SSFblaðið - 01.12.2007, Page 2
FRÁ FORMANNI
Frá SÍB til SSF
SÍB var stofnað 30. janúar 1935 af starfs-
mönnum Landsbanka íslands og Útvegs-
banka íslands. Mikill metnaður og öflug
hagsmunagæsla fyrir hönd félagsmanna hafa
frá upphafi einkennt allt starf SÍB. Með góðri
samvinnu forystusveitar SÍB og stjórnenda
aðildarfyrirtækjanna hefur tekist að skapa
traust og trúnað, öfluga og góða vinnustaði,
tækifæri til símenntunar og endurmenntunar,
góð almenn félagsleg réttindi og kaup og
kjör eru með því besta sem gerist hjá sam-
bærilegum starfsstéttum. En alltaf má gera
betur í dag en í gær og því er og verður það
alltaf verkefni þeirra, sem valdir eru til forystu
í stéttarfélaginu, að vernda áunnin réttindi og
kjör og að bæta þau með hverjum nýjum
kjarasamningi og sérsamningum innan hvers
fyrirtækis.
í dag eru SÍB samtök starfsmanna fjármála-
fyrirtækja og á þingi stéttarfélagsins árið
2004 var ákveðið að breyta nafni félagsins úr
Sambandi íslenskra bankamanna í SÍB-
Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja.
Þingið skipaði einnig starfshóp, sem hafði
það verkefni að stýra stefnumótun fyrir
stéttarfélagið til næstu ára, móta framtíðar-
sýn og gera samtökin að sjálfsögðum kosti
sem stéttarfólagi fyrir alla sem vinna hjá fjár-
málafyrirtækjum. Starfshópurinn fékk til liðs
við sig öfluga sérfræðinga á sviði skipulags,
stjórnunar og almannatengsla. í samvinnu
starfshópsins og sérfræðinganna voru unnar
viðamikla tillögur að stefnumótun, þær lagðar
fyrir formannafundi samtakanna og að lokum
var ný stefnumótun samþykkt á þingi SÍB á
Selfossi í apríl 2007.
Einn þáttur í þeirri stefnumótun er að stíga
skrefið til fulls og kveðja endanlega hið
ágæta nafn, sem valið var fyrir 72 árum,
Samband íslenskra bankamanna (SÍB), og
taka upp nýtt merki og nafn:
SSF - Samtök starfsmanna
fjármálafyrirtækja
f þessu fyrsta tölublaði SSF-blaðsins sjá
félagsmenn í fyrsta sinn nýja merkið og nýtt
og endurbætt útlit blaðsins. Vonandi eru allir
félagsmenn SSF ánægðir með breytingarnar.
Traust, þekking og metnaður eru ný kjörorð
fyrir SSF og samkvæmt þeim kjörorðum
verður áfram unnið að bættum kjörum og
réttindum fyrir alla félagsmenn Samtaka
starfsmanna fjármálafyrirtækja.
Friðbert Traustason, formaður SSF
Leiðari 2
Hvar varstu? 3
Fréttir frá Norðurlöndum 5
Viðtal við Birnu Einarsdóttur hjá Glitni 6
Launamál 8
Ný ásýnd fyrir nýja tíma 9
Stjórn SSF 10
Félagsstarfið 12
Heilsa 14
Sameining Sparisjóða 15
Nám með vinnu 16
VALITOR 18
VÍST 19
Landsbankinn 120 ára, viðtal 20
Þetta er ég, Friðrik S. Halldórsson 22
Þetta er ég, Harpa Gunnarsdóttir 23
M Æ SAMTÖK "m "m STARFSMAN NA f f FJÁRMÁLAFYRIRTÆKJA
Útgefandi: Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja SSF Ábyrgðarmaður: Friðbert Traustason Prentun: Prentmet Upplag: 7.500 eintök Skrifstofa SÍB: Nethyl 2E, 2. hæð, 110 Reykjavík Sími: 540 6100. Fax: 540 6108. Heimasíða: www.sib.is, netfang: sib@sib.is Hönnun: Jónsson & Le’macks Forsíðumynd: Bima Einarsdóttir. Ljósmynd: Ari Magg
2