Verktækni - 01.02.2008, Síða 1
Kjaramál KTFÍ og SV
4
Örtæknikjarni
8
Menntunarkröfur
10
Hækkanir hjá sjóðum KTFÍ
7
Frá formanni VFÍ
12
1 . t b l . 1 4 . á r g . 2 0 0 8
AFL 20 ára
6
Lj
ós
m
/M
or
gu
nb
la
ði
ð
Snjóflóðavarnir – umhverfi og samfélag
Verkfræðingafélag Íslands og Tækni
fræðingafélag Íslands, í samstarfi við
Umhverfisráðuneytið, Vegagerðina,
Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnun,
Landsnet og Samband íslenskra sveit
arfélaga standa fyrir alþjóðlegri ráðstefnu á
Egilsstöðum dagana 11. – 14. mars nk. um
málefni snjóflóðavarna, mannvirkjagerð
ar, umhverfis og samfélags. Einnig koma
að ráðstefnunni Norges Geotekniske
Institutt (NGI) og Wilbauch und Lawinen
Verbaaung (WLV) sem hafa komið að
mörgum snjóflóðaverkefnum hér á landi
á undanförnum árum. Félagasamtökin
International Glaciological Society (IGS)
eru sérstakur stuðningsaðili ráðstefnunnar.
Frá því að mannskæðar snjóflóðahrinur
gengu yfir landið árið 1995 hefur áhersla
verið lögð á rannsóknir og þróun á sviði
snjóflóðamála og markvissar aðgerðir til
þess að draga úr snjóflóðahættu. Þær hafa
falist í hættumati, uppbyggingu varn
arvirkja og flutningi byggðar af hættusvæð
um. Eftir þessu hefur verið tekið víða um
lönd.
Nokkuð hefur verið fjallað um þau
miklu mannvirki sem byggð hafa verið
en minna hefur borið á umfjöllun um
umhverfi, skipulag og samfélagslega þætti
sem þessi mannvirki hafa áhrif á. Markmið
ráðstefnunnar er meðal annars að fá fram
þverfaglega umræðu um þetta málefni þar
sem ólík sjónarhorn eru kynnt eða krufin
til mergjar.
Enskt heiti ráðstefnunnar er:
International Symposium on Mitigative
Measures against Snow Avalanches.
Nánari upplýsingar eru á vef ráðstefn
unnar: www.orion.is/snow