Dagfari - 01.10.2005, Qupperneq 6

Dagfari - 01.10.2005, Qupperneq 6
upplýsingaskyldu sem framin eru í nafni „öryggishagsmuna þjóðarinnar". Samtök herstöðvaandstæðinga krefjast þess að ákvarðanataka um öryggismál Islendinga sé ávallt gagnsæ og mótist af lýðræðislegum meirihlutavilja, en þó þannig að friðarsjónarmið séu jafnan í öndvegi. Markmið samtakanna eru: * Að berjast gegn hvers lcyns kjarnorkuvígbúnaði og taka þátt í alþjóðlegu friðarstarfi. * Að ísland segi upp aðildinni að NATO og standi utan hernaðarbandalaga. * Að Island segi upp hernaðarsamningnum við Bandaríki Norður-Ameríku og leyfi engar herstöðvar á Islandi. * Að sameina alla sem vilja vinna að þessum markmiðum til baráttu fyrir þeim. I tengslum við baráttudag kvenna þann 24. október sl. var endurútgefinn hljómdiskurinn Afram stelpur, sem hefur að geyma marga sígilda baráttusöngvar úr kvenfreslisbaráttunni. Ljóst er að þessi diskur mun rata í marga pakka fyrir næstu jól. Að þessu tilefni er vert að minna á hljómdiska þá sem SHA hafa gefið út á síðustu árum. Þar er annars vegar um að ræða safndiskinn Baráttusöngva fyrir friði og þjóðfrelsi, sem inniheldur fjölda sígildra slagara úr friðarbaráttunni, en Gefið tónI istargjöf hins vegar Sóleyjarkvæði eftir ljóðabálki Jóhannesar úr Kötlum. Upplagið af fyrrnefnda disknum er senn á þrotum og fer því hver að verða síðastur að festa kaup á þessum kjörgrip. Enn mun þó nokkuð vera til til af Sóleyjarkvæði. Friðarsinnar sem gera jólainnkaupin snemma geta því haft samband við SHA með því að hringja í símann 554- 0900 eða senda tölvupóst á netfangið sha@fridur.is til að panta eintök. 6

x

Dagfari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.