Hvalfjarðargangan

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Hvalfjarðargangan - 21.06.1962, Qupperneq 3

Hvalfjarðargangan - 21.06.1962, Qupperneq 3
inda, ekki sízt þeim sem fram- undan eru. Lúðvík Th. Helgason: Lúðvík var önnum ',:afinn við búðarafgreiðslu, þegar við hittum hann að máli. Við biðjum hann að segja fáein orð um álit sitt á hernáminu, þegar færi gefst. — Ég hef ekki frekar en aðrir fundið nein skynsamleg rök, sem mæla með hersetunni. Hins vegar eru fjölmargar ástæður til þess að við eigum að láta herinn fara. Hann er afsiðunartæki og kallar yfir okkur stórfellda árásarhættu. Ég vil taka þátt i hvers konar aðgerðum, sem rrtiða að því að losa okkur við þennan ófögnuð. um stöðvum verði komið upp hér á landi. verður almennur, er ekki lengi verið að grafa undan þjóðartil- veru Islendinga. um á íslenzkri grund. Ég álít stórhættulegt fyrir þjóðina, ef reisa á aðra herstöð á þéttbýlasta svæði landsins. Rannveig Haralds- dóttir: ADGANGA! Jón Júlíusson: Jón hefur tekið þátt í báðum Keflavíkurgöngunum og segist áreiðanlega ekki ætla að sleppa þessu tækifæri til að mótmæla hersetunni. Hann leggur áherzlu á, að engin vörn sé í hernum en margvíslegur ósómi fylgi honum. Eg geng til að mótmæla hvers konar afsali íslenzkra landsrétt- Þórarinn Jónsson: Þórarinn Jónsson er járnsmíða- nemi ættaður frá Smáragrund á Jökuldal. Þegar við spurðum hann, hvað hann teldi háskalegast við hersetuna, svaraði hann: — Ég álít langhættulegast, að ungt fólk hefur verið alið upp í þeim hugsunarhætti, að þjóðin geti ekki lifað án hersins og pen- inganna þaðan. Ef slíkur mórall Við hittum Rannveigu, þar sem hún starfar í Samvinnutrygging- um og spyrjum hana, hvers vegna hún ætli að ganga úr Hvalfirði. — Ganga ekki allir af sömu á- stæðum? spyr hún. Ég vil leggja mitt fram eins og aðrir til að stuðla að því, að herinn fari. Og það er fyrst og fremst hættan, sem af honum stafar, sem ég hei í huga. Guðrún Sverrisdóttir: Guðrún Sverrisdóttir er nítján ára skrifstofustúlka og hefur ekki tekið þátt í mótmælagöngum áð- ur. — Þú hefur verið í Ameríku, Guðrún. Ætlarðu að móðga Bandaríkjamenn með því að mót- mæla herstöðvum þeirra? — Eg kunni vel við mig í Bandaríkjunum, en það væri sama hver í hlut ætti, ég myndi ganga til mótmæla erlendum herstöðv- Björn Stefánsson: Björn Stefánsson er menntaður á landbúnaðarháskóla í Noregi Hann er nú ritstjóri Búnaðar- blaðsins. — Utanríkisstefna Islendinga er mótuð af nytsömum sakleys- ingjum, segir Björn. Og þar á ég við menn eins og Bjarna Ben. og Guðmund í., sem eru handbendi stéttarbræðra og samstarfsmanna morðhundanna í Alsír og hlita þeirra forsjá. Eg hugsa, að hér komizt ekki kommúnismi á, með- an herinn er, en það er eins lík- legt, að hér verði ekki mannlíf, ef hann situr. Ég er að sjálfsögðu feginn því, meðan kommúnistar ráða hér ekki, en ég tek hitt fram fyrir. Ólafur Thors getur belgt sig upp og sagzt vilja deyja fyrir hugsjónir hernámsins, en hann hefur ekki umboð til þess að lýsa því yfir fyrir aðra og ég hugsa, að unga fólkið kjósi lífið.

x

Hvalfjarðargangan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hvalfjarðargangan
https://timarit.is/publication/961

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.