Aðventfréttir - 01.02.1995, Page 4

Aðventfréttir - 01.02.1995, Page 4
eftirfarandi: Sjálfsmynd (10), æskulýðs- mál fyrir unglinga, skipulagning tíma, barnahvíldardagsskólinn, þunglyndi og sjálfsvíg og fjármál fjölskyldunnar (8), að vinna úr sorg (7), streitustjórnun og alvarlegir sjúkdómar (5), að takast á við fíkniefnavandamál, að alast upp í íjöl- skyldu sem hefur áfengisvandamál, of- beldi eða önnur skaðleg vandamál og að vera einhleypur safnaðarmeðlimur (3) og að vera fráskilinn og einhleypir foreldr- ar(2). Þegar raðað var í forgangsröð kom í ljós að sjö settu í fyrsta sæti það að vera krisdnn f vinnunni, fimm það að biðja, og þrír heilsuboðskapinn og ofbeldi gegn börnum; fjórir settu uppeldismál í annað sæti; þrír settu uppeldismál og ofbeldi Kvennakór undir stjórn Gardars Cortes söng á guðsþjónustu í Reykjavík. gegn börnum í þriðja sæti; fjórir settu barnahvíldardagsskólann í fjórða sæti. (Málefni dreifðust mjög jafnt). Því miður gafst ekki tími til að gera könnun á gjöfum andans á þessu nám- skeiði. Þátttakendur voru mjög ánægðir með þessa heimsókn og fagna áframhaldandi samvinnu við Birthe Kendel. Guðný Kristjánsdóttir Unnur Halldórsdóttir Ulfhildur Grímsdótdr Stjóm Samtakanna hefur þegar samþykkt ad fela ofangreindum þrem aóilum ab vera sá starfshóþur sem veitir þessu slarft forslobu hér á landi. Einnig hefur þreslum og stjómum hinna ýmsu safnaba verib senl bréf þar sem söfnubirnir eru hvatlir til ab útnefna konu innan hvers safnabar sem veitir starjinu forstöbu heima fyrir. Ritstj. FRUMLEG AU GLÝSIN GAHERFERÐ HJÁ AÐVENTISTUM í NOREGI OSLO, NOREGI. Þrír af söfnuðum aðventista í Noregi hafa ákveðið að nota nýja auglýsingatækni til að ná athygli fólks á aðventboðskapnum. Ungmenna- félagið í Betel, söfnuði Sjöunda dags aðvendsta í Oslo, aðstoðaði Sigve Ton- stad, prest safnaðarins, við að búa til 8 síðna dagblað sem var kallað „Bible Tirnes". Utgáfa blaðsins vakti töluverða athygli bæði prentmiðla, útvarps og sjón- varps en blaðinu var ritstýrt úr Akers- gatan, þar sem bæði aðventkirkjan í Oslo er staðsett og einnig ritstjórnarskrifstofur flestra stærstu norsku dagblaðanna. Þótt að tilgangur blaðsins hafi aðallega verið til að hjálpa almenningi að sjá Guð eins og hann er í raun og veru — kærleiks- ríkur Guð sem lætur sig mannlegar þján- ingar varða - þá voru þessi 10,000 eintök einnig boð til Oslóarbúa á opinberar samkomur sem haldnar voru af presd aðvendsta í Oslo. I Tromsö í Norður-Noregi, var sett heil- síðuauglýsing í stærsta dagblað bæjarins, auglýsing með mynd af kirkjunni og mannfjöldi fyrir framan, þar sem fólki var boðið að koma og skoða endurbætta og stækkaða kirkju. Fyrirsögn auglýsingar- innar var: „Við höfum stækkað aðvent- kirkjuna. Loksins höfum við pláss fyrir alla!“ 1 kjölfar þess að bjóða fólki til kirkj- unnar var boðið upp á ýmis Biblíu- námskeið. I tilefni af hátíðahöldum vegna aldar- afmælis aðventsafnaðarins í Bergen, undirbjuggu safnaðarmeðlimir 12 blað- síðna bækling í dagblaðaformi með lit- myndum, til að kynna boðskap og starf- semi aðventista. Þessi dagblaðsbæklingur var síðan settur inn í aðaldagblaðið í Bergen, Bergens Tidende, sem er gefið út í 84,500 eintökum. Frumkvæðið kom í öllum þessum til- vikum frá safnaðarmeðlimunum safnað- anna og söfnuðirnir kostuðu þetta einnig sjálfir. [ANR] UN GMENNAMÓTIÐ 1995 Efni mótsins verður Fagnaðarerindið og siðaskipti á íslandi. Við munum því heini- sækja Skálholt og Hóla í Hjaltadal. Sjá nánar um þetta hér að neðan. Hafst verður við í tjöldum og kofum á leiðinni. Þetta verður ógleymanleg upplifun með góðum ferðafélögum og miklum söng í faðmi stórbrotinnar náttúru og á merkustu slóðum kristninnar á Islandi. Allir 12 ára og eldri hjartanlega velkontnir. TÍMI: 22. júní til 26. júní. STAÐIR: Farið verður frá Aðventkirkjunni í Reykjavík, fimmtudaginn 23. júní kl. 16:00 í Skálholt. Dvalist verður þar um nóttina. Næsta dag verður ferðinni heidð um Laugarvatn, Þingvelli og Kaldadal í Húsafell. Húsafell verður okkar nætur- staður. A hvíldardeginum liggur leið okkar til Hóla í Hjaltadal. Sofið verður að Hólum. Við höldum ferðinni áfram á sunnudeginum - veðrið og við munum ákveða framhald ferðarinnar. Sama gildir um heimferðina. Reynt verður eftir fremsta megni að fara heim um Kjöl ef veður og færð leyfa og verður j)á gist eina nótt á hálendinu. Verði það ekki hægt finnum við aðra góða leið. Hver og einn sér um sitt nesti og tjald sjálfur. Rútan sem verður farið með hefur salernisaðstöðu og einnig kæliskáp. Bílstjóri verður Sntári Sveinsson. RÆÐUMAÐUR: Gunnar Jörgensen, prestur frá Noregi. Hann er góður Islands- vinur. Konan hans verður með í för. SÖNGSTJÓRI OG HÚMORISTI: Davíð Ólafsson. VERÐ: Ef það verða: 50 manns í rútu kostar kr. 3.000 fyrir manninn 40 manns í rútu kostar kr. 4.000 fyrir manninn 30 manns í rútu kostar kr. 5.000 fyrir manninn Innritunargjald er kr. 500 og er það þá hluti af fargjaldinu (það dregst frá heildar- gjaldinu). Innritunargjaldið greiðist á skrifstofu aðventista, Suðurhlíð 36. 4 AðventFréttir

x

Aðventfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.