Verktækni - 15.10.1996, Side 1

Verktækni - 15.10.1996, Side 1
Álit umboðsmanns Alþingis vegna ráðningar í starf byggingarfulltrúa Eyjafjarðarsvæðisins Samkvæmt gögnum málsins eru helstu málavextir þessir: Hinn 30. apríl 1994 auglýstu byggingarnefndir Eyjafjarðar- svæðis eftir byggingarfulltrúa. í auglýsingunni kom fram, að starfið væri laust frá 1. júní 1994. Hinn 19. maí 1994 sótti Jónas Vigfússon, byggingar- verkfræðingur, um starfið. Alls voru umsækjendur 15. Þeirra á nteðal var X húsasmíðameist- ari, sem var aðstoðarmaður byggingarfulltrúa Eyjafjarðar- svæðis frá 1981 -1991, er þáver- andi byggingarfulltrúi féll frá, og var ráðinn byggingarfulltrúi tímabundið frá 1. maí 1992 til ársloka 1993. Hinn 26. maí 1994 ákvað sameiginlegur fundur bygg- inganefnda Eyjafjarðasvæðis að ráða X í stöðuna. Bókun þess efnis var samþykkt með 6 at- kvæðum gegn 2, en 4 sátu hjá. Tveir þeirra er l'undinn sátu voru náskyldir X, annar þeirra föðurbróðir hans og hinn og X eru systkinaböm. Jónas Vigfússon kærði ákvörðunina til umhverfisráðu- neytis, sem úrskurðaði að hún skyldi standa óbreytt. Af hálfu Jónasar Vigfússon- ar er því haldið fram, að X hafi ekki uppfyllt hæfisskilyrði 1. mgr. 21. gr. byggingarlaga nr. 54/1978, og ekki hafi átt við hann undantekningarákvæði 2. og 4. mgr. sömu greinar. Af þessum sökum telur Jónas, að óheimilt hafi verið að lögum að ráða X í umrædda stöðu. Samkvænt I. mgr. 21. gr. byggingarlaga skal byggingar- fulltrúi vera arkitekt, bygging- arfræðingur, byggingartækni- fræðingur eða byggingarverk- fræðingur. í dreifbýli er heim- ilt að ráða búfræðikandidata úr tæknideild búnaðarháskóla í stöðu byggingarfulltrúa í viss- um undantekningartilfellum. í gögnum málsins kemur fram að X, sem ráðinn var í stöðuna, sé húsasmíðameistari. í málinu er óumdeilt að X, upp- fyllti ekki menntunarskilyrði 1. mgr. 21. gr. laganna, þegar hann var ráðinn. Kemur þá til athugunar hvort undantekning- arákvæði 21. gr. hafi heimilað ráðningu hans í stöðuna. í 2. mgr. 21. gr. byggingar- laga er mælt svo fyrir, að fáist ekki maður í stöðu byggingar- fulltrúa, sem uppfylli skilyrði I. mgr., geti sveitastjóm að fengn- um tillögum byggingarnefndar ráðið húsasmíða- eða múrara- meistara lil starfans, enda hafi hann tveggja ára starfsreynslu, sem byggingamefnd meti gilda. Þar sem um stöðuna sóttu um- sækjendur, sem uppfylltu mennt- unarkröfur 1. mgr. 21. gr. bygg- ingarlaga, gat undantekningará- kvæði 2. mgr. 21. gr. ekki átt við. í 4. mgr. 21. gr. er einnig undanþága frá menntunarskil- yrðum 1. mgr. 21.gr. laganna, en þar segir, að þeir, sem gegni störum byggingarfulltrúa við gildistöku laga þessara, skuli hafa rétt til að gegna starfi sínu áfram, þótt þeir fullnægi ekki skilyrðunt 1. mgr. 21. gr. Byggingarlög nr. 54/1978 öðl- uðust gildi l.janúar 1979. í úrskurði umhverfisráðu- neytisins frá 30. nóvember 1994 kentur fram, að X hafi verið aðstoðarmaður bygging- arfulltrúa og „í reynd margsinn- is gengt starfi byggingarfulltrúa á árunum 1982 til ársloka 1985 ...” Undanþága 4. mgr. 21. gr. tekur því ekki til X þegar af þeirri ástæðu, að hann var ráð- inn aðstoðarmaður byggingar- fulltrúa rúmum tveimur árum eftir að lögin tóku gildi og gengdi því ekki störfum bygg- ingarfulltrúa “ við gildistöku lagana “. ' ;,Eins og ég hef áður vikið að, eru hæfisskilyrði í eðli sín- um lögfest lágmarksskilyrði, sem opinberrir staifsmenn verða að uppfylla til þess að geta fengið starf og haldið því, sbr. álit mitt í máli 382/1991, SUA 1992:151. Þar sem fyrir lá, að X uppfyllti ekki lagaskil- yrði 21. gr. byggingarlaga, þegar tekin var ákvörðun um veitingu stöðu byggingarfulltrúa Eyja- fjarðarsvæðis, var að lögum óheimilt að veita honum stöðuna. Samkvæmt framansögðu er það niðurstaða mín að veruleg- ur annmarki hafi verið á ráðn- ingu byggingarfulllrúa Eyja- fjarðarsvæðis, þar sem í stöð- una var ráðinn maður, sem ekki uppfyllti almenn hæfisskilyrði samkvæmt byggingarlögum. Einnig er aðfinnsluvert, að um- hverfisráðuneytið úrskurðaði ekki í kærumáti Jónasar innan lögboð- ins frests og fjallaði ekki um öll þau atriði sem kærð voru.“ Ofangreint er úrdráttur úr áliti umboðsmanns Alþingis, Gauks Jörundssonar, dags. 10. október '96. Viðbrögð jónasar Vigfússonar Verktækni hafði samband við Jónas Vigfússon verkfræðing og var hann að vonum ánægður með úrskurð umboðsnianns Alþingis. Kvaðst hann bíða eftir viðbrögðum umhvernsráðherra, byggingarnefnda og sveitastjórna í Eyjafirði. Jónas starfar nú sem sveitarstjóri og byggingar- fulltrúi á Kjalarnesi. I ofangreindu kærumáli hafði Jónas aðra túlkun á byggingarlögunum frá 1978 en bygginganefndirnar í Eyjafirði og umhverfisráðuneytið. Þar sem umboðsmaður Alþingis túlkar lögin eins og Jónas gerir, er það mikill stuðningur fyrir Jónas í núverandi startl hans, því hann þarf að vinna eftir þessum lögum. Úrskurður umboðsmanns er hins vegar alvarlegur álitshnekkir fyrir byggingarnefndirnar í Eyjafirði, sem eiga að starfa eftir þessum sömu lögum. Einnig er úrskurðurinn alvarlegt inál fyrir umhverfis- ráðuneytið sem fer með yfirstjórn byggingarmála í landinu. Þess má geta að VFÍ, TFÍ og AÍ mótmæltu ráðningunni bréflega til umhverfisráðuneytis og SV kom Jónasi í samband við lögfræðing félagsins. OPIN KERFI HF HEWLETT® PACKARD Höföabakka 9 112 Reykjavík Sfmi: 567 1000 Fax: 567 3031

x

Verktækni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.