Aðventfréttir - 01.04.1996, Síða 11

Aðventfréttir - 01.04.1996, Síða 11
 ust þau að lokum að á Hólum í Bisk- upstungum. Daníel yfirgaf foreldrahúsin og fór til Vestmannacyja til að leita sér atvinnu. Hér kynntist hann eftirlifandi eiginkonu sinni Mörtu Hjartardóttur. Þau giftu sig í desember 1946 og bjuggu í Vestmannaeyjum fram til ársins 1973 þegar gos varð í Heimaey, að undanskildu fyrsta hjúskaparárinu þegar þau bjuggu í Kópavogi. Þau settust að í Þorlákshöfn eftir að þau fluttust frá Eyjum en fluttu til Reykjavíkur 1980 og bjuggu þar síðan. 1 Vestmannaeyjum og Þorlákshöfn starfaði Daníel sem vörubílastjóri. En ávallt stundaði hann einnig búskap sem var alla tíð mikið áhugamál hans. Hann rak meðal annars stórt kúabú í Eyjum, Dalabúið, um tíma með vini sínum Magnúsi Magnússyni. Þá rak hann hænsnabú og kindur áttí hann alla tíð. I Reykjavík starfaði Daníel við innheimtu- störf og var matsmaður hjá trygginga- félaginu Abyrgð. Þeim Daníel og Mörtu varð fimm barna auðið. Þau eru Hafdís, Guðbjartur, Guðmundur Bjarni, Daníel Guðni og yngstur er Hjörtur Kristján. Arið 1945 þ. 9. febrúar tók Daníel skírn í söfnuð Sjöunda dags aðventista hjá O.J.Olsen. 1947 gekk Marta konan hans einnig í þennan söfnuð og fylgdu þau söfnuðinum trúfastlega upp frá því. Daníel, eða Dalli eins og hann var ávallt kallaður, var mikill og sterkur persónu- leiki, mikill elju og atorkumaður. Hann unni því að vera innan um fólk og skapaði sér traust vina sinna og til hans var leitað um ráð og aðstoð og ráðum hans treyst og þeim fylgt. Hann var djarfur og áræðinn í framkvæmdum og afar verklaginn eins og þeir bræður allir. En sérstaklega lá það honum á hjarta að sinna þeim og rétta þeim hjálparhönd sem minna máttu sín. Börnin minnast föður síns sem ákveðnum en afar kærleiksríkum föður sem, þráttfyrir miklavinnu og annríki, lét sér afar annt um alla hagi þeirra og þráði að rétta þeim hjálparhönd. Þau hjónin voru einstaklega samrýmd og unnu ávallt náið saman og saman fóru þau nær allra ferða sinna. Nú er hann sofnaður og líf hans falið frelsaranum, og nú bíður hann upprisunnar að ástkær frelsari hans kalli hann fram úr gröfinni og bjóði honum, svo og öllum sem vænta komu hans, inn til dýrðar sinnar. Söfnuðurinn kveður og vottar ásvinum innilega samúð. Utförin fór fram frá Aðventkirkjunni í Reykjavík 26. júlí s.l. við fjölmenni. Undirritaður jarðsettí. Blessuð sé minning hins látna. Eric Guðmundsson Kristjana Steinþórsdóttir Fœdd: 11. desember 1900 Dáin: 5. október 1996 Kristjana Steinþórsdóttir lést þann 5. október s.l. að dvalar- og hjúkrunarheim- ilinu Kumbaravogi. Hún fæddist á Þverá í Ólafsfirði þ. 11. desember 1900. Hún var elst 5 barna þeirra hjónanna Steinþórs Þorsteinssonar bónda og sjómanns frá Vík í Héðinsfirði og Kristjönu Jónsdóttur, húsfreyju. Þegar Kristjana var barn að aldri fluttist fjölskyldan til Héðinsfjarðar og bjó í Vík. Hún var einungis 11 ára að aldri þegar móðir hennar dó og varð hún þá, með hjálp nágranna að sjá um heimilið. Faðir hennar giftist aftur og þá fór Kristjana til hjónanna Magneu Rögnvaldsóttur og Jóns Þorkelssonar í Ólafsfirði og þar dvaldi hún til 18 ára aldurs. Þá fór hún til Siglufjarðar og stundaði fiskvinnslustörf, síldarvinnu og húshjálp. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður tókst Kristjönu að hefja hjúkrunarnám í Reykjavík en alvarleg veikindi hömluðu henni. Þetta tímabil starfaði hún á ýmsum sjúkrahúsum: Vífilstöðum, Kleppsspítalanum og sjúkrahúsinu á Isafirði og árið 1927 útskrifaðist hún sem héraðshjúkrunarkona. Hún átti þá ekki annað eftir en lokaáfanga hjúkrunar- námsins í Danmörku, en það varð þó aldrei hlutskipti hennar að ná þeim á- fanga. Eftir þetta stundaði Krirstjana heimahjúkrunarstörf bæði í Reykjavík og á Siglufirði. Ung kynntist Kristjana boðskap aðventsafnaðarins og 24 ára gekk hún í söfnuðinn og upp frá því átti safn- aðarstarfið afar ríkann þátt í lífi hennar. Svo kom að hún tók upp launuð störf fyrir söfnuðinn á skrifstofu safnaðarins sem hún sinnti í um áratug. 1952 giftist Kristjana Sigfúsi Hall- grímssyni, kennara og presti hjá aðventsöfnuðinum en Sigfús lést 13. október 1991. Þau stofnuðu fyrst heimili sitt í Reykjavík en það varð hlutskipti þeirra að búa mjög víða á landinu þar sem staf Sigfúsar kallaði á þjónustu hans. Þau voru í Vestmannaeyjum, Hlíðar- dalsskóla í Ölfusi, fyrir austan á Fáskúðsfirði og Eskifirði, fyrir norðan á Akureyri, Dalvík, Siglufirði og Skaga- strönd. Alls staðar vann Kristjana með manni sínum og studdi hann í starfi með góðvild sinni í garð allra og mikilli strafs- orku sinni. Þau voru reiðubúin að búa og starfa við erfið kjör að því málefni sem var þeim kærast. Aftur og aftur létu j)au hjónin safnaðarstarfið og hag trúsystkina ganga fýrir persónulegum hagsmunum. 1975 fiuttust þau hjónin að Kumb- aravogi, Stokkseyri. Fimm árum síðar hurfu þau aftur til Reykjavíkur en íluttust svo aftur til Kumbaravogs 1984 fyrir fullt og allt og bjuggu þar til æviloka. Kristjönu varð ekki barna auðið sjálfri en átti stjúpdóttur, Önnu, dóttur Sigfúsar og fýrri konu hans Kristínar Sigurðardóttur sem lést 1949. Anna er gift Svein Johan- sen frá Noregi, presti hjá aðvent- söfnuðinum. Kristjana naut einnig syst- kinabarna sinna og fjölskyldna þeirra. Sérstakt samband var milli hennar og syst- urdóttur hennar og nöfnu sem var henni sem ástríkasta dóttir. Ekki hvað minnst munaði um þetta síðustu árin þegar ellin færðist yfir og Kristjana var orðin ein. Nú er hún sofnuð, þessi góða og trúaða kona og líf hennar falið frelsaranum. Trúsystkini hennar og söfnuðurinn kveður og þakkar kærleiksríkt líf og dygga [rjónustu og vottar ástvinum samúð. Utförin fór fram frá Aðventkirkjunni 15. október s.l. Undirritaður jarðsetti. Blessuð sé minning hinnar látnu. Eric Guðmundsson Þakkir Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýju við andlát og greftrun Kiistjönu Steinþórsdóttur. Sérstakar þakkir vil ég færa Eric Guðmundssyni, Jóni Hj. Jónssyni, Krystynu Cortes og kór Aðvent- kirkjunnar fýrir tilstuðlan þeirra við að gera útförina hátíðlega og fagra. Guð blessi ykkur öll. Anna Johansen. AðventFréttir 11

x

Aðventfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.