Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.1923, Blaðsíða 6

Læknablaðið - 01.03.1923, Blaðsíða 6
LÆKNABLAÐIÐ 3Ö eru bundnar viö ductus pancreaticus, standa eins og klettar úr hafinu. Þetta hefir verið margreynt, en engum haföi dottiö í hug, að þetta gæti oröið leiöin til þess að ná í pancreashormonið, fyrr en 1920, að ungur læknir í Canada, dr. B a n t i n g, fór að hugsa um það. Hann fór svo, í nóvember, til próf. Macleod í Toronto og sagði honum frá hug- mynd sinni, en hann brást strax vel við, og bauð honum að vinna að þessu á lífeðlisrannsóknarstofunni við háskólann. Þeir hafa síðan unnið saman og orðið vel ágengt. Þeir byrjuðu á því að binda fyrir ductus pancreaticus á hundum, og drápu þá svo eftir nokkurn tíma, þegar pancreasvefurinn var horfinn all- ur nema Langerhanseyjarnar, en þær voru svo leystar upp í saltvatni til þess að ná í hormonið. Upplausnin var svo reynd á öðrum hundum, sem íengið höfðu diabetes eftir að pancreas hafði verið skorinn úr þeim. Það kom óðar í ljós, að hægt var, með því að sprauta inn upplausninni 4 hvern tíma, að minka blóðsykur diabeteshundanna og halda þvagi þeirra sykurlausu. — Þarna var þá hormonið fundið, og þeir kölluðu það i n- s u 1 i n eftir eyjunum. En insulinið var seinunnið með þessari aðferð, og því var farið að' skygnast eftir öðrum leiðum til þess að ná því. Næsta leiðin var að vinna insulinið úr pancreas nýfæddra kálfa, og með því fékst bæði meira og fljótunnara insulin. En kálfa var hægt að nota af því, að fyrir 0g um fæðingu vantar ]iá nær allan pancreasvef nema Langerhanseyjarnar. Með þessu kálfa-insulini var pancreaslausum hundