Aðventfréttir - 01.04.1996, Síða 10

Aðventfréttir - 01.04.1996, Síða 10
(fiiminy. a/< Jónheiður Guðbrandsdóttir Fœdd: 13. febrúar 1893 Dáin: 8. júlí 1996 Jónheiður Guðbrandsdótdr lést 8. júlí s.l. á Dvalarheimili aldraðra, Hrafnistu, í Reykjavík 103 ára að aldri. Hún fæddist 15. febrúar 1893 á Kelppjárnsreykjum í Reykjadal í Borgarfirði. Faðir hennar var Guðbrandur Guðmundsson bóndi á Kleppjárnsreykjum og söðlasmiður og móðir hennar var Guðrún Jónatansdóttir. I systkinahópnum voru tveir drengir og ein stúlka auk Jónheiðar sem var næst elst og lifði systkini sín öll. fónheiður ólst upp í föðurgarði en 15 ára að aldri fór hún í kaupamennsku til Reykjavíkur og var þar í vist. Nokkrum árum síðar fékk hún tæk- ifæri til að læra fatasaum á Akranesi. Þar kynndst Jónheiður Jóni Ásbirni Jónssyni frá Bergi sem var sjómaður og felldu þau hugi saman. Þau gifstust 16. nóvember 1913. Fyrst um sinn bjuggu þau á Akranesi og þar fæddist fyrsti sonur þeirra hjóna, Holberg. Fjölskyldan fluttust síðar til Reykjavíkur þar sem þeim fæddust tvíbur- arnir Adolf og Reykdal og stúlkurnar tvær, Ester og Kristrún. Arið 1933 flutdst fjölskyldan frá Rcykjavík og dvaldist ýmist fyrir norðan á Siglufirði, suður með sjó í Sandgerði eða fyrir vestan á Hnífsdal allt eftir aflabrögðum á erfiðum tímum. 1934 fluttust þau síðan til Vestmannaeyja þar sem þau dvöldust í 14 ár. Um dvölina í Vestmannaeyjum sagði Jónheiður að það hefðu verið bestu árin hennar. Síðar flutt- ust þau til Ytri-Narðvíkur og svo til Reykjavíkur aftur þar sem þau bjuggu til æviloka. Mann sinn missti Jónheiður 18. júní 1956 en frá 1967 bjó hún hjá Kristrúnu, yngstu dóttur sinni í Reykjavík í 15 ár þar til hún flutdst á dvalarheimili aldraðra að Hrafnistu 1982, þá nálægt því að vera níræð. Jónheiður var mjög trúuð kona og ræktaði hún alla tíð samfélag sitt við Drottin enda mótaði trúin líf hennar og breytni. Hún treysd því að þrátt fyrir erfiðleika og andstreymi og óöryggi sem hún fékk að reyna í ríkum mæli sem sjó- mannskona á Islandi á fyrri hluta |tessarar aldar væri Guð með henni. Hún var sann- ur Guðs vinur. Jónheiður kynntist aðventboðskapnum í Reykjavík og tók skírn hjá O.J. Olsen 10. júní 1922 og fylgdi söfnuðinum allt til æviloka af mikilli tryggð og trúmennsku. Nú er hún sofnuð þessi góða og trúaða kona. Hún hvílir í fullvissunni um að mæta frelsara sínum á hinum mikla upprisumorgni í fylgd með ástvinum sínum sem var hennar lífsverk að leiða á vegum Drottins og arfleifð hennar og afrek eru okkur öllum blessun og hvatn- ing. Trúsystkinin og söfnuðurinn kveður mcð virðingu og vottar ástvinum samúð. Utförin fór fram frá Aðventkirkjunni í Reykjavík 16. júlí s.l. Undirritaður jarð- setd. Blessuð sé minnig hinnar látnu. Eric Gubmundsson Tómas Jónsson Fœddur: 28. mars 1926 Dáinn: 9. júlí 1996 Tómas fæddist að Arnarstöðum, Núpasveit, Presthólahreppi í Norður- Þingeyjarsýslu. Foreldrar