SSFblaðið - 01.12.2007, Síða 10
STJÓRNIN
Stjórn SSF
Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja
Dagmar Björnsdóttir
Meðstjórnandi
Dagmar vinnur hjá VALITOR
sem áður hét VISA ísland. Hún
er þar hópstjóri í deild sem heitir
Endurkröfur og áhættustýringar.
Dagmar hafði ekki unnið áður innan
fjármálageirans en hún hóf störf
hjá VISA árið 2004. Þar áður var
hún með eigin rekstur og vann hjá
íslenskri erfðagreiningu.
Andrés Erlingsson
Meðstjórnandi
Andrés Eriingsson er sérfræðingur á
lögfræðisviði Landsbankans. Hann
segist hafa komið inn í fjármála-
geirann fyrir um það bil fjórum árum
og er stundum kallaður „kettlingur-
inn“ af reynslumeiri starfsfélögum,
vegna stutts starfsaldurs.
Áður en hann hóf starf hjá Lands-
bankanum vann hann við skjala-
Heiðrún Hauksdóttir
Gjaldkeri
Heiðrún Hauksdóttir er forstöðu-
maður bankaþjónustu hjá Byr í
Hafnarfirði. Hún hóf starfsferil sinn
innan fjármálageirans í Spron fyrir
allmörgum árum að sögn. Síðan
hefur hún verið hjá Sparisjóði
Hafnarfjarðar og hjá Byr. Hún segist
hafa sinnt mörgum störfum og
fjölbreyttum innan sparisjóðsins.
Dagmar er gift Matthíasi Einarssyni
flugumferðastjóra og eiga þau þrjá
syni. Fritími hennar fer að mestu
í fjölskylduna en hún segist hafa
gaman af því að ferðast og veiða.
Þar fyrir utan segist hún fylgjast með
Formúlunni þegar tími gefst til.
stjórnun hjá Borgarskjalasafni og
var verkefnisstjóri og ráðgjafi hjá
hugbúnaðarfyrirtæki.
Andrés er kvæntur og segist eiga
alveg frábæra eiginkonu og tvær
dætur. Til að jafna kynjahlutföllin á
heimilinu er sjö mánaða labrador
hvolpur af karlkyni, hann Júlli.
Starfsferill Heiðrúnar hefur alla tíð
verið innan fjármálageirans. Hún er
því bankamaður í húð og hár.
Heiðrún er gift Helga Einarssyni
og eiga þau þrjú börn, þau Helgu
Kristínu, Hákon Jens og Heiðu
Björk. Tvö barnabörn hafa bæst í
hópinn og hundur er á heimilinu, þar
er því líf og fjör. Helstu áhugamál
Heiðrúnar eru handavinna og föndur,
ferðalög innan lands og utan og
stundar hún nám með vinnu í við-
skiptafræði í Háskóla Reykjavíkur.
Hún segir námið tímafrekt og að
auðvitað bitni það á fjölskyldunni
að vera í fullri vinnu og skóla. Frítími
hennar er þess vegna takmarkaður
en hún segist leggja á það áherslu
að vera með fjölskyldu sinni og
vinum þegar hún getur og sameina
þær samverustundir áhugamálum
sínum.
Linda Björk Halldórsdóttir
2. varaformaður
Linda Björk er sérfræðingur (
markaðsdeild Landsbankans. Hún
hefur unnið hjá Landsbankanum
í tæplega 7 ár en hefur annars
unnið í bönkum með skóla frá 20
ára aldri. Hún hóf starfsferilinn sem
sumarstarfsmaður hjá Landsbank-
anum í Ólafsvík, flutti suður og fór að
vinna hjá Spron. Eftir framhaldsnám
réði hún sig til Landsbankans aftur.
Fyrir utan störf í fjármálageiranum
var hún rekstarstjóri hjá Planet Sport
um tíma.
Linda Björk er gift Úlfari Ragnarssyni
en þau eiga saman 4 mánaða
gamlan son. Áhugamálin eru helst
útivist, útilegur, veiðar, hjólreiðatúrar
og annað því skylt. Linda Björk
segist elska að fara út að ganga
með litla prinsinn í vagninum. Um
helgar þykir henni gott að bruna út
úr bænum, úr ys og þys borgarinnar
og í sveitina til mömmu og pabba.
Systkinahópur þeirra Lindu Bjarkar
og Úlfars er stór. Hann á sex systkini
en hún fjögur svo það er alltaf líf og
fjör í kring um þau. Sem er hið besta
mál því Linda Björk segist vera mikil
fjölskyldumanneskja.
Anna Karen Hauksdóttir
1. varaformaður
Anna er fyrsti varaformaður SSF.
Hún er í framkvæmdastjóm, kjara-
nefnd og í stjóm Styrktarsjóðs. Auk
allra almennra stjómarstarfa hefur
Anna sinnt jafnræðismálum innan SSF
og samstarfi í þeim málum við önnur
stéttarfélög innanlands og við NFU
(Nordiska Finansanstálldas Union).
Hún leiddi stefnumótunarvinnu ásamt
stjóm og starfsfólki SIB/SSF sl. ár
og er formaður starfsmannafélags
Glitnis (SG) og í fullu starfi á skrifstofu
félagsins. Anna býr með drengjunum
sínum tveim. Frítími Önnu að
undanfömu hefur að mestu farið í
nám sem hún stundar samhliða vinnu,
í Rekstrar- og viðskiptafræði í EHI.
Anna hefur gaman af því að ferðast
og kynnast ólíkri menningu. Hún hefur
ferðast víða og búið í Frakklandi um
nokkrra ára skeið. Hún er jafnframt
mikill listunnandi og áhugamaður um
hollustu. Hún hefur mikla ánasgju af
hlaupi og hefur sett sér það markmið
að hlaupa hálft „Glitnis“-maraþon í
næsta Reykjavíkurmaraþoni! Anna er
því fylgjandi að fjölskyldan eyði tíma
saman og eigi sameiginlegt áhugamál
því það treysti öll bönd.
10