Aðventfréttir - 01.04.1996, Blaðsíða 7
endurspegla það frelsi sem Guð gefur
okkur. Um þetta segir Pétur postuli: „Þér
eruð fijálsir menn, hafið ekki frelsið að
hjúp fyrir vonskuna, breytið heldur sem
þjónar Guðs" lPt 2.16.
Við getum kynnt Guð fyrir börnunum
okkar sem kröfuharðan og geðstirðan
öldung sem skerðir frelsi okkar, eða sem
mildan Guð sem fyrirgefur brosandi er
við lærum að setja frelsi okkar vissar
skorður og beina því til óeigingjarnrar
þjónustu.
Þegar \ið erum spurð: „Hvað ætti ég að
gera?" eða „Hvað má ég gera?" drögum
við gjarnan upp þijár meginreglur sem
koma í formi spurninga. 1. Mun það
verða mér til góðs? 2. Mun það geta náð
tökum á mér? 3. Mun það leiða til
blessunar? Við höfum komist að raun um
að þessar spurningar hafa sérstaklega
reynst hjálplegar á fimm eftirfarandi
sviðum:
Hár og Ukami. „Þú hefur frelsi til að gera
hvað sem er við líkama þinn svo fram-
arlega sem það er ekki óafturkallanlegt.
Þú mátt hafa langt eða stutt hár, litað og
greitt eins og þú vilt, jafnvel snoða þig.
Þetta er þitt hár og þú verður að vera
sátt(ur) við það sem þú velur. Líkaminn
er líka þinn eiginn, en þú mátt ekki
stinga göt á hann né gera aðrar þær
breytingar á honum sem verða varanleg-
ar. Þótt þér þætti slíkt gott þessa stundina
er alls ekki víst að þú viljir búa við það
síðar."
Föt. „Með klæðavali þínu segir þú hver
þú ert og hvaða viðhorf þú hefur til líf-
sins. Okkar einu reglur um fötin snúast
um hreinlæti og hógværð. Þetta merkir
að við þrösum dálítið um t.d. hvort þessi
eða hin blússan sé viðeigandi og við
viljum gjarnan að flíkurnar séu þvegnar
fyrir næstu notkun. Að öðru leyti eru
þetta þín föt, svo að þér er fijálst að velja."
Tónlist. „Þar sem hver kynslóð lýsir til-
finningum sínum á mismunandi hátt í
tónlist, þá heyrast margvísleg hljóð og
sum mjög villt! Við skulum því hlusta
saman. A tónlist sem foreldrar okkar
myndu líklegast aldrei hafa valið en tón-
list sem segið þér eitthvað. En gerðu það
svo fyrir mig að hlusta með okkur á sí-
gilda tónlist og Andy Williams.
Við skoðum saman hvað Kristur átti við
þegar hann sagði að líkami okkar væri
musteri Heilags anda. Við spjöllum um
ljóðagerð og rytma, hljóðstyrk og tónlis-
tarflytjendur og hvar sé viðeigandi eða
óviðeigandi að flytja slíka tónlist. Guð
gefur þér frelsi til þess að velja af
gaumgæfni það sem þú matar huga þinn
á. Hið sama á við um bækur, myndbönd
og Alnetið. ,AHt sem er satt...göfugt, rétt
og hreint...""
Framtíðin. „Þú ert frjáls til þess að verða
það sem þú vilt sjálf(ur). Láttu þig drey-
ma. Prófaðu jrig áfram. Lærðu af
reynslunni. Veldu! Það er okkar hlutverk
að hjálpa þér til að uppgötva þá mörgu
hæfileika sem Guð hefur gefið þér og að
beina þér á þær brautir þar sem þú getur
best notið þeirra. Þú munt aldrei heyra
okkur segja: „Það væri gaman ef þú yrðir
hjúkrunarfræðingur eins og mamma
þín."
Vinir. „Veldu vini þína vel og komdu oft
með þá heim. Við viljum að þeim líði eins
vel hjá okkur eins og með þér.
Frelsi. „Oft á dag veitir Guð þér gjöf per-
sónulegs frelsis. En samfara því veitir
hann líka fullvissu, uppörvun og
fyrirgefningu. Þegar óvinurinn býður þér
upp á ómótstæðilegar freistingar, býður
Guð þér upp á aðlaðandi „undan-
komuleiðir". Alveg eins og foreldrar þínir
eru líka að reyna að gera."
5. KÆRLEIKUR
Munið, foreldrar, að markmið okkar er
að gera Krist og persónulegt samband við
hann ómótstæðilegt. Þetta þýðir að kær-
leiki Krists á að einkenna samskipti okkar
við börnin. Hvort sem okkur líkar það
betur eða verr, þá finna börnin skýrustu
myndina af Guði í okkur sjálfum. Páll
postuli segir í 2Kor 5.20 að við séum
„erindrekar Krists, eins og það væri Guð
sem áminnti, þegar vér áminnum." Hvílík
ógnvekjandi forréttindi!
Kœrleikur er krejjandí. Hann ætlast til
þess að foreldrar mætir á skólasýningar
og íþróttakappleiki.
Kœrleikur er heyrnarlaus. Hann sýnir stolt
og hrósar eftir íiðlutónleika.
Kœrleikur er blindur. Hann þakkar ákaft
fyrir brennifórnirnar senr börnin færa
þér á sunnudagsmorgnum.
Kœrleikur er þögull. Sérstaklega á meðan
táningurinn lærir að aka.
Kærliekur er margorður. Hann minnir
stöðugt á tilveru sína.
Kœrleikur er hlýr. Hann kemur umvafinn
örmum aðdáunarinnar.
Kærleikur er græðandi. Líka þegar skrám-
urnar orsakast af óhlýðni.
Kcerleikur er einlægur. Hann elskar ein-
faldlega af því að hann er kærleikur.
Kœrleikur endursþeglar. Hann líkist mjög
kærleika Guðs - klæddur holdi for-
eldranna.
6. AGI
Agi sem megnar að umbreyta lífi er
gerður úr efniviði takmarkalauss kær-
leika. Vissulega verður sumum á að reyna
að hafa áhrif á hegðun með valds-
mannlegu hrópi, eða alvarlegum fyrir-
lestri, eða jafnvel rassskelli, en við getum
aðeins haft jákvæð áhrif á lyndiseinkunn
með kærleika. Með aga læra börnin að
laðast að Kristi eins og lærisveinar
Meistarans. Hann lagði meiri áherslu á að
sýna „betri leiðina" en að hegna fýrir
ranga hegðun.
AðventFréttir
7