Aðventfréttir - 01.02.1995, Side 5
Eftir Siegfried J. Schwantes
,Á 39. ríkisári sínu gjörðist Asa fót-
veikur, og varð sjúkleiki hans mjög
mikill. En einnig í sjúkleik sínum leitaði
hann ekki Drottins, heldur læknanna.“
2Kro 16. 12. Flestir konungar Israels
voru ávít aöir íyrir það að líf þeirra og
störf samræmdust ekki vilja Guðs.
Aminningin í þessum texta var veitt Asa
konungi einungis vegna þess að hann
leitaði aðstoðar lækna.
Þessi áminning hefur valdið miklum
vangaveltum. I hugum sumra lýsir þetta
vantrausti á læknavísindin. Er það mögu-
legt?
A 9. öld f. Kr., á tímum Asa konungs,
var mjög lítið sem aðskildi lækni og
galdra. Þá voru engir læknaskólar í
Israel né heldur annars staðar í heim-
inum.
Aðeins í Egyptalandi var ástandið
öðruvísi. Þar var mikil gróska í læknis-
fræði eins og endurspeglast í skurð-
lækningapapyrus Edwin Smith, sem á
uppruna sinn að rekja til tímans þegar
að pyramídarnir Khufu, Khefren og
Mykerinos voru reistir. A þeim tíma var
egypsk viska allsráðandi í ýmsum fræði-
greinum eins og arkitektúr, stærðfræði
og læknisfræði. Eg)'ptarnir gátu aðskilið
læknisfræði og galdra og lýstu ýmsum
sjúkdómum með undraverðri hlutlægni.
Til dæmis í áðurnefndum papyrus er
ýmsurn sjúkdómum lýst með einkennum
þeirra og látið í ljós álit á hversu lengi
þeir inundu vara og hversu þungbærir
þeir mundu reynast.
Lyfjafræðin var þó í algjöru lágmarki.
Ymis meðul voru búin til úr fræjum,
rótum, trjáberki eða dufti úr hornum og
öðrum líkamshlutum dýra. Egypskir
læknar trúðu því þó að tíminn væri besta
meðalið og í mörgum tilfellum gerðu
þeir ekki annað en að fyrirskipa ákveðið
mataræði. En því miður varð egypska
læknisfræðin smám saman fyrir áhrifum
galdra. Galdrar, eins og einn fræðimað-
ur orðaði það, var plágan sem í fornöld
eyðilagði bæði trúarbrögð og læknis-
fræði.
Gætu Israelsmenn hafa lært lækna-
vísindi af Egyptum? Varla. Til er þó til-
vitnun í egypskar lækningar í sambandi
við smurningu á líkama Jakobs (1M
50.2). En Jressir læknar voru í reynd ekki
annað en sérfræðingar í smurningum.
Astandið var ekki mjög frábrugðið í
Babylon. Þrátt f)TÍr mikla þekkingu í
stjörnufræði og stærðfræði, höfðu þeir
einungis frumstæða lækningaþekkingu
og einfaldar skurðlækningar. Þeirra
læknavísindi voru umvafin sterkri hefð
og einkenndist niikið af trú þeirra á
göldrum. Þegar E. C. Herodotus faðir
sagnfræðinnar, heimsótti Babylon á
ntiðri 5. öld f. Krist, komst hann í kynni
við læknavísindin þar. Með eigin augum
sá hann hina veiku standa á torgum
borgarinnar bíðandi eftir því að taka við
læknisráðum hjá hverjum sem gekk
framhjá.
AÐ SJÁ HLUTINA í SAMHENGI
Við verðum að skilja veikindi Asa
konungs í réttu samhengi. Asa var guð-
hræddur leiðtogi. Hann fékk hin háleitu
ummæli að hann „gjörði það sem rétt
var í augum Drottins“ (lKon 15. 11).
„Hjarta Asa var óskipt gagnvart Drottni
alla ævi hans“ (vers 14).
En lofsvert líferni er aldrei trygging
gegn sjúkdómum. Á gamals aldri var Asa
veikur í fótunum. Og veikindi hans
urðu alvarleg eða eins og stendur í nýju
ensku biblíujrýðingunni: „hann var
alvarlega sýktur af drepi í fótunum".
1 öngum sínum gleymdi Asa Drottni.
