SSFblaðið - 01.12.2007, Qupperneq 12
FÉLAGSSTARFIÐ
Formannafundur SIB
8.-9. nóvember 2007
Dagana 8. og 9. nóvember var haldinn á
Hótel Hvolsvelli fundur formanna aðildar-
félaga og stjórnar SÍB. Fundinn sátu 42
fulltrúar 18 aðildarfélaga SÍB og stjórnar-
menn og starfsmenn SÍB.
Góð mæting var á fundinn sem haldinn var
í húsnæði Njálusetursins á Hvolsvelli.
Efni fundarins miðaðist við það að fram-
undan er undirbúningur kjarasamninga og
mat á valkostum við áherslur í þeim undir-
búningi. Fundurinn hófst með því að Friðbert
Traustason formaður kynnti árangur af síð-
ustu kjarasamningum SÍB sem voru gerðir
2004. Fram kom í máli hans að í þeim
samningum var ýmislegt gert til að hækka
laun lægstu hópanna og einnig kom sú
leiðrétting sem átti sér stað á launum 2006
þeim hópi til góða.
Því næst kynnti Sigurður Jóhannesson,
hagfræðingur frá hagfræðistofnun HÍ, niður-
stöður launakönnunar Samtaka atvinnulífsins
sem birt var síðla árs. Hann kom sérstaklega
inn á launamun kynjanna og reifaði hugsan-
legar skýringar á óútskýrðum launamun
kynjanna. Að loknu erindi Sigurðar kynnti
Þórhallur Ólafsson frá Capacent launamun
kynjanna eins og hann birtist í launakönnun
SÍB sem framkvæmd var í mars sl. Þar kom
fram beint samræmi milli niðurstaðna hans
og þess sem sjá má í niðurstöðum úr könnun
SA. Að lokum kynnti Ingólfur Gíslason
sjónarmið Jafnréttisstofu og mat á þróun
síðustu ára í átt til launajafnréttis.
Að loknum þessum erindum unnu fundar-
menn í hópstarfi við að svara eftirfarandi
þremur spurningum:
Hlutverk stéttarfélaga við að draga úr
kynbundnum launamun.
Hvernig geta kjarasamningar verið verkfæri
til að jafna launamun kynja?
Um hvað eiga næstu kjarasamningar að
snúast?
Niðurstaða þessarar vinnu var tekin saman
og send á forystumenn aðildarfélaganna og
stjórnarmenn SÍB. Þar geta áhugasamir
félagsmenn leitað eftir hugmyndum og lagt
sínar eigin í púkkið.
Síðari daginn var fjallað um tillögu stjórnar
um nýtt útlit SÍB og að breyta merki
samtakanna úr SÍB í SSF sem skammstöfun
fyrir samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja.
Eftir kynningu og stuttar umræður sam-
þykktu fundarmenn þessa tillögu einróma.
Jafnframt var samþykkt að hrinda þessari
breytingu í gang sem fyrst.
Friðbert Traustason, formaður SÍB, kynnti
tillögur að nýju íslensku samtryggingarkerfi
sem Samtök atvinnulífsins hafa lýst yfir að
þau vilji koma á laggirnar.
Fulltrúar frá Lýðheilsustöð kynntu verkefnið
Heil og sæl í vinnunni sem er átaksverkefni
sem standa mun yfir í 12 mánuði. Þetta
verkefni er mjög í anda þeirrar heilsueflingar
sem víða er í framkvæmd innan fjármála-
fyrirtækja og umhugsunarvert fyrir starfs-
mannafélög að taka formlega þátt í því. Að
loknum fundi fóru allir fundarmenn síðan
heim með langan lista viðfangsefna sem þau
ætluðu sér að vinna að hvert innan síns
félags og á sínum vinnustöðum.
/sa
Frá43. þingi SÍB
Þingið var haldið dagana 16. - 18. april
á Hótel Selfossi. Alls höfðu 65 fulltrúar
aðildarfélaga atkvæðisrétt á þinginu en auk
þeirra sátu þingið stjórnarmenn SÍB, starfs-
menn og gestir. Fyrir þinginu lágu mörg
viðamikil mál, s.s. endurskoðun samþykkta
SÍB, endurskoðun á reglum vinnudeilusjóðs,
menntunarsjóðs og styrktarsjóðs. Einnig var
mikið rætt um hvaða áherslur væru æski-
legar í undirbúningi næstu samningavið-
ræðna. Sú umræða litaðist nokkuð af því
að við upphaf þings voru kynntar
niðurstöður úr launakönnun SÍB sem
framkvæmd var um mánaðamót
mars - apríl 2007.
Helstu breytingar sem gerðar voru á sam-
þykktum ganga út á að fellt var út ákvæði
um að samtökin eigi að standa fyrir skipu-
lagðri félagsstarfsemi og var það gert í Ijósi
þess að allt slíkt starf hefur verið í höndum
aðildarfélaganna. Einnig var ákvæðum um
aðild breytt þannig að starfsmenn sem vilja
vera utan starfsmannafélaga í sínu fyrirtæki
geta verið aðilar að samtökunum. Mikið var
rætt um starfsemi þeirra sjóða sem sam-
tökin starfrækja og skýrist það af því að
bæði Menntunarsjóður og Styrktarsjóður
eru myndarlegur þáttur í þeim kjörum sem
félagsmenn búa við og því rökrétt að
fulltrúar ræði starfsemi þeirra og ráðstöfun
þess fjár sem þar fer í gegn. Á þinginu var
ákveðið að flölga aðalmönnum í stjórn úr
sjö í ellefu og hafa ekki varamenn.
Kosningar fóru þannig að Friðbert Trausta-
son var áfram kjörinn formaður, Anna Karen
Hauksdóttir Glitni var kjörin 1. varaformaður,
Linda Björk Halidórsdóttir Landabanka var
kjörin 2. varaformaður, Sylvía
Guðmundsdóttir Kaupþingi var kjörin ritari,
Heiðrún Hauksdóttir Byr var kjörin gjaldkeri,
Meðstjórnendur voru kjörnir Andrés Erlings-
son Landsbanka, Anna Kristín Björnsdóttir
Spron, Dagmar Björnsdóttir Valitor, Hafdís
Hansdóttir Kaupþingi, Kjartan Sigurgeirsson
RB, Oddur Sigurðsson Glitni.
12