Verktækni - 01.02.2008, Síða 6
/ VERKTÆKNI
Verkfræðistofan AFL 20 ára
Munið heimasíður félaganna
www.sv.is
www.vfi.is
www.tfi.is
Verkfræðistofan AFL fagn-
aði nýverið 20 ára afmælinu.
Á sama tíma var því fagnað
að síðastliðið sumar hlaut AFL
gæðavottun samkvæmt ÍST EN
ISO 9001:2000 staðlinum. AFL
hefur áratuga reynslu á svið-
um orkumála, sjálfvirkni- og
tölvustýringa, hugbúnaðargerðar
og raflagnahönnunar og nær
gæðavottunin yfir alla starfsemi
fyrirtækisins.
Starfsemi AFLs skiptist í fimm meg-
insvið: raforkusvið, iðnaðar- og hús-
stjórnarsvið, byggingasvið, hugbúnaðar-
svið og orkumála og tölfræðisvið.
Innan orkusviðs eru verkefnin flest
tengd flutningskerfum raforku og eru
unnin fyrir innlenda og erlenda við-
skiptavini. Þar er um er að ræða áætlanir
um uppbyggingu flutningskerfa, hönnun
flutningsmannvirkja og sérhæfðar athug-
anir á raforkukerfum. Einnig hefur verið
unnið að mörgum athugunum á aflvægi
kerfisins og skoðuð aflþörf í virkjunum.
Á orkumála og tölfræðisviði er unnið
að verkefnum á sviði orkuspáa, skráning-
ar og úrvinnslu rekstrartruflana, gjald-
skráa raforkufyrirtækja og skipulagsmála
raforkuiðnaðarins.
Á iðnaðar- og hússtjórnarsviði er til
staðar mikil þekking á forritun sjálf-
virkra stjórnkerfa fyrir varmaorkuver,
hitaveitur, iðnfyrirtæki og hússtjórn-
arkerfi. Verkefni fyrirtæksins á þessu
sviði eru m.a. stjórnkerfi fyrir dælustöðv-
ar hitaveitu hjá Orkuveitu Reykjavíkur,
stjórnkerfi fyrir Nesjavallavirkjun og
fjöldi kerfa fyrir áliðnað sem og annan
iðnað. Þróun og uppsetning hússtjórn-
kerfa hefur einnig verið stór þáttur á
þessu sviði fyrirtækisins en þar má nefna
hússtjórnarkerfi í Ráðhúsi Reykjavíkur,
Flugstöð Leifs Eiríkssonar og í Perlunni.
Á byggingarsviði er unnið að hönn-
un raflagna og eftirliti með raflögnum.
Verkefni á þessu sviði er mörg en helst
Gúmmí undirlegg
Fyrir hellur
og flísar á
þök, svalir og
veröndina
Gúmmí undirleggin eru sett undir hornin
á hellunum og lifta þeim upp um 7mm
þá rennur vatnið undir hellunum en
ekki ofan á þeim
Á undirleggjunum er stýring sem
myndar 4mm fúgu milli
hella, svo þar
safnast ekki rik og gróður
They ensure fast, clean installation of secure and
uniform paving when laying slabs onto roofs,
balconies or walkways.
Avoid the mess and time involved with laying
slabs into mortar. No mechanical fixing is
required - the surface is secured by the weight of
the slab.
The design includes positioning lugs so that the
paving slabs slot into place easily giving clear
separation between the slabs, and allowing
drainage.
This method of paving cuts down weight on
the roof, and contractors can take up or
reposition the paving slabs at any time. It creates
attractive finishes on decks much faster than by
bedding down.
Timber decking can also be laid onto roofs and
balconies using Wallbarn support pads.
Wallbarn’s paving
support pads offer
the perfect solution
for deck paving.
paving
support
pads
Enginn sandur
engir pollar.
Dúkþ a k e h f M e l a b r a u t 2 4 2 2 0 H a f n a f i rð i s ím i 5 6 4 - 1 0 3 0 d u k t h a k @ d u k t h a k . i s
má nefna hönnun raflagna, eftirlit og
gerð hússtjórnarkerfis fyrir Egilshöll og
Áslandsskóla. Einnig má nefna raflagna-
hönnun og eftirlit fyrir ÍSAL, háspennu-
og lágspennulagnir fyrir rafveitur og
ýmis iðnfyrirtæki.
AFL hefur mikla reynslu í hönnun
og uppsetningu gagnasöfnunar- og
úrvinnslukerfa og hefur mest verið
unnið með Oracle gagnagrunna. Af verk-
efnum má nefna gagnasöfnunarkerfi
fyrir Hjartavernd sem styrkt er af
Öldrunarstofnun bandaríska heilbrigð-
isráðuneytisins.
Starfsmenn AFLs hafa breiðan grunn
menntunar og reynslu. Hjá fyrirtæk-
inu starfa nú 13 starfsmenn, verkfræð-
ingar, tæknifræðingar, tölvunarfræð-
ingar og tækniteiknarar. Eigendur AFLs
eru rafmagnsverkfræðingarnir Jón
Bergmundsson, stjórnarformaður, Jón
Vilhjálmsson, fjármálastjóri og Júlíus
Karlsson, framkvæmdastjóri.
Vefslóð AFLs er: www.afl.is
Hafinn er undirbúningur að næstu Rýnisferð. Ráðgert
er að halda til Suður Þýskalands dagana 22. septemb
er til 2. október 2008. Flogið verður til Frankfurt með
Flugleiðum og heim frá Prag með Heimsferðum. Farið
verður til Stuttgart og München og fyrirtækjaheimsóknir
verða meðal annars til Festo, Inalegur og Südkapel. Þeir
sem vilja koma með ábendingar um áhugaverðar skoð
unarferðir eru beðnir um að hafa samband við Gústaf A.
Hjaltason (gustaf@idan.is) eða Jón Ísaksson Guðmann
(jonisa@rarik.is).
Árlegar Rýnisferðir TFÍ, sem hófust árið 1998 með
námsferð til Kaupmannahafnar, hafa frá upphafi notið
mikilla vinsælda. Tilgangur ferðanna er að gefa tækni
fræðingum og verkfræðingum kost á að kynnast fyr
irtækjum, framkvæmdum og stofnunum sem eru í
fremstu röð. Rýnisferðin 2008 til Suður Þýskalands er sú
ellefta í röðinni.
Rýni 2008 - Suður Þýskaland