Aðventfréttir - 01.02.1995, Qupperneq 7
TRÚARREYNSLA í
HAFNARFIRÐI
Kæru lesendur,
Við stallsysturnar í fjáröflunarnef’nd
safnaðarins í Hafnarfirði viljum gjarnan
segja ykkur frá því sem er að gerast hjá
okkur. Frá því að söfnuðurinn var stofn-
aður íyrir 3 árum höfum við verið í
stöðugum vandræðum með húsnæði fyrir
starfsemi safnaðarins. Og þótt við höfum
fengið inni nokkuð reglulega á hvíldar-
dögum í Góðtemplarahúsinu, þá kemur
það fyrir nokkrum sinnum á ári hveiju að
húsið er notað af öðrum einmitt á okkar
samkomudögum. Þar af leiðandi hafa
margir komið erindisleysu í Góðtempl-
arahúsið. Þegar svo við þessi óþægindi
bætist að eftir hverja samkomu þurfum
við að pakka saman öllu okkar dóti og
taka upp aftur fyrir |)á næstu, með til-
heyrandi tilfærslum á borðum og stólum,
þá má svo sannarlega segja að við höfum
þráð mikið að eignast okkar eigið hús-
næði, þar sem engar slíkar hindranir tak-
marka starf okkar.
Að sjálfsögðu báðum við Guð um að
leysa þetta vandamál okkar, sem hann
gerði svo áþreifanlega, þegar okkur var
gert kleift að kaupa 420 fermetra hús-
næði að Hólshrauni 3, í Hafnarfirði, í
desember s.l. Fyrir 3 árum áttum við ekki
eina krónu í sjóði til öflunar húsnæðis, en
þegar kaupin voru gerð í desember upp
á kr. 7,8 milljónir, var kaupverðið greitt
út í hönd. Þetta varð mögulegt vegna
vinnu margra við margvíslega fjár öflun
og einnig vegna kærleiksríkra fórna ein-
staklinga sem gáfu af fjármunum sínum
til húsakaupasjóðsins. Fyrir þetta allt
erum við ákaflega þakklát.
Frá því að fokhelt húsnæðið komst í
hendur safnaðarins, hafa sjálfboðaliðar
unnið þar flesta sunnudaga og oft aðra
daga einnig. Verkinu miðar vel áfram og
ef ekki skortir peningana munum við
geta tekið nýja safnaðarheimilið okkar í
notkun fyrir haustið. Vinnu við einangr-
un, múrverk og pípulagnir er að verða
lokið og þá tekur tréverkið við og raf-
lögnum verður haldið áfram. Þótt verð-
mæti byggingarefnis og vinnu, sem lagt
hefur verið í húsnæðið eftir að kaupin
voru gerð, sé virði milljóna króna, þá er-
um við skuldlaus og ætlum ekki að stofna
til skulda við þessar framkvæmdir. I þessu
efni treystum við algjörlega á Guð. Við
trúum því að hann muni vekja athygli
fólks á því sem við erum að gera í
Hafnarfirði og vekja hjá því löngun til að
hjálpa okkur með fjárframlögum sínum.
Við trúum því að „ef Drottinn byggir ekki
húsið, erfiða smiðirnir til ónýtis."
Það hefur verið svo uppörvandi að
komast að raun um fórnarlund og höfð-
ingsskap margra sem koma færandi
hendi á meðan á framkvæmdum stendur.
Sumir gefa af litlum efnum, aðrir af meiri
efnum. Margir gefa stórt eða smátt reglu-
lega, aðrir hafa gefið til framkvæmdanna
einstök framlög í stærra lagi. Fyrir þetta
allt erum við ákaflega þakklát og við lof-
um Guð fyrir blessanir hans.
Nýja safnaðarheimilið mun gera söfn-
uðinum mögulegt að koma í framkvæmd
áfornmm um margvíslega starfsemi í
Hafnarfirði og nágrenni.
Samtökin hafa ákveðið að tekin verði
upp sérstök fórn í söfnuðum okkar um
land allt á næstunni og mun þessi fórn
renna til safnaðarheimilisins í Hafnar-
firði. Við þökkum fyrir stuðning ykkar og
bænir á liðnum tíma. Við þökkum fyrir
kaup ykkar á jólakortum, myndum og
matreiðslubók sem við höfum selt að
undanförnu til ágóða fyrir safnaðarheim-
ilið okkar.
Við þökkum fyrir allar dósirnar og
flöskurnar sem komið hafa frá ykkur, en
þessi fjáröflunarleið hefur þegar skilað
hundruðum þúsunda í hússjóðinn okkar.
Við þökkum fyrir þá muni sem mörg
ykkar gáfu í Kolaportasöluna okkar s.l.
haust. Við héldum aðra slíka á sama stað
7. maí. Við þökkum fyrir allan stuðning í
hvaða mynd sem hann hefur birst okkur.
Að fjárfrekum liðum sem enn á eftir að
fjármagna til þess að ljúka megi fram-
kvæmdum má nefna klæðningu í loft
salarins, gólfefni, stóla og eldhústæki. Við
trúum því að Guð, sem þegar hefur gert
SÖFNUN
Til styrktar byggingarsjóði
H afnaríj arð arsafnað ar
Eignarhluti saftiaðarins í Hólshrauni 3 er rúmlega helmingur efri hœðar hússins
(vesturendi).
