SSFblaðið - 01.12.2007, Qupperneq 13
FÉLAGSSTARFIÐ
Kosning trúnaðarmanna
Áriö 2008 verður mikilvægt í starfi samtak-
anna þar sem undirbúningur kjarasamninga
mun væntanlega hefjast á vordögum og
síðan renna núgildandi samningar út í lok
september. í febrúar fer fram kosning
trúnaðarmanna á öllum vinnustöðum til
næstu tveggja ára og þá er tækifæri fyrir
félagsmenn til að efna til umræðu um við-
fangsefni stéttarfélagsins og einnig að til-
nefna fulltrúa sem þeir treysta til að koma
sínum sjónarmiðum á framfæri í þeirri um-
ræðu sem ætíð er meðal trúnaðarmanna.
Starf trúnaðarmannsins felur í sér nokkra
ábyrgð en er ekki síður tækifæri til að sýna
af sér ábyrgð og aðgætni en um leið til að
þroskast og þróast í starfi. Starf trúnaðar-
manns felur í sér mörg tækifæri til að eiga
uppbyggilega samræðu og samstarf við
yfirmann sinn um viðfangsefni sem trúnaðar-
maður á að sinna. í samningi um trúnaðar-
menn segir: „Trúnaðarmaður geri sitt besta
til að skapa og viðhalda góðri samvinnu
innan stofnunar og leitist við að leysa
hugsanleg ágreiningsefni." Að mörgu leyti er
hlutverk trúnaðarmannsins hliðstætt starfi
leiðsögumanns - segja til vegar og benda á
valkosti og leiðir til að ná markmiðum, einnig
ef kemur til álitamála varðandi kjör eða
róttindi. Trúnaðarmaðurinn er hinsvegar alls
ekki nein „lögregla" eða yfirvald.
I Svíþjóð hafa sumir bankar tekið upp mark-
vissa stefnu að ráða sem millistjórnendur fólk
sem hefur sinnt starfi trúnaðarmanna í ein-
hvern tíma. Hérlendis er þetta ekki til sem
stefna en hinsvegar liggur fyrir að árlega eru
allnokkrir trúnaðarmenn sem segja af sór
embætti vegna þess þeir hafa fengið stöðu-
hækkun sem felur í sér mannaforráð og þeir
segjast ekki geta verið báðum megin við
borðið í slíkri stöðu.
Kjörnir trúnaðarmenn eru boðaðir á nám-
skeið tvisvar á ári, í mars og í október. Miðað
er við að trúnaðarmaður sem kjörinn er nýr í
febrúar geti sótt fjögur námskeið á kjörtíma-
bilinu. Með því hefur hann á þeim tíma
fengið mikilvæga innsýn í fróðlegan heim
kjaramála og einnig þjálfun í að takast á við
og greina viðfangsefni sem að höndum ber.
Allir áhugasamir eru hvattir til að gefa kost á
sér þegar kemur að því að auglýst verður
eftir framboðum í embætti trúnaðarmanns á
þeirra vinnustað. Sjá nánar um framkvæmd
kosninga trúnaðarmanna á www.sib.is undir
trúnaðarmenn.
SPRON styður Hjálparstarf kirkjunnar í Malaví
Þann 27. október síðastliðinn lögðu starfs-
menn SPRON upp í langferð til Malaví.
Tilefni ferðarinnar var samstarf SPRON og
Hjálparstarfs kirkjunnar við uppbyggingu 75
brunna í Malaví. í ferðinni kynntu starfsmenn
SPRON sér hjálparstarfið og aðkomu þeirra
að verkefninu. Auk starfsmanna SPRON
voru með í för fulltrúar frá Hjálparstarfi
kirkjunnar, Stöð 2 og Viðskiptablaðinu.
Starfsmenn SPRON leggja sitt af
mörkum
Hjálparstarf kirkjunnar og SPRON hafa átt
samstarf í mörg ár en á aðalfundi SPRON
þann 8. mars síðastliðinn var ákveðið að
styðja með enn veglegri hætti en áður við
Hjálparstarfið í tilefni af 75 ára afmæli
SPRON. Gerður var samningur til þriggja ára
þar sem markmiðið er að byggja 75 brunna
á tímabilinu. í kjölfar þeirrar ákvörðunar
efndu starfsmenn SPRON til söfnunar undir
yfirskriftinni „Leikur að menntun" þar sem
safnað var fyrir kaupum á skrifborðum,
stólum og leikföngum. Starfsmenn leituðu
ýmissa leiða við fjáröflun og voru afar frum-
legir eins og myndirnar bera með sér.
Markmiðið var að safna 1,5 milljón króna en
starfsmenn bættu um betur og söfnuðu
rúmum tveimur milljónum króna.
Lífsskilyrðum gjörbylt með aðgengi
að hreinu vatni
Malaví er eitt af fátækustu ri"kjum heims og í
nokkur ár hefur Hjálparstarf kirkjunnar unnið
í einu harðbýlasta héraði landsins,
Chigwawa. Þar hafa íbúarnir glímt við mikla
þurrka og flóð á undanförnum árum með
tilheyrandi uppskerubresti og eyðileggingu.
í Chigwawa búa um 300.000 þúsund manns
og eru verkefnin því ærin. Aðgangur margra
að hreinu vatni er afar takmarkaður og þurfa
margir að leggja sér skítugt vatn til munns
eða ganga marga klukkutíma dag hvern eftir
hreinu vatni. Brunnaverkefnið er því afar þýð-
ingarmikið fyrir íbúana og gjörbyltir lífsskíl-
yrðum þeirra. Ekki aðeins kemur aðgangur
að hreinu vatni í veg fyrir sjúkdóma heldur
skapast einnig meiri tími fyrir íbúana að sinna
öðrum verkefnum sem annars færi í að
sækja vatnið langar vegalengdir.
Hjálp til sjálfshjálpar
í Hjálparstarfi kirkjunnar er rík áhersla lögð á
að kenna íbúum að hjálpa sér sjálf og að
bera ábyrgð á þeim verkefnum sem unnið er
að. Til að mynda ber ákveðið þorpsráð í
hverju þorpi áþyrgð á viðhaldi brunnana og
umgengni við þá. Konum er falin mikil
ábyrgð í verkefnum Hjálparstarfsins en það
hefur reynst vel og stuðlað að aukinni sjálf-
bærni sem er meginmarkmið hjálparstarfsins.
13