Hvalfjarðargangan - 21.06.1962, Síða 4

Hvalfjarðargangan - 21.06.1962, Síða 4
r ■■ TILKYNNIÐ ÞATTTOKU Á SKRIFSTOFUNA MJÓSTRÆTI 3 Þátttakendur I HvalfjarSar- göngunni þurfa að láta skrá sig í seinasta lagi á föstudag. Skrif- stofan í Mjóstræti 3 verður opin á hverjum degi frá kl. 9—22, sím- ar 23647 og 24701. Nauðsynlegt er að tjöldum og svefnpokum sé komið til skila á skrifstofuna á föstudag. Þeir sem geta eru beðnir að útvega og lána tjöld, vel merkt, en öðrum verður tryggt svefnpláss. Lagt verður af stað úr Reykja- vík frá Bifreiðastöð Islands við Kalkofnsveg kl. 1,30 á laugardag. Verður þá ekið að Hvítanesi i Hvalfirði, en Guömundur Böðvar- son, skáld mun ávarpa göngu- menn, áður en gangan hefst. Á laugardag verða gengnir 26 km. og er áætlað að komið verði í náttstað á Kjalarnesi um kl. 10 á laugardagskvöld. Þar verður risin tjaldborg og verða seldar veitingar, áður en kvöldvakan hefst. Tvær ferðir verða frá Reykja- vík um eftirmiðdag og kvöldið á laugardag klukkan 17 og 21 frá B. S. 1. Ferð til Reykjavikur frá göngunni verður klukkan 19. Einnig verða ferðir frá Kjalarnesi í bæinn að kvöldvöku lokinni. Á sunnudag verður fyrsta ferð í tjaldbúð á Kjalarnesi kl. 10,30 um morguninn og síðan með nokkru millibili til móts við gönguna all- an sunnudag. Gangan hefst þann dag kl. 11 um morguninn. Ráð- gert er að komið verði að Elliða- ám um sjöleytið og hefst fundur í Lækjargötu kl. 8,45. Ræðumenn verða Jóhannes úr Kötlum og Sverrir Bergmann. Frá Hvítanesi £ Hvalfirði, flotastöð Bandamanna i seinasta strfði. Þaðan hefst gangan kl. 3 á langardag. Fjórar umsagnir um Hvalfjarðargönguna Gils Guðmundsson rith: Mótmælagang- an, sem Samtök hernámsandstæð- inga efna til um næstu helgi, hef- ur sama tilgang og Keflavíkur- göngurnar. Fólk úr ýmsum stjórn málaflokkum og með ólíkar skoð- anir um margt, ber fram í sam- einingu ákveðnar kröfur í máli, sem það telur svo mikilvægt, að um sé að tefla sæmd þjóðarinn- ar og framtíðarheill. Göngufólk- ið mótmælir því, að Hvalfjörður eða nokkurt annað íslenzkt land- Þeir tala á útifundinum ■Jóhannes úr Kötlum Sverrir Bergmann svæði verði látið í té undir her- bækistöðvar. Það krefst þess, að herstöðin, sem hér er nú, verði lögð niður. Það berst fyrir því, að aftur verði kleift að lýsa yfir ævarandi hlutleysi Islands í hernaðarátökum. Guðni Jónsson próf: Hvalfjarðargangan er táknræn athöfn, sem hefur tvenns konar tilgang. Annars vegar er til henn- ar stofnað til þess að mótmæla erlendri ásælni hér á landi, jafnt í mynd herstöðva sem efnhags- legrar og menningarlegrar undir- okunar. 1 annan stað er hún tákn og fulltrúi rótgróins sjálfstæðis- anda Islenzku þjóðarinnar, þess anda, er færði þjóðinni heim lokasigur í langri frelsisbaráttu. Sá andi lifir enn ókúgaður í brjósti flestra Islendinga, og und- ir merki hans — og aðeins hans — verða sigrar framtíðarinnar unnir. Jón Pétursson vélstj: Ég tel sem sannur íslendingur alveg sjálfsagt að halda áfram þessari stórmerku tilraun tvö hundruð þúsund manna til að vera sjálfstæð þjóð. Við verðum því að vera vel á verði gegn allri er- lendri ásælni, hvort heldur á fiski- miðum, landi eða annars staðar í þjóðlífi Islendinga. Ég tel sjálf- sagt að halda gerða samninga við erlend ríki, en gæta verður þess líka, að þeir séu haldnir gagnvart Islendingum. Úrsögn úr NATO er því tómt mál að tala um, en þó ég sé fylgjandi vest- rænni samvinnu, verð ég strax andvígur henni, ef hún ógnar sjálfstæði landsins. Og svo há- stemmdur get ég ekki verið að vera fús til að deyja fyrir aðrar þjóðir. Þvi tel ég Hvalfjarðar- göngu heppilega til að minna á, að sjálfstæðir Islendingar eru á móti kafbátastöð i Hvalfirði, sem eflaust yrði útbúin kjarnorku- vopnum, og er það langt fyrir neðan meðalgreind að sjá það ekki, að af slíkri vernd stafar meiri gjöreyðingarhætta en ör- yggí- Magnús Kjartansson ritstj: Verið er að ganga frá samn- ingum um banda ríska herskipa- höfn og lægi fyrir kjarnorku- kafbáta í Hval- firði. Sérfræðingar vinna að áætlun um almanna- varnir sem eiga að vera í því fólgnar að grafa menn niður í jörðina eða flytja þá upp i ó- byggðir ef hættu ber að höndum. Forsætisráðherra landsins hef- ur lýst yfir því að betra sé að deyja fyrir Atlanzhafsbandalagið en lifa án þess. Enginn getur hrundið þessari viftfirringu nema fólkið sjálft, með því að neyta lýðréttinda sinna. Við höfum með tvennum mótmælagöngum sannað stjórnar- völdunum að allur þorri Islend- inga vill lifa einn og frjáls í landi sínu. Gerum Hvalfjarðar- gönguna í ár þeim mun áhrifa- ríkari sem tiiefnin eru alvarlegri en nokkru sinni fyrr. Útgefandi: Samtök hernámsandstæðinga. Ábm. Ragnar Arnalds. Prentað 1 Steindórsprenti.

x

Hvalfjarðargangan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hvalfjarðargangan
https://timarit.is/publication/961

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.