Verktækni - 01.02.2008, Side 12

Verktækni - 01.02.2008, Side 12
12 / VERKTÆKNI Almenn vörustjórnun: Stjórnun flutninga og dreifing Fjallað almennt um helstu þætti vöru­ stjórnunar í flutningamálum og dreifingu. Mismunandi eiginleikum mismunandi flutningamáta, vörubíla­, lesta­, flug­ og sjóflutninga eru gerð skil og forsendur vals á flutningamáta skoðuð, hérlendis og erlendis. Uppbygging dreifingarkerfa verður skoðuð, þar sem áhersla er lögð á að greina forsendur miðlægra og dreifðra dreifingarkerfa, hvaða hlutverk mismun­ andi einingar í dreifikerfum hafa og hvern­ ig má bæta stjórnun í birgðageymslum og dreifingarstöðvum. Umhverfisáhrif flutn­ inga og dreifingar verða einnig könnuð. Námskeið á vegum Endurmenntunar HÍ Kennari: Gunnar Stefánsson, Ph.D. Tími: Fös. 15. og 22. feb. kl. 8:15­12:00. Verð: kr. 28.300.­ Florence Kennedy: Vinnustofa í samningatækni Færni í samningatækni er afar mik­ ilvæg í öllum nútímaviðskiptum. MPM nám verkfræðideildar HÍ, í samstarfi við Endurmenntun HÍ, býður nú til öflugs námskeiðs í samningatækni í umsjá eins af fremstu sérfræðingum Breta á þessu sviði, Florence Kennedy. Um er að ræða efnismikla og krefjandi vinnustofu þar sem kennt er með raunhæfum verkefnum og æfingum sem skerpa sýn og auka á Í tilefni af ráðningu nýs orkumálastjóra sendi Kvennanefnd Verkfræðingafélags Íslands iðnaðarráðherra bréf, þann 3. jan­ úar síðastliðinn, þar sem sjónarmiðum nefndarinnar var komið á framfæri. Bréfið var einnig sent á alla fjölmiðla og undirritað af stjórn nefndarinnar. Nafn undirritaðar var þar á meðal en hún er ein af fimm stjórnarmönnum nefndarinn­ ar. Í forföllum formanns nefndarinnar féllst ég á að veita Ríkissjónvarpinu viðtal. Hvorki í bréfinu né í viðtalinu kemur fram Frá formanni VFÍ Vegna ályktunar Kvennanefndar að þetta sé sjónarmið Verkfræðingafélag Íslands. Það var sérstaklega tekið fram við fréttamann Sjónvarps að þetta væri ályktun Kvennanefndar VFÍ og ítrekað að undirrituð veitti viðtal sem stjórn­ armaður í nefndinni. Það er því alfarið á ábyrgð fréttamannsins að í kynningu á fréttinni var notaður titillinn formaður Verkfræðingafélags Íslands. Reykjavík, 14. janúar 2007. Jóhanna Harpa Árnadóttir. Eins og sagt hefur verið frá hér á síðum Verktækni þá hefur undanfarna mán­ uði verið unnið að gerð nýrra vefja fyrir VFÍ og TFÍ. Ráðgert var að vefirnir færu í loftið í upphafi ársins en ófyrirsjáanlegar tafir urðu á lokasprettinum. Þegar þetta er skrifað eru vefirnir tilbúnir en nýr vefur SV verður tekin í notkun fljótlega. Vefir félaganna þriggja verða með svip­ uðu útliti og að mestu sama innihaldi. Nýju vefirnir munu bjóða upp á mun meiri gagnvirkni, til dæmis varðandi stöðu umsókna, m.a. úr sjúkra­, orlofs­ og endurmenntunarsjóðum. Einnig verður sameiginlegt spjallsvæði þar sem félagsmenn geta skipst á skoðunum. Félagsmenn VFÍ og TFÍ fá á næstu dögum bréf með leiðbeiningum og lykilorði. Félagsmenn eru vinsamlega beðnir um að skoða vefina og koma með ábend­ ingar um það sem betur má fara. Ritstjóri vefjanna er Sigrún S. Hafstein, sem jafn­ framt ritstýrir Verktækni. Tölvupóstfang: sigrun@vfi.is eða sigrun@tfi.is Tafir á uppsetningu vefja skilvirkan hátt samningatækni þátttak­ enda. Kennari: Florence Kennedy, framkvæmda­ stjóri Negotiate Ltd. í Edinborg. Tími: Mán. 31. mar. og þri. 1. apr. kl. 8:15­ 16:00. Verð: kr. 67.100.­ Gæðastjórnun: Hugmyndafræði, stefna, aðferðir og umbótastarf Farið er í hugmyndir, aðferðir og þróun gæðastjórnunar á innlendum og alþjóðleg­ um vettvangi. Einnig í ábyrgð og hlutverk stjórnenda í gæðastarfi. Gefið er yfirlit yfir ISO 9000 staðlana og altæka gæðastjórnun. Kynntar mats­ og mæliaðferðir í gæðastarfi, s.s. sjálfsmat, vottun, samanburðarmæl­ ingar (benchmarking), samhæfð mælikerfi (Balanced Scorecard), ánægjuvog viðskipta­ vina og gæðaverðlaun. Áhersla er lögð á að vinna hagnýt verkefni sem miða að því að móta gæðastefnu, leysa vandamál í ferlum og setja fram lausnir í formi verklagsreglna. Kennari: Davíð Lúðvíksson, rekstrarverk­ fræðingur og forstöðumaður þjónustu­ og þróunarsviðs hjá Samtökum iðnaðarins. Tími: Mið. 2. apríl kl. 8:30­16:00, fim. 3. og fös. 4. apríl kl. 13:00­17:00 (3x). Verð: 44.500.­ Verkfæri í verkefnastjórnun Farið verður í grundvallaratriði nokkurra verkfæra sem nýtast í verkefnastjórnun, bæði við undirbúning og áætlanagerð sem og við eftirfylgni. Hugkort verða kynnt, bæði grunnatriði þeirra en einnig hvernig þau nýtast í verkefnastjórnun og verkefna­ vinnu. Einnig verður hugkortagerð með tölvuforritum sýnd með sérstakri áherslu á MindManager og æfingu í notkun þess forrits. Farið verður í grundvallaratriði verkáætlanagerðar og forrit sem nýtast við gerð verkáætlana verða kynnt . Farið verður í gegnum hnitmiðaða æfingu á grundvelli MS Project og JCV ­ Gantt og nemendum gefið gott yfirlit yfir styrkleika og veikleika þessara tóla og hvenær þau eiga helst við. Einnig verður farið í notkun á hugbúnaði og lausnum sem snúa að verkefnastjórnun á netinu. Kennari: Árni Sigurður Ingason MSc., vélaverkfræðingur. Tími: Mán. 11. og mið. 13. feb. kl. 8:30­ 12:30. Verð: kr. 36.900.­ Nánari upplýsingar og skráning á nám- skeiðin er á vef Endurmenntunar HÍ, www.endurmenntun.is og í síma 525 4444.

x

Verktækni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.