SSFblaðið - 01.12.2007, Side 19
VÍST
Starfsmenn Greiðslumiðlunar Visa íslans hf.
stofnuðu formlega starfsmannafélag þann
19. mars 1987. Nafn félagsins er „VISA
íslands-starfsmannafélag", skammstafað
V.Í.S.T. Ekki er orðið Ijóst, þegar þetta er
skrifað, hvort nafni félagsins verður breytt
í takti við nafnbreytingu fyrirtækisins í
VALITOR, en það skýrist á næsta aðalfundi
sem haldinn verður í febrúar.
Þegar félagið var stofnað árið 1987 voru
félagsmenn 12 en SÍB var með fjöldatak-
mörk sem sögðu að félagsmenn yrðu að
vera að lágmarki 10 til að geta sótt um
aðild. Nú 20 árum seinna eru félagsmenn
110 eða rúmlega 90% starfsmanna
VALITOR.
Fyrsti formaður félagsins var Halla
Leifsdóttir, meðstjórnendur voru Björg
Jóhannesdóttir og Steingerður Jóhanns-
dóttir og til gamans má geta þess að
þessar þrjár konur vinna ennþá allar hjá
fyrirtækinu.
Félagsstarf
Félagsstarf á vegum VÍST er mjög öflugt og
þar ber hæst skemmtanir eins og árshátíð,
fjölskyldudag og jólahlaðborð auk árvissrar
vorferðar. Þriggja manna skemmtinefnd
heldur utan um þessa atburði ásamt
stjórnarmönnum. Skemmtinefnd hefur
einnig staðið fyrir gerð myndbands á hverju
ári sem er svo sýnt á árshátíð. Leikarar
koma úr röðum starfsfólks og gert er grín
að mönnum og málefnum líðandi stundar.
Golfnefnd er einnig starfandi og að meðal-
tali eru haldin tvö golfmót á ári.
Átaksverkefni
Starfsmannfélagið hefur staðið fyrir
átaksverkefnum t.d. sem varða heilsufar
starfsmanna. Fyrr á þessu ári var farið í
heilsuátak sem stóð í fimm mánuði. Átakið
var unnið í samstarfi við Heilsuráðgjöf ehf.
í upphafi átaksins voru starfsmenn mældir
og vigtaðir. Einnig var fólki yfir fertugu
.T«T»T<Tg
Stjórn VÍST og hlutverk
í 2. grein laga félagsins segir. „Markmið
félagsins er; að efla samheldni, samstarf og
kynni starfsmanna Visa Íslands-Greiðslu-
miðlunar hf., að vinna að bættum vinnuskil-
yrðum og kjörum starfsmanna, að taka
afstöðu til og fylgjast með öllum þeim
málum er varða hagsmuni félagsmanna."
Stjórnina skipa þrír félagsmenn, formaður,
ritari og gjaldkeri. Embætti formanns fylgir
jafnframt trúnaðarmannshlutverk. Núverandi
formaður er Þorbergur Atlason sem gegnt
hefur embættinu frá því í febrúar 2005.
ráðlagt að fara í kólesteról- og
blóðsykursmælingu sem flestir gerðu. Hver
og einn setti sér sín markmið og þeim var
fylgt eftir með persónulegri ráðgjöf ásamt
vigtun og mælingu á sex vikna fresti. Mikil
þátttaka var í átakinu og ánægja með það.
Félagið niðurgreiddi þetta átak fyrir
félagsmenn og auk þess fá allir íþróttastyrk
á hverju ári.
Orlofshús
Starfsmannafélagið hefur tvö orlofshús til
umráða. Starfandi er sumarbústaðanefnd
sem heldur utan um rekstur bústaðanna og
úthlutun dvalartíma. Húsin er bæði afar vel
búin, m.a. með heitum pottum og helstu
þægindum sem fólk getur óskað sér. Þau
eru vel nýtt af starfsmönnum, allt árið um
kring.
19