Prentarinn - 01.11.2009, Page 19

Prentarinn - 01.11.2009, Page 19
Höfuðborgaráð- stefna í Drobak í september 2009 STEFÁN ÓLAFSSON Norræn samvinna á sér langa sögu og margar hliðar. Félag bókagerðar- manna og forverar þess, Hið íslenzka prentarafélag og Bókbindarafélag íslands, hafa átt mikið og farsælt samstarf við starfsfélaga á Norðurlöndunum öllum frá því snemma á síðustu öld. Ein hliðin á því er Höfuðborgaráðstefna sem haldin er annað hvert ár, þangað streyma fulltrúar félagsdeilda í höfuðborgum hinna Norð- urlandanna og þeir bjóða okkur að senda einn þátttakanda. Gestgjafi að þessu sinni var Grafisk Fagforening í Osló og var ákveðið að stefna gestunum til ákaflega sjarmerandi og suðræns smábæjar 30 km út með Öslóarfirði, hins sögufræga Dro- bak. Öll skipaumferð til og frá Osló fer um þröng sundin framan við bæinn. Þarna er m.a. Oscarsborg, en síðla nætur 9. aprfl 1940 sökktu fallbyssurnar þar þýska her- skipinu Blíicher. A skipinu voru þeir sem áttu að taka við stjórnartaumum í Noregi, meira að segja lúðrasveitin sem átti að fara fyrir marseringunni upp Karl Johann að konungshöllinni. Vaxandi atvinnuleysi Hér sannaðist hið fornkveðna; það er ýmist í ökkla eða eyra. Það gekk eins og rauður þráður í gegnum skýrslur frá öllum höfuðborgunum að atvinnuleysið eykst, smiðjunum fækkar og félagsmönn- unum einnig. Er við funduðum á Islands- bryggju í Kaupmannahöfn haustið 2007 var atvinna með allra mesta móti, þá var rætt um skort á vinnuafli og efnahagslífið var á suðupunkti. Starfsfólki hefur alls staðar fækkað verulega í prentiðnaðinum og mikil óvissa er um atvinnuhorfur í faginu. Auglýs- ingamagnið er enn mest í prentmiðlum og sjónvarpi en auglýsingum í netmiðlunum fjölgar og sú þróun heldur áfram. Eini hluti prentiðnaðarins sem við megum vænta aukningar í er stafræn vinnsla og prentun. Iðnaðurinn líður einnig fyrir það að stóru fjölmiðlafyrirtækin senda gjarna verkþætti í vinnslu annars staðar, fyr- irtæki sérhæfa sig, og þau sameinast á einn eða annan hátt. Efnahagsbólan sprakk haustið 2008 og þó þetta hafi ekki valdið jafnhrikalegu atvinnuleysi og við minnumst frá síð- ustu árum níunda áratugarins, þá er nið- urstaðan samt nöturleg: Efnahagur hefur aldrei hrunið svo gjörsamlega á sama tíma alls staðar í heiminum. Helsingfors Félögin eiga það öll sameiginlegt að hafa sameinast öðrum félögum, þ.e. öll nema við og Finnar. Finnska félagið var, að því er flestir töldu, og þar með taldir Finnar sjálfir, við það að sameinast fimm öðrum stéttarfélögum, m.a. málmiðnaðinum, í kröftugu sambandi. A ögurstundu hljóp pólitíkin í málin og nú rfkir mikil óvissa um framhaldið. Þann 25. apríl voru 140 ár frá því deildin í Helsingfors, Helsingin Kir- jatyöntekijain Yhdistys, var stofnuð. Atvinnuástand og horfur í borginni og Finnlandi öllu eru fljótt sagt hörmulegar. Atvinnuleysi í Helsingfors hefur auk- ist hratt það sem af er ári. í lok júlí voru 27.316 atvinnulausir, eða þriðjungi fleiri en á sama tíma í fyrra. í júlfmán- uði einum fjölgaði atvinnulausum um 8%. Atvinnuleysi 25 ára og yngri jókst um 80% á aðeins einu ári. A höfuðborg- arsvæðinu jókst atvinnuleysi um 40% og í júlílok voru um 65 þúsund manns án atvinnu á svæðinu. Allt bendir til þess að atvinnuleysi verði 15% á komandi ári. Aukið atvinnuleysi unga fólksins segir okkur að þeim sem ljúka námi reynist sífellt erfiðara að fá starf. Astandið er svipað um allt Iand. Stokkhólmur Svíar lærðu sína lexíu þegar bankar þeirra og fjármálafyrirtæki fóru illa fyrir aldarfjórðungi og sluppu því betur núna, en sænska krónan er á fallandi fæti og atvinnuleysið fer dagvaxandi í Svíþjóð. Velferðarkerfið líður fyrir aðgerðir stjórnar- flokkanna, atvinnuleysi hefur t.d. ekki verið meira í Svíþjóð en í Finnlandi í aldar- fjórðung. Sænsk iðnaðarfyrirtæki eru í bullandi vandræðum, sem aftur veldur meira atvinnuleysi. Nýtt félag í Svíþjóð heitir GS - Fac- ket för skogs-, tra- och grafisk hransch og það skiptist í 15 deildir. Ein þeirra er GS Avdelning 9 Östra Svealand sem nær yfir Stokkhólm, Uppsali, Sigtuna, Nynas- hamn, Visby, Klintehamn, og Ljugarn. Félagsmönnum fækkar og atvinnuleysi eykst á höfuðborgarsvæðinu, rótgróin og gömul fyrirtæki eru í lausafjárvandræðum og gjaldþrotum fjölgar, risarnir gleypa það sem þeir koma höndum yfir. Staðan á landsbyggðinni er enn verri því prent- smiðjurnar í Stokkhólmi soga til sín verk- efnin. prentarinn www.fbm.is

x

Prentarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.