hans voru Jón Tómasson bóndi Arnarstöðum og Guð- rún Antonía Jónsdótdr húsfreyja. Hann var sjöundi í níu systkina hópi - systur fimm, bræður fjórir. Þtjú þeirra eru enn á lífi - þrjár systur og einn bróðir. Tilskyldu barnanámi lauk Tómas í heimahéraði, fór þaðan til Reykjavíkur lagði fyrir sig bifvélavirkjanám við Iðn- skóla Reykjavíkur og varð bifVélavirkjun ævistarf hans. Hann gekk í Aðvent- söfnuðinn 4. ntaí 1946. Arið 1951 fór hann til Bandaríkjanna og stundaði iðn sína þar upp frá því. Þann 7. júlí 1958 gekk hann að eiga Carol Lukas Jónsson. Þeirra fyrsta heimili var í Takoma Park í Washington D.C. Þaðan fiuttu þau til Andrews University í Michigan en þar veitti Tómas forstöðu viðgerðaverkstæði og bensínstöð háskól- ans. Aftur fluttu þau búferlum og þá til South Western College Sjöunda dags aðvendsta í Keen í Texas. Þar veitti hann einnig viðgerðaverkstæði og bensínstöð skólans forstöðu. Tómasi og Carol varð tveggja barna auðið. Rebekka, gift Allan Zartman. Þau eiga þrjú börn, Tómas, Kendra og Chandra. David, kvæntur Rida Jónsson. Þau hafa nú slitið samvistum. Þrír synir þeirra eru: Da\ id, Michael og Christop- her. Eiginkonu sína misstí Tómas árið 1979. Tómas var hraustur að eðlisfari og lengst af við góða líðan. Arið 1991 fékk hann snert af hjartaslagi og var eftir það að hálfu eftirlaunamaður. Vann hann upp frá því við léttari störf sem húsvörður, ræstinga- eftirlits- og viðgerðamaður stórra veidngastofnana. A vinnustað sunnudaginn 7. júlí s.l. fékk hann alvar- legt heilablóðfall og lést þriðjudaginn þann 9. sama mánaðar. I heimaborg sinni, Keen í Texas var hann jarðsettur þann 12. júlí s.l. Fjöldi manna var við útförina og luku allir lofs- orði á þennan Islending fyrir drengskap- ar, verkmennsku og vinsemdar sakir. Samkvæmt margteknu loforði jarðsettí undirritaður og söng yfir honum, útför með íslensku sniði í Texas og féll mönn- um vel í geð. Hér er góður drengur genginn og kvaddur. Astvinirnir þakka öllum sem sýndu honum vinsemd og létu gott orð til hans liggja. Eg bið Guð að hefja þau öll yfir sláandi harm og trega í fullvissunni um sæla endurfundi á hinni Nýju jörð. Blessuð sé minning Tómasar bróður míns. Jón Hjörleifur Jónsson Daníel Guðni Guðmundsson Fæddur: 14. nóvember 1925 Dáinn: 19. júlí 1996 Daníel Guðni Guðmundsson lést þ. 19. júlí s.l. í Borgarspítalanum en hann fædd- ist 14. nóvember 1925 í Hafnarfirði. Foreldrar hans voru hjónin Guðmundur Einarsson frá Nýlendu í Garði og Sigríður Guðmundsdóttir ættuð úr Borgarfirði. I systkinahópnum voru 12 börn, 6 drengir og 6 stúlkur, þar af eru 5 ládn. Daníel var sá tíundi í röðinni. Fyrstu ár ætinnar ólst Daníel upp í Hafnarfirði, en 10 ára að aldri flutdst hann með fjölskildu sinni austur í Hveragerði þar sem þau bjuggu um tíma. Síðar hófu þau búskap og árið 1942 sett- 10 AðventFréttir

x

Aðventfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.