Dagfari - 01.08.1966, Side 8
Nýtt kvæöi um guð / Kvæði um nýjan guð.
Hó! Ég er guðinn. Vesali maður,
hvers leitaröu ?
Hér er ég, guð þinn.
Sjá þessar borgir, ekki verða þær
reistar á einum degi,
en afturámóti eru
engin vandkvæði á
að leggja þær í rúst
á einum degi.
Hvers leitarðu ?
Skjálfandi lfta þeir til mín
sem þekkja mig.
Grátandi konur þerra tár sfn
myrku hári og dökku.
Og valdsmenn þjóða
bera ilmsmyrsl, alabastur
á fætur mína.
Hvers leitarðu ?
Nagasakí, Nevaða,
Kennedýhöfði, Spánarströnd.
Þetta eru mínir staðir,
þar eru mfn musteri.
Bjálfar, fallið fram og tilbiðjið mig.
Hó, ég er sprengjan!
Heimir Pálsson.
8 DAGFARI
ÁVARP
til íslendinga frá ungu fólki
Við undirrituð, sem höfum ólíkar skoðanir á ýmsum
málum,
erum sammála um, að við viljum ekki hafa
herstöðvar eða herlið í landi okkar.
Við viljum leggja áherzlu á þá sérstöðu íslendinga,
að þeir hafa verið vopnlaus þjóð um langan ald-
ur og að þeir hafa ekki háð styrjöld með vopnum
við aðrar þjóðir.
Við viljum,
að íslendingar haldi þessari sérstöðu sinni og
skipi sér í flokk þeirra þjóða, er leggja áherzlu
á boðskap friðarins á alþjóðavettvangi.
Við teljum,
að landi okkar sé engin vörn að herbúnaði hér,
en hins vegar sé það nú öruggt skotmark, ef
heimsstrfð brytist út.
Við álítum,
að hervirkjaframkvæmdir í Hvalfirði séu hættu-
legar og auki vanda þjóðar okkar. Jafnframt
eru þær í ósamræmi við stefnu ýmissa annarra
þjóða innan Atlantshafsbandalagsins um sam-
drátt í gerð hernaðarmannvirkja og fækkun her-
stöðva.
Við viljum leggja áherzlu á þá hættu, sem menningu
okkar er búin af starfrækslu fjölmiðlunartækja
herstöðvarinnar f Keflavík.
Við teljum af þessum ástæðum,
að tilvera okkar sem sjálfstæðrar þjóðar í frið-
lýstu landi sé því aðeins tryggð, að vrndinn
verði bráður bugur að uppsögn hersamningsins
við Bandarfki N-Amerfku og brottför hers
þeirra héðan.
Við skorum þvf á alla fslendinga, unga og gamla,
hvar sem þeir eru í flokki, að vinna að fram-
gangi þess og hvergi hika.
Baldur Oskarsson, rithöfundur, Reykjavík.
Björn Stefánsson, búnaðarhagfræðingur, Reykjavík.
Björn Teitsson, stud.mag., Þingeyjarsýslu.
Einar Örn Guðjónsson, verkamaður, Reykjavík.
Guðmundur Þorsteinsson, Skálpastöðum, Borgarfirði.
Guðvarður Kjartansson, gjaldkeri, Reykjavík.
Gunnar Karlsson, stud. mag., Gfgjarhólskoti, Arnessýslu.
Heimir Pálsson, stud.mag., Reykjavík.
Helgi Guðmundsson, iðnnemi, Reykjavík.
Hjördis Hjörleifsdóttir, kennari, Isafirði.
Hjörtur Pálsson, fréttamaður, Reykjavík.
Indriði Aðalsteinsson, Skjaldfönn, Norður-Isafjarðarsýslu.
Jón Sigurðsson, stúdent, Reykjavík.