Hér að neðan má sjá yfirlit yfir innréttingu safnaðarheimilisins.
okkur kleift að kaupa húsnæðið og að
gera öll efniskaup fram að þessu og sem
einnig hefur sent okkur kunnáttumenn
til að vinna við framkvæmdirnar kaup-
laust, muni líka hjálpa okkur til að ljúka
við verkefnið. Líklega er verðmæti hús-
næðisins, svo og efnis sem þegar hefur
verið keypt og allrar þeirrar vinnu sem
þegar hefur verið lögð í húsið, um kr.
11-12 milljónir.
Við bjóðum ykkur að taka þátt í þessari
miklu trúarreynslu okkar í Hafnarfirði.
Vissulega er Guð að gera stórvirki á
Þegar nýr einstaklingur kemur í
heiminn er það fagnaðarefni. Það er
merki um vöxt og líf- ný tækifæri og nýja
möguleika. Og allir vilja leggjast á eitt um
að veita hinu nýfædda brautargengi.
Sama var upp á teningnum þegar yngsta
systir aðventsafnaðanna á Islandi fæddist
suður í Hafnarfirði. Hér var um áþreifan-
legan vaxtarbrodd starfsins á Islandi að
ræða, svar við bænum okkar um íjölgun
og aukin áhrif á Islenskt þjóðfélag í þágu
málefnis Guðs þó að sumir söfnuðir hafi
þurft að sjá á bak nokkurra félaga sinna
til að fóstra hvítvoðunginn á æsku-
skeiðinu.
Allt frá upphafi nærðist sá draumur
með safnaðarfólkinu í Hafnarfirði, sem
eðlilegt er, að eignast sem fyrst eigið hús
sem viðeigandi ramma um starfsemina.
Stórkostlegir hlutir gerðust sem gerðu
þeim kleift að festa kaup á fokheldu hús-
næði sem nú þegar nálgast að vera tilbúið
undir tréverk eins og um getur annars
staðar hér í blaðinu. I þessu byggingará-
taki er áhersla lögð á að stofna ekki til
skulda en að halda framkvæmdum innan
jtess fjármagns sem fyrir hendi er, fjár-
ntagns sem söfnuðurinn hefur sjálfur
safnað eða fengið að gjöf í hússjóðinn.
Söfnuðinum hefur einnig borist fjárveit-
ing frá Stór-Evrópudeildinni og frá Sam-
tökunum fær hann fjárveitingu í bygg-
ingarstarfið samsvarandi þeirri upphæð
meðal okkar í dag. En því gleymum við
alls ekki, að Guð ætlar okkur enn stærri
og háleitari verkefni til að vinna að, sem
felast í því að leiða einstaklinga til hjálp-
ræðis Drottins. Við lítum því á tilkomu
safnaðarheimilisins okkar sem verkfæri
sem Guð gefur okkur mörgum til bless-
unar.
Gubnj Kristjánsdóttir,
formaður JjáröJlunamefndar
Margrét Jóhannsdótlir, ritari
Lilja Guðsteinsdóttir
sem söfnuðinum tekst að safna í inn-
söfnun.
Það er grundvallar hugsjón í uppbygg-
ingu safnaðarstarfsins að sérhver safnað-
armaður taki virkan Jaátt í safnaðar-
starfinu og í öðru lagi hinir ýmsu söfn-
uðir starfi saman og styðja við bak hvers
annars í stærri verkefnum. Þannig hefur
árangri verið náð í okkar starfi gegnum
árin. Safnaðarfólkið í Hafnarfirði hefur
staðið sig með prýði hvað fjáröflun til
húsnæðismálanna snertir og þar vinna
sjálfboðaliðar nú hörðum höndum næst-
um hvern einasta virkan dag. Nú kemur
kallið til okkar frá systkinum okkar og
vinum í Hafnarfirði um að við hvert um
sig leggjum eitthvað af mörkum einnig.
Umslag merkt Byggingarátaki Hafnar-
fjarðarsafnaðar fylgir þessu Aðventfrétta-
blaði sem við erum góðfúslega beðin um
að nýta fýrir gjafafé sem hægt er síðan að
leggja í samskotakörfurnar í hverjum
söfnuði einhvern næstu hvíldardaga.
Gjaldkerar safnaðanna munu síðan koma
gjöfunum áleiðis.
Tökum vel á móti umleitan þfeirra og
gefum rausnarlega þannig að draumur
þeirra um að geta bytjað að nýta safn-
aðarmiðstöðina í Hafnarfirði megi rætast
sem fyrst.
Eric Guðmundsson,
FORMAÐUR
RÉTTUM ÞEIM
HJÁLPARHÖND
Fjáröflunamefnd safnaðarins
Lilja, Guðný og Margrét.
*Stafnarfjarðarsöfnuður leitar nú til allra
safnaöarsystkina á íslandi um framlag til
byggingarsjóös safnaöarheimilis.
£>f þú óskar aö taka þátt, nýttu þá hjálgt
umslag fyrir gjöf þína. Til aö koma gjöfinni áleiöis
má t.d. leggja hana í samskotakörfuna
einhvern næstu hvíldardaga.
Pétur tœknifrceðingur og smiður með rneiru.
Jóhann alt mulig mand!
6
Egill múrari við störf.
AðventFréttir
7