Prentarinn - 01.11.2009, Side 9

Prentarinn - 01.11.2009, Side 9
Helstu spurningar og svör um atvinnuleysis- bætur frá VMST L rJ Hversu háar eru atvinnuleys- isbætur? • Grunnatvinnuleysisbætur eru 149.523 kr. á mánuði (miðað við 100% bóta- rétt og 21,67 daga, sem er meðalmán- uður). • Grunnatvinnuleysisbætur eru 6.900 kr. á dag miðað við 100% bótarétt. • Ef þú reiknast með t.d. 85% bótarétt þá færðu 5.865 kr. á dag, sem gera 127.095 kr. á mánuði (miðað við 21,67 daga). • Hámarksfjárhæð tekjutengingar er 242.636 kr. á mánuði. • Tekjutenging er reiknuð út frá 70% af meðallaunum á sex mánaða tímabili sem hefst tveimur mánuðum áður en þú sækir um atvinnuleysisbætur. • Greiðslur vegna barns eru 276 kr. á dag eða 4% af grunnatvinnuleysis- bótum. • Greitt er með hverju barni sem er á framfæri umsækjanda upp að 18 ára aldri. • Ef einstaklingur greiðir meðlag með barni þá fer greiðslan fyrir barnið til Innheimtustofnunar sveitarfélaga sem greiðsla upp í meðlagið. • Greiddar eru atvinnuleysisbætur fyrir alla daga nema laugardaga og sunnu- daga. Á ég rétt á tekjutengingu? • Umsækjandi um atvinnuleysis- bætur getur fengið tekjutengingu einu sinni í upphafi bótatímabils (780 dagar) í allt að þrjá mánuði. • Grunnatvinnuleysisbætur eru greiddar fyrstu 10 virku dagana og svo tekur tekjutengingin við næstu 65 virka daga. • Hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta í hverjum mánuði miðast við tryggingarhlutfall hins tryggða en þær nema þó aldrei hærri fjárhæð en 242.636 kr. á mánuði miðað við óskerta atvinnuleysistrygg- ingu. • Tekjutengdar atvinnuleysisbætur launamanna nema 70% af meðaltali heildarlauna og er miðað við sex mánaða tímabil sem hefst tveimur mánuðum áður en umsækjandi varð atvinnulaus. • Tekjutengdar atvinnuleysisbætur sjálfstætt starfandi einstaklinga eru 70% af meðaltali heildarlauna og skal miða við tekjuárið á undan því ári sem umsækjandi varð atvinnu- laus. • Sá sem sætir biðtíma eftir atvinnu- leysisbótum á ekki rétt á tekju- tengdum atvinnuleysisbótum. Afhverju fæ ég ekki greitt? • Gleymdir þú að staðfesta atvinnuleit milli 20.-25. mánaðarins? • Þeir sem staðfesta frá 26. hvers mánaðar til 3. dags næsta mán- aðar fá greitt fimm virkum dögum eftir fyrstu útborgun. • Þeir sem staðfesta eftir 3. dag mán- aðar fá greitt næstu mánaðamót á eftir. Er búið að afgreiða umsókn- ina þína? • Afgreiðsla umsókna getur tekið mis- langan tíma. Stundum vantar gögn og þá þarf að óska eftir þeim o.s.frv. Ef þau berast ekki fyrir 20. hvers mánaðar þá er ekki öruggt að þú fáir greitt um mánaðamótin þar á eftir. • Sóttir þú um innan greiðslutímabils- ins sem er verið að greiða fyrir núna? • Greiðslutímabil atvinnuleysisbóta er frá 20. hvers mánaðar til 19. næsta mánaðar. • Atvinnuleysisbætur eru alltaf greiddar út fyrsta virka dag mánaðar- ins. • Ef fyrsti dagur mánaðarins er á laug- ardegi þá eru atvinnuleysisbæturnar greiddar út á mánudeginum þar á eftir. Áttir þú ótekið orlof sem þú ráðstafaðir ekki? • Orlof frá fyrra tímabili verður þú að klára áður en þú byrjar á atvinnu- leysisbótum. • Orlofi sem þú hefur áunnið þér á nýju orlofstímabili getur þú ráðstafað á næsta orlofstímabili. • Orlofstímabilið er frá 1. maí til 15. september ár hvert. Orlofsdaga sem þú vinnur þér inn fyrir 1. maí á hverju ári á að nota á næsta orlofs- tímabili (sem hefst þá 1. maí).

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.