Bæjarblaðið - 14.07.1989, Blaðsíða 7
Bæjarblaðið frjálst óháð 7
tllVÍÖKIK
Fyrsti sigur sumarsins í höfn. Hér hafa þeir bræöur tekið á móti verðlaunum eftir sigur í Porshe-
rallinu, fyrstu keppni mótsins. Mynd: Rúnarlngibergsson.
Diskótek
föstudagskvöld.
Hljómsveitin Sjöund
laugardagskvöld.
Sjáumst!
,,Ætluðum okkur alltaf í
toppbaráttuna“
— segja þeir bræður Ólafur og Halldór
Sigurjónssynir, en þeir eru efstir í
Meistarakeppni rallökumanna
Byggöasafn Suöurnesja
ni i« \n ii iii
,( L/ n 1 1 rLLíl b VJ O
Opiö á laugardögum kl. 14 - 16. Aðrir timar eftir samkomulagi. Upplýsingar i símum 13155, 11555 og 11769.
Þeir Bílbótarbræður í Njarðvík, Ólafur og
Halldór Sigurjónssynir hafa komiö mjög á óvart
i Rallý-keppnum sumarsins. Þeir tróna nú lang
efstir á íslandsmótinu með fullt hús stiga, eða 40
stig eftir tvær fyrstu keppnirnar.
„Þetta er í fyrsta skipti sem við keppum á
samkeppnisfærum bíl“, sögðu þeir bræður í
samtali við Bæjarbiaðið. „Gamli Escordinn
okkar var 150 hestöfl en Talbot Lótus bíllinn
sem við keppum á núna er 250 hestöfl, svo við
bættum töluvert við okkur. Bíllinn hefur reynst
vel þrátt fyrir smá bilanir í síðustu keppni, en
þær komu ekki í veg fyrir að við gátum keyrt bíl-
inn til sigurs“.
Voruð þið búnir að stefna að þessu i sumar,
eða kom þessi framganga ykkar, ykkur sjálfum
á óvart?
„Við ætluðum okkur alltaf í toppbaráttuna
og stefndum að því. En hins vegar gerðum við
ekki ráð fyrir svona góðu gengi. Við höfum náð
fullu h.úsi stiga okkur til ánægju en næsti bíll á
eftir er með 27 stig, svo við getum ekki annað en
verið ánægðir með þennan árangur. Það má eig-
inlega segja að við séum loks að uppskera það
sem við höfum sáð undanfarin 10 ár, en við höf-
um báðir verið með annan fótinn í þessu meira
og minna í þennan tíma“.
„Verður kannski það sama uppi á teningnum
með ykkur og bræðuma landsfrægu sem voru
ósigrandi í mörg ár?“
„Nei, ætli það“, svöruðu þeir bræður að lok-
um og brostu í kampinn.
Auglýsingasími
Bæjarblaðsins er
14388