SSFblaðið - 01.12.2007, Page 14
HEILSA
Heil og sæl í vinnunni!
Þóra B. Sveinsdóttir
Lýðheilsustöð
Við eyðum stórum hluta vökutímans í vinnunni og
því til nokkurs að vinna, að láta sér líða vel þann
tíma. Efling heilsunnar, bæði andlega og líkamlega,
er vaxandi áhugamál starfsfólks og yfirmanna sem
gera sér vel grein fyrir mikilvægi þess að fjárfesta
í mannauði.
Þóra B. Sveinsdóttir hjá Lýðheilsustöð er verkefnisstjóri fyrir
verkefnið Heil og sæl í vinnunni en það er unnið í samvinnu við
önnur Evrópulönd. Á ensku heitir það Move Europe og hafa
fjölmörg lönd tekið þátt í því.
„Markmiðið er að bæta heilsu og vellíðan starfsmanna ásamt því að
auka starfsánægju," segir Þóra. „Verkefnið hvetur fyrirtæki til að
grípa til aðgerða varðandi heilsueflingu á vinnustöðum og bæta
með því almennt heilsufar, fækka veikindadögum, auka framleiðslu
og nýsköpun. Þetta eru háleit markmið en reynslan hefur sýnt að
nákvæmlega þetta gerist."
Hvernig fer verkefnið fram?
„Fulltrúi frá vinnustað þarf að senda inn þátttökutilkynningu. Það
er hægt að gera á heimasíðu okkar: www.heilsuefling.is. Það er
mikilvægt að verkefnið sé unnið með stuðningi yfirmanna og að
virk þátttaka starfsfólks sé fyrir hendi,“ segir Þóra. „Á síðunni er
líka rafrænn spurningalisti. Með því að svara honum er hægt að
meta hvernig staða heilsueflingar og forvarna er á vinnustað.
Þegar listanum hefur verið svarað fær vinnustaðurinn endurgjöf
senda í tölvupósti. í endurgjöfinni eru hagnýt ráð og mögulegar
hugmyndir um það hvernig auka megi heilsueflingu innan fyrir-
tækisins og hægt er að bæta og breyta þeim þáttum sem krefjast
nánari athugunar. Svo fá þau fyrirtæki og vinnustaðir sem taka
þátt í verkefninu ítarlegan bækling með ráðleggingum um heilsu-
eflingu á vinnustöðum - til frekari hvatningar."
Þóra segir að verkefnið verði metið á tímabilinu 10. janúar 2008
til 10. janúar 2009. Það verði gert með þeim hætti að fulltrúi hvers
vinnustaðar verði beðinn um að svara spurningalistanum sem
minnst var á hér að ofan og skila inn lýsingu á því sem gert hefur
verið í heilsueflingu á tímabilinu.
„Þessi lýsing verður notuð m.a. til að gefa vinnustöðum stig en líka
er hægt að fá stig fyrir að taka þátt í eða standa fyrir atburðum
sem tengst geta heilsueflingu og forvörnum. En það er ekki nóg
að taka bara þátt í atburðum, meiningin er að það eigi sér stað
varanleg breyting á vinnustaðnum. Þó má ekki gleyma því að
þátttaka í atburðum tengdum heilsueflingu er alltaf til góða og
hvetur og styður starfsmenn."
Hvaða atburðir eru góðir til heilsueflingar?
Þeir eru af ýmsum toga og geta verið misstórir eftir atvikum.
Á heimasíðunni er t.d. þessi listi en hann er auðvitað ekki
tæmandi:
Skokkhópur innan fyrirtækja
Ávaxtaskálar inni á deildum
Hollusta í mötuneyti
Aðgangur að drykkjarvatni
Leiðir til að minnka streitu
Tóbaksvarnarfræðsla
100% reykleysi
Áfengisleysi
Þátttaka í Kvennahlaupi
Þátttaka í Maraþoni Reykjavíkur
Þátttaka í Hjólað í vinnuna
Þátttaka í streitulausa deginum
Þátttaka í megrunarlausa deginum
Þátttaka í golfmóti
Heilsuvika
Mat
Þegar verkefninu lýkur opinberlega verða valdir fulltrúar frá hverju
landi til að koma saman og gefa skýrslu i Róm. Þetta er ætlað til
hvatningar en Ifka til að meta hvernig hefur gengið.
„Við vonumst auðvitað til að sjá sem flest fyrirtæki taka þátt í þessu
verkefni og með því auka heilsu og ánægju allra sem að því koma,“
segir Þóra að lokum.
/
14