Hann gleymdi loforðunum sem Hananí
spámaður hafði fært honum frá Drottni:
„Því að augu Drottins hvarfla um alla
jörðina, til þess að hann megi sýna sig
máttkan þeim til hjálpar, sem eru heils-
hugar við hann.“ (2Kro 16. 9). Hjálp og
huggun voru í seilingarfjarlægð, en
vegna sjúkdómsástands síns gleymdi Asa
að beina augum sínum til himins þaðan
sem að Drottinn lítur með samúð til
barna sinna.
1 ljósi Jress sem við höfum séð nú, að
læknar þessara tíma voru litlu betri en
galdramenn, er skiljanlegt hvers vegna
konungurinn var ávítaður fyrir að hafa
leitað til lækna. Læknisfræðin stóð eng-
an veginn undir nafni á þessum tíma.
Galdrar og lækningar héldust hönd í
hönd og konungurinn mun hafa vitað
jiað. Alveg eins og Hersekía konungur
hafði leitað eftir og fengið ráð hjájesaja
spámanni í veikindum sínum, hefði Asa
einnig getað leitað ráða hjá Hananí spá-
manni. Huggunarorð og leiðbeining frá
Drottni hefðu verið ntun gagnlegri en
meðulin sem voru uppáskrifuð af lækn-
um Jress tíma.
Við ættum þess vegna ekki að lesa
þennan texta með augum okkar tíma.
Reyndar strax á fyrstu öld e. Ki ist höfðu
hlutirnir breyst rnikið og til dæmis um
það má nefna líf Lúkasar „læknisins
elskaða“ (Kól 4.14). Á tímum Asa voru
kringumstæðurnar öðruvísi. Hið eina
rétta fýrir hann heíði verið að fela sig í
hendur Guðs og setja allt traust sitt á
hann.
Hvað eigum við þá að gera, eigum við
að velja trúna eða læknisfræðina? Við
þurfum ekki að velja. Við notum hvoru
tveggja.
Siegfried J. Schwantes var yjirniadur
Biblíudeildar Saleve stofnunarinnar á
Collonges i Frakklandi pegar hann skrifaði
pessa grein.
Þýðandi: Kristinn Ólafsson
YFIRMAÐUR ADRA I DAN-
MÖRKU ÚTNEFNDUR
í FRAMKVÆMDASTJÓRN
ÞRÓUNARHJÁLPARINNAR
Kaupmannahöfn, Danmörku
Helge Andersen, yfir maður ADRA í
Danmörku (Hjálpar- og þróunarstarf
aðventista) hefur verið útnefndur í fram-
kvæmdastjórn sem hefur )4irumsjón með
DANIDA (Dönsku þróunar- og Hjálpar-
stofnuninni), sem heyrir beint undir
danska utanríkisráðuneydð.
ADRA í Danmörku hefur síðastliðin ár
orðið að þeirri stofnun sem mestum ár-
angri hefur náð og mesta aðstoð hefur
veitt til þróunarlanda, og er talið að út-
nefning Helge Andersen í framkvæmda-
stjórnina sé vottur um viðurkenningu á
starfi ADRA í Danmörku.
Helge Andersen er mjög reyndur
stjórnandi og hefur alltaf haft mikinn
áhuga á aðstoð við fólk í þróunarlöndum
jafnhliða því að hafa hæfileika til að
stjórna og skipuleggja neyðarhjálp eftir
náttúruhamfarir og annað af svipuðum
toga. 1963 fór Helge Andersen ásamt
öðrum safnaðarmeðlimum til Skopje í
fyrrum Júgóslavíu dl að byggja hús fyrir
fórnarlömb jarðskjálfta sem varð 1,100
manns að bana og 4,000 manns slösuðust.
Síðan þá hefur Helge verið í ýmsum
stjórnunarstöðum fýrir söfnuðinn. Hann
hefur verið formaður Samtaka aðventísta
í Danmörku, formaður Sambands aðvent-
ista í Nígeríu og eftir að hann sneri þaðan
og heim, yfirmaður Hjálparstarfs aðvent-
ista (ADRA) í Danmörku.
Hjálparstarf aðventista í Danmörku
vinnur nú að ýmsum málefnum til hjálpar
flóttamönnum frá Rwanda og einnig að
vatnsveitumálum í ýmsum öðrum ríkjum
Afríku. [ANRJ
AdvkntFréttir
5