Aðventfréttir - 01.04.1996, Qupperneq 6
Að leiða
BÖRNIN
TIL KRISTS
Ellefu atriði sem stuðla að því
að gera kristilegt líferni ómótstœðilegt.
Richard og Brenda Duerksen
að að veita börnunum okkar
upplýsingar um Guð nægir ekki
til að hafa áhrif á þau til að kjósa
Krist. Til þess þurfum við ein-
faldlega að gera kristilegt líferni
ómótstæðilegt; við þurfum sjálf að lifa lífi
sem er fullt af innihaldsríkum athöfnum
og viðhorfum sem miða að því að gefa til
kynna hversu ánægjulegt það sé að vera
vinur Guðs og að njóta þess heiðurs að
vera í hópi barna hans.
Omögulegt? Vissulega, þegar við reyn-
um að gera slíkt án máttar Guðs. En með
Guðs hjálp er allt mögulegt, jafnvel svo að
hrifning okkar yfir því að tilheyra Kristi
smitar aðra.
Skoðið eftirfarandi 11 leiðbeiningar
sem við höfum notað til þess að hvetja
börnin okkar til þess að læra að elska
Krist. Þau eru núna 16, 18 og 20 ára
gömul.
1. BÆN
Ekkert af því sem við gerum með bör-
nunum okkar, eða fyrir þau, á möguleika
til að ná árangri sem varir inn í eilífðina
nema því aðeins að við séum í sambandi
við mátt Guðs. Ellen White skrifaði að við
verðum að biðja mörgum sinnum á dag
fyrir okkar eigin afturhvarfi og um-
breytingu. Við verðum að biðja um alla þá
visku og sköpunarhæfileika sem með þarf
til að mála skýra mynd af Jesú Kristi fyrir
börnunum okkar. „Mótaðu mig, slípaðu
mig og gefðu mér hreint og heilagt
andrúmsloft, þar sem straumar kærleika
þíns flæða í gegnum sál mína" (Christ's
Object Lessons, bls. 159). Guð þráir að
frelsa. Hann bíður þess eins að við biðjum
hann.
2. HEFÐIR
A okkar heimili höfum við leitast við að
móta hefðir þar sem Kristur skipar
heiðursess; reglubundna, vel undirbúna
og fastmótaða viðburði sem rísa sem
sterkir stólpar andlegs stöðugleika á
heimili okkar. Hér skal nefna nokkra
þeirra:
Það þarf ekki annað en að nefna
Kristalhejdina á heimilinu okkar og um
leið finnum við fyrir ísköldu vatni
Kristalárinnar í Koloradófýlki. Þessi á er
ekki vatnsmikil þar sem hún rennur í
gegnum yfirgefið fjallaþorpið sem ber
nafnið Ki ystall.
Rétt áður en komið er inn í fjallabæinn
er farið framhjá myllunni, en neðan við
hana er ískaldur og iðandi hylur árinnar
þar sem tvö af börnunum okkar voru
skírð. Sú staðreynd gerir þennan stað í
okkar huga að stað endurnýjunar, hvíldar
og endurfæðingar.
Hringborðshejdin er daglegur viðburður.
Komdu inn í setustofuna okkar og þar
muntu finna hringlaga borð úr askviði
sem er tæplega tveir metrar í þvermál.
Eftir 15 ára notkun við alls kyns verkefni,
handavinnu, módelsmíði, skólaverkefni,
leiki og máltíðir, er í raun kominn tími til
þess að gera borðið upp. En við elskum
þetta snjáða borð þar sem hver rispa
kallar fram minningar. Hérna byijum við
hvern dag með því að biðja saman. Og á
hveiju kvöldi tölum við saman um allt
mögulegt kringum þetta borð. Við það
eiga sér stað líflegar umræður, vinsam-
legar kappræður og hér gerum viö okkur
glaðan dag.
Frelsið er einhver
sú besta
(og mest ógnvekjandi)
gjöf sem við getum
gefið börnunum
okkar.
Hringborðsathafnirnar okkar taka mið
af þeim mörgu dögum og kvöldum sem
Jesús átti með lærisveinum sínum. Þegar
öllu er á botninn hvolft, er þá ekki upp-
eldi barna áþekkt og þjálfun postula?
Hver-med-shiu-neji stundin hefur átt sér
stað hér á heimilinu á hverju kvöldi í tæp
20 ár. Við kijúpum umhverfis sófaborðið
(með hundum, köttum, böngsum og bör-
num) og biðjum hvert fyrir sig. Síðan syn-
gjum við „Fyrr en geng ég nú til náða."
Yfirleitt bytjum við sönginn sameiginlega
og gengur oft brösuglega að finna rétta
tóninn. Þá byijar einhver að geispa og
síðan annar og fyrr en varir er þetta orðið
að tvísöng eða jafnvel einsöng með mis-
jöfnum tóngæðum. Oft endar þetta allt
saman með allsherjar hlátri. Og þótt við
séum ekki slípaður kór þá erum við tengd
sterkari fjölskylduböndum.
Lestrarvenjan. Lestur með börnunum á
andlegum bókum er nauðsynlegur til
þess að boðskapur þeirra fesd rætur í
hjörtum barnanna. Börnin okkar eiga sitt
eigið fjársjóðsafn sérstakra bóka sem við
höfum lesið saman. Snjáða fjölskildu-
biblían er sameiginlegur fjársjóður okkar
allra þar sem öll bestu orðin eru
undirstrikuð. Sérstaka minningu eigum
við foreldrarnir um þá kvöldstund þegar
Júlía uppgötvaði hvað fólst í kærleika
Guðs þegar við lásum um dauða Aslans á
steinborðinu í Narnía sögunum.
3. FRÍIN
Sumarfríin og frídagarnir gáfu okkur
tækifæri til að leggja hið daglega amstur
tíl hliðar og beina athyglinni að fjölskyld-
unni. Hvort sem fríin eru löng eða stutt
og hvar sem þeirra er notið, þá eru þetta
kjörin tilefni til þess að gera kristin-
dóminn aðlaðandi.
A meðal bestu frístunda okkar eru hjól-
reiðaferðirnar eftir hádegi á hvíldar-
dögum þegar við áðum til að spjalla
saman um andleg og félagsleg mál. A
meðal minninganna eru útilegurnar og
snjósleðaferðirnar og blómaleiðangr-
arnir og þegar við lentum í mýflugnaplág-
unni. Hver minning kallar fram bros á vör
eða hlýjar tilfinningar um yndislegar
stundir á andlegu nótunum sem við
áttum saman.
4. FRELSI
Við uppgötvuðum að frelsið er einhver
sú besta (og mest ógnvekjandi) gjöf sem
við getum gefið börnunum okkar. En það
frelsi sem við veitum þeim verður að
6
AðventFréttir