Dagfari - 01.10.2005, Side 7
Tillögur að breyttum lögum SHA
Lög Samtaka herstöðvaandstæðinga voru
samþykkt haustið 1976. A þeim hafa verið
gerðar ýmsar breytingar, síðast árið 2002.
Hægt að Iesa lögin í núverandi mynd á
vefsvæði SHA, www.fridur.is.
Lagt er til að nokkrar breytingar verði
gerðar á lögunum að þessu sinni, einkum
í því skyni að færa lög SHA til samræmis
við almennar venjur í félagasamtökum.
* Lagt er til að í greinum 5, 6, 8 og 10
verði orðinu landsráðstefna skipt út, en
þess í stað verði talað um aðalfund SHA.
* Lagt er til að í greinum 5 til 10 verði
orðinu miðnefnd skipt út, en þess í stað
verði talað um stjórn SHA.
* Lagt er til að sú breyting verði gerð á
skipan miðnefndar/stjórnar að í stað þess
að þar sitji 8 aðalmenn og 4 varamenn
verði aðalmenn 9 talsins en varamenn 3.
* Lagt er til að sú breyting verði gerð á
greinum 5 og 6 að kosning formanns fari
fram á landsráðstefnu/aðalfundi, en að
öðru leyti muni miðnefnd/stjórn skipta
með sér verkum.
Greinargerð með lagabreytingum:
Ymsar breytingar hafa orðið á skipulagi
SHA í gegnum tíðina. Til að mynda var
miðnefnd félagsins lengi vel skipuð íjölda
fulltrúa sem aftur kusu framkvæmdanefnd
úr sínum röðurn. Framkvæmdanefndin
gegndi því sama hlutverki og stjórn í
hefðbundnum félagasamtökum.
Alllangt er síðan horfið var frá þessu
skipulagi og hefur miðnefnd í rneira
en áratug haft stöðu stjórnar. Má telja
eðlilegt að nafngiftum sé breytt í samræmi
við það. Sömu sögu má segja um heiti
landsráðstefnu, sem er arfur frá þeim
tíma þegar starfsemi SHA skyldi byggja á
fjölda lítilla starfseininga. Landsráðstefna
er í raun aðalfundur SHA og ætti því að
bera nafn í samræmi við það í lögum
félagsins.
Breytingin á íjölda aðal- og varamanna
í miðnefnd/stjórn byggist á því að rétt
sé að fjöldi aðalmanna sé oddatala, þótt
viðurkennt sé að skiptingin í aðal- og
varamenn hafi fyrst og fremst verið
formsatriði síðustu misserin. A sama
hátt má telja eðlilegt að formaður
félagasamtaka sé kjörinn beinni kosningu
á aðalfundi líkt og hér er lagt til.
Páll Hilmarsson
7