Aðventfréttir - 01.04.1996, Side 4

Aðventfréttir - 01.04.1996, Side 4
Þess vegna yfirgefur fólk söfnuðinn... Igreinum og bréfum sem birt hafa verið í blöðunum okkar og í ræðum á starfsfundum er ástæða þess „hvers vegna fólk yfirgefur söfnuðinn" rædd. Og ég hef heyrt marga halda því fram að fólk fari úr söfnuðinum vegna þess að hann sé kaldur og að honum standi á sama. Eg hef verið prestur í 25 ár. I hverju umdæmi hef ég heimsótt alla fyrrverandi og óvirka meðlimi safnaðarins. Eg hef setið heima hjá þeim og orðið vinur þeirra flestra. Það sem ég hef tekið eftir sem orsök þess að fólk fari úr söfnuðinum hefur verið allt annað en það sem margir halda fram - og sem að mínu mati er mjög hættuleg skoðun á þessu máli. Flestir þeirra sem hverfa úr söfn- uðinum fara ekki vegna þess að hann sé svo „kaldur og skeytingarlaus", heldur vegna þess að þeir vilja ekki gangast undir þann sjálfsaga og skuldbindingu gagnvart Krisd sem er skilyrði þess að vera virkur meðlimur safnaðarins. Eg geri mér grein fyrir því að sumir fyrrverandi eða óvirkir meðlimir safn- aðarins hafa sætt áreiti annarra meðlima eða hópa innan safnaðarins. Það særir mig líka þegar söfnuðurinn minn sýnir ekki kærleika og hlýhug. Samt sem áður, er ég sannfærður um að alvarleg dæmi um kulda og skeytingarleysi eru frekar fá þegar á heildina er lidð. Með því að stan- da fyrir einfaldri skriflegri könnun fékk ég upplýsingar frá þeim sem höfðu yfir- gefið söfnuðinn. Einungis 25% sögðu að söfnuðurinn væri „gagnrýninn" og ein- ungis 9,9% vildu halda því fram að söfnuðurinn væri „skeytingarlaus” gagn- vart þeim. Þessi 35% sem héldu því fram að söfnuðurinn væri kaldur eða gagnrýninn gætu við fyrstu sýn virst vera einlitur hópur samsinnandi einstaklinga. Samt er það þannig að þegar maður heyrir alla söguna, gerir maður sér grein fyrir að ákæran um kulda og gagnrýnisanda er sett fram þeim til afsökunar sem gerðust óvirkir meðlimir safnaðarins, og treysta sér ekki til að taka virkan þátt í safn- aðarstarfinu. FLOKKAR Flestir þeirra falla í eftirtalda flokka: Sumir segja: „Sama gamla fólkið sér um allt í söfnuðinum og það vill ekki hleypa neinum öðrum að. Mig langar að sinna hlutverki í söfnuðinum en þeir halda mér utan þröngs hóps áhrifamanna innan safnaðarins." John R. Martin Þegar ég kynnist þessu fólki og sögu þeirra, uppgötva ég oftast að þessir ein- staklingar áttu og eiga enn við vandamál að stríða sem brjóta í bága við megin- reglur safnaðarins svo sem tóbak, áfengi, vinnu á hvíldardögum eða annað því um líkt. Sumir segja: „Þegar maður á bágt og er langt niðri réttir söfnuðurinn ekki hjálp- Flestir peirra sem hverfa úr söfnuðinum fara ... vegna þess að þeir vilja ekki gangast undir þann sjálfsaga og skuldbindingu gagnvart Kristi sem er skilyrði þess að vera virkur meðlimur safnaðarins. arhönd, heldur leyfir manni að sigla sinn sjó." Rannsóknir mínar leiddu oftast í ljós að flest þeirra sem höfðu þessa afstöðu áttu við stöðug vandamál að stríða (fjárhagsleg, tilfinningaleg eða önnur) og að söfnuðurinn hafði hjálpað þeim oft áður, en þegar þau neituðu að hjálpa sér sjálfum, hætti söfnuðurinn að lokum að vilja axla byrðar þeirra. Aðrir segja: „Mér fannst ég aldrei vel- kominn, enginn sýndi mér umhyggju." Þegar ég kynnti mér mál þessara betur uppgötvaði ég að þátttaka þeirra var slitrótt og að þau gerðu enga tilraun til að vera hluti af heildinni en mættu gjarnan á guðsþjónustu um leið og hún hófst og fóru á meðan síðasti sálmurinn var sunginn. Augljóslega tílheyra ekki allir þessum flokkum. Samt hef ég aftur og aftur verið vitni að því, að söfnuðir okkar sýna nýjum meðlimum, unglingum og þeim sem eiga við vandamál að stríða, mikinn kærleik og stuðning. Þrátt fyrir að þessir séu yfirleitt sjálfir uppteknir og eigi jafnvel við fjárhagsleg vandamál að stríða. Þeir hafa í raun og veru nóg með sín eigin vandamál og áhyggjur. Samt gleðjast þeir yfir því að geta hjálpað og stutt aðra þannig að þeir einnig geti fundið kraft hjá Krisd til þess að vera staðfastir í honum. Er það sanngjarnt að ætlast tíl þess að þeir eigi endalaust að bera umhyggju fyrir einstaklingum sem ár eftir ár hafa ekkert persónulegt samband við það sem söfn- uðurinn stendur fyrir og trúir og sem ekki sjálfir keppa að því að vaxa persónulega í sjálfsaga og ábyrgu sambandi við Guð eða taka ábyrgð með því að styðja við söfnuð sinn? BAKDYRNAR Þeir sem segja að söfnuðurinn sjálfur sé aðal ástæðan fyrir því að fólk hverfur út um „bakdyr safnaðarins" segja í raun og veru að þetta fólk myndi verða kyrrt í söfnuðinum ef söfnuðurinn sýndi því aðeins meiri áhuga. Eg hef fundið sannleikskorn í þessu. Eftir því sem ég hef kynnst fyrrverandi safnaðarmeðlimum og gert það að mínu eigin kristni- boðverkefni að uppörva og kenna þeim, hef ég séð töluverðan fjölda koma til baka og taka þátt í samkomum safnaðarins. Samt sem áður er það í flestum tilfellum þannig að þessir einstaklingar þroskast ekki til að vera virkir þegnar safnaðanna á grundvelli sinnar eigin sannfæringar. Oft eru það kringumstæðurnar sem móta þessa einstaklinga. Um leið og umhygg- jan minnkar, eða ef presturinn eða sá sem var andlegur leiðbeinandi þeirra flytur burt hverfur þetta fólk aftur á byijun- arstigið. I ljósi þessa er það skoðun mín að við ættum að minnsta kosti að nota jafn mikinn tíma og orku í að uppörva og styrkja meðlimi safnaða okkar til andlegs vaxtar eins og við notum í það að ásaka okkur sjálf fyrir að sýna ekki nægan kær- leika og umhyggju. Eg vil hvetja söfn- uðinn til þess að einbeita sér að því að leiða þá til frelsunar sem hafa helst úr lestinni og glatað sambandi sínu við Guð. Einnig ættum við að hvetja hvert annað í söfnuðinum til að gefast Guði einlæglega og af sjálfsaga. Við skulum ekki láta ásakanir þeirra þjaka okkur um of, sem halda því fram að það sé okkur að kenna að fólk yfirgefur söfnuðinn um bak- dyrnar. Við skulum muna að jafnvel á tíma Jesú hurfu margir frá honum, all- flestir í raun, um bakdyrnar, svo margir, að hann spurði þá fáu sem eftir voru: ,Ætlið þér að fara líka?" John R. Martin er prestur adventsafn- aSarins í Greeley, Colorado U.S.A. Þýðendur: Harpa ogFrodeJakobsen. 4 AdventFréttir

x

Aðventfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.