Verktækni - 15.10.1996, Qupperneq 3

Verktækni - 15.10.1996, Qupperneq 3
VERKTÆKNI Bókagjöf til stuðnings rann- sóknum í rafefnaverkfræði Landsbókasafni Íslands-Há- skólabókasafni hafa nýlega borist að gjöf rit á sviði raf- efnaverkfræði, um 1000 bindi, bæði bækur og tímarit. Gjöfin er frá bandarískum manni af ís- lenskum ættum, Dr. Theodore R. Beck, og fyrirtæki hans í Seattle, Electrochemical Technology Corporation, en Theodore hefur látið af störfum fyrir aldurssakir og um leið voru rannsóknarstofur fyrirtæk- isins lagðar niður. I ritagjöf- inni er m.a. Joumal of The Electrochemical Society frá 1937 til þessa dags auk annana tímarita og sígildra bóka á þessu fræðasviði. Doklor Theodore R. Beck tók doktorspróf í efnaverkfræði frá Washington háskóla í Seattle árið 1952 og hefur alla starfsævi sína sinnt verkefnum á sviði rafefnaverkfræði. Hann hefur m.a. starfað fyrir Du Pont, Kaiser Aluminium, Boeing Scientific Research Laboratories og síðustu 20 árin í eigin l'yrirtæki, Electrochemi- cal Technology Corporation. Theodore tengist Islandi sterkum böndum. Móðir hans, sem ættuð er úr Kelduhverfi í Norður Þingeyjarsýslu, lluttist vestur um haf árið 1914 og giftist síðar dönskum manni. Theodore er einkabarn þeirra en móðir hans lést þegar hann var einungis tveggja ára. Theodore kom fyrst til Islands fyrir urn aldarfjórðungi. Hann á hér ntarga kunningja og skyld- menni og hefur lagt sig mjög fram við að grafast fyrir um hin íslensku ættartengsl sín. Það er von Theodores að ritagjöf hans muni koma að gagni við menntun vísinda- manna og verkfræðinga sem starfa á vettvangi stóriðju, en Islendingum er eins og kunnugt er annt unt að laða að starfsemi á því sviði, vegna hagkvæmrar orku sem vatnsafl og jarðhiti í landinu bjóða upp á. Sá ritakostur sem til er hér- lendis á þeirn sviðum vísinda og iðnaðar sem hér er um að ræða er afar rýr og því er Landsbókasafni Islands-Há- skólabókasafni þessi ritagjöf mjög mikilvæg. Kann safnið gefandanum bestu þakkir fyrir, svo og þeim fyrirtækjum sem kostuðu flutning ritanna frá Seattle, íslenska álfélaginu h.f., og Jöklum h.f. Ofangreint var fréttatil- kynning frá Landsbókasafni Is- lands-Háskólabókasafni. Innan við meters nákvæmni hverja sekúndu GPS Pathfinder Pro XL getur verulega flýtt fyrir skráningu og gagnasöfnun Hvort sem þú ert að skrá upplýsingar um t.d. raflínur, vegi, landamerki eða annað þá skiptir meginmáli hversu miklum gögnum hægt er að safna á sem skemmstum tíma og hversu nákvæmum. Nú er hægt að skrá upplýsingar um stað- setningu hluta með innan við meters nákvæmni á augabragði, ásamt því að skrá upplýsingar um ástand og aðgerðarþörf vegna t.d. viðgerða og viðhalds. Allt er þetta gert með sama tækinu, Pathfinder Pro XL frá Trimble Navigation. Pro XL getur unnið bæði í rauntíma og eftirávinnslu. Gögnunum er safnað í minni tækisins og samtímis settar inn upplýsingar um ástand ef óskað er. Hugbúnaður tækisins býður notandanum að setja inn valmyndir að sínum óskum. Þegar komið er til baka úr mælingum, er hægt að yfirfæra gögnin inn á nánast hvaða landupplýsingakerfi sem er og birta þær þar. Ef þörf er á gagnasöfnun eða kortlagningu gagna með meters nákvæmni, þá er Pro XL tækið sem getur aukið afköstin stórlega. Þar sem þegar eru komnar upp nokkrar Trimble leiðréttingastöðvar hérlendis, er hægt að spara sér kaup á hluta búnaðarins og nýta merki frá þeim. þegar eru mörg fyrirtæki og stofnanir hérlendis komnar með Pro XL eða önnur tæki frá Trimble Navigation. Allar uppýsingar og sýningar- tæki á staðnum. □ Trimble ÍSMhR hí. ® ’ Síöumúla37,108 Reykjavlk TT 568 8744, Fax 568 8552 \ iS \ ';Í® Hw bitoísi wbrb& w W': b. # Jjjm Rm " r' m - ' Fulltrúar tœknimanna við afhendingu bóka- og tímaritagjafar Dr. Theodore R. Beck. Frá vinstri: Jóhannes Benediktsson, varaformaður TFl, Jón Hjaltalín Magnússon, framkv.stj. JHM-Altech hf, Birgir Omar Haraldsson, skipaverkfrœðingur hjá Jöklum hf.Jón Hjaltalín Stefánsson, deildarstjóri Rafgreiningardeildar Isal hf, Dr. Theodore R. Beck, Karl Ómar Jónsson fráfarandi formaður VFI, Baldur Líndal efnaverkfrœðingur, Þorsteinn Sigfússon prófessor, verkfrœðideild Háskóla lslands og Sveinbjörn Björnsson, liáskólarektor. (Ljósm. Helgi Bragason) Sveinbjörn Björnsson háskólarektor og Dr. Theodore R. Beck efnaverk- frœðingur standa fyrir framan hluta af hinni höfðinglegu bókagjöf sem Dr. Beckfœrði Landsbókasafni að gjöf. (Ljósm. Birgir Jónsson) Hinn 15. október síðastliðinn af- henti Einar Sigurðsson landsbóka- vörður Dr. Theodore R. Beck þakk- arbréf fyrir hans höfðinglegu gjöf. Viðstaddir þá athöfn í Þjóðarbók- hlöðunni voru m.a. Sveinbjörn Björnsson háskólarektor og fulltrúar frá VFI og TFI auk ýmissa annarra. I ágætu ávarpi sem Dr. Beck flutti kom fram m.a. að fróðir menn hefðu sagt honum að ekki virtust miklir vaxtarmögueikar í íslenskum landbúnaði og sjávarútvegi. Hann taldi að ineð aukinni nýtingu á hinni ódýru og hreinu jarðvarma- og vatnsorku okkar gætu lífskjör hér batnað í náinni framtíð. Hann taldi líklegt að orkufrekur iðnaður er byggði á rafefnaverkfræði kæmi þar við sögu. Vonaði hann að bókagjöf sín gæti hjálpað íslenskuni vísinda- mönnum og verkfræðingum að kynnast þessu sviði tækninnar nán- ar. Vörulistinn frá Rönning r Omissandi hjálpartæki fyrir fagmenn Vörulisti Johan Rönning hf er kominn út í nýrri útgáfu. Vöruflokkarnir eru 62 á 440 blaðsíðum, með 1700 myndum og vörunúmerin eru 5300. Listinn er fáanlegur á bókarformi og í rafrænni útgáfu á CD-ROM geisladisk eða á heimasíðu okkar á Internetinu, http://www.ronning.is. Allur rafbúnaður - frá framleiðslu til notkunar rafmagns. Johan Rönning hf Sundaborg 15 - 104 Reykjavík Sími: 568 4000 • JOHAN RÖNNING HF 3

x

Verktækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.