hið
daglega starf á erfiðum tímum
hefur að mestu mætt á honum
og hann hefur leyst málin af lip-
urð en festu. Félag bókagerðar-
manna þakkar honum vel unnin
störf og skilning á stöðu okkar
litla félags innan alþjóðasamtak-
ana um leið og honum fylgja
kveðjur um ánægjulega framtíð.
Maður kemur í manns stað.
Þann 3. janúar 1990 hóf Robert
William Tomlins störf hjá IGF,
en hann tekur við af Alfred þeg-
ar hann lætur af störfum í apríl.
Bob eins og hann er kallaður
fæddist 12. janúar 1941 og er þvf
tæplega fimmtugur. Hann hefur
verið virkur í störfum enskra
bókagerðarmanna frá því árið
1973 og nýtur þar virðingar sem
áræðinn og stéttvís félagi. Hann
er heldur ekki óþekktur innan
IGF félaga, enda verið virkur á
þingum þess og í nefndum á
þess vegum. Félag bókagerðar-
manna býður Bob velkominn til
starf og óskar honum góðs
gengis í krefjandi starfi. Aðal-
stöðvar IGF hafa hingað til verið
í Bern en nú er verið að flytja
þær til Brussel. Ástæður þess
eru að sjálfsögðu tengdar þeim
breytingum sem nú eiga sér
stað í Evrópu og þeirri stað-
reynd að í Brussel slær „hjarta"
Efnahagsbandalagsins. Ástæða
er til að ætla að starfsemi IGF
verði við flutningana enn mark-
vissari og þjóni betur en áður
aðildarfélögum IGF. Á þessum
sama stað er jafnframt starfsemi
Evrópusambands bókagerðar-
manna, sem starfar innan IGF,
en aðildarfélög IGF eru að sjálf-
sögðu mun fleiri en þau sem
koma frá Evrópu, innan IGF eru
félög frá öllum heimsálfum.
Alfred Kaufmann
Robert William Tomlins
22
PRENTARINN 1.10.'90