Bæjarblaðið - 14.07.1989, Blaðsíða 3

Bæjarblaðið - 14.07.1989, Blaðsíða 3
Bæjarblaðið frjálst óháð 3 777 hamingju Bœjarblaðið Njarðvík 13. júlí 1989 Borist hafa fréttir þess efnis að nokkrar sviptingar séu að verða í hlaða- heiminum hér á Suðurnesjum. Slíkt œtti ekki að koma neinum á óvart nú á tímum sviptinga íhvers konar rekstri. Harðnandisamkeppni og hækkandi reksturskostnaður fyrirtœkja verður óhjákvœmilega til þess að þeir sem ekki hafa þvi styrkari grundvöll undir rekstri sínum eiga á hœttu að verða undir. Það er því skemmtilegt til þess að vita þegar ungir og athafnasamir menn láta ekki svartsýnis- og uppgjafartal hafa áhrif á sig, en leggja ótrauðir og fullir bjartsýni út í útgáfu sem þessa, með það að leiðarljósi að gera betur, finna nýja leiðir til að höfða til hins almenna lesanda og sinna þörfum hans. Ég vil nota þetta tœkifœri til að fœra aðstandendum Bœjarblaðsins hamingjuóskir í tilefni útáfu 1. tölublaðsins. Ég vona aðykkur takist það œtlunarverk ykkar að birta íþessu blaðisem fjölbreytilegast efni, efnisem almenningur hér á Suðurnesjum vill lesa ásamt með gagnlegum upplýs- ingum sem fólk þarf og vill gjarna hafa við höndina daglega. Ég vona að efnistök ykkar sýni metnað og jákvœtt hugarfar og þá er ég viss um að ykkur mun farnast vel. Oddur Einarsson bœjarstjóri STAPAPRENT, prentsmiðja í alfaraleið. Brekkustíg 39 - Njarðvík - Sími 14388 Messur Keflavíkurkirkja Guðsþjónusta kl. 9:30 n.k. sunnudag. Organisti Örn Falkn- er. Y tri-Nj arð ví kurkirkj a Guðsþjónusta sunnudaginn 16. júlí kl. 11.00. Kór Keflavíkur- kirkju syngur. Útskálakirkja Guðsþjónusta n.k. sunnudag kl. 11:00 Hvalsneskirkja Guðsþjónusta kl. 14:00 n.k. sunnudag. Maður vikunnar MÁR Hermannsson UMFK bætti árangur sinn í 10 km hlaupi um 10 sekúndur er hann sigraði á laugar- dagskvöldið í úrtökuhlaupi fyrir Evrópubikarkeppnina í Dublin. Már hljóp á 31:22,7 minútum, sem er fimmti besti árangur íslendings á vegalengdinni frá upphafi.

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/975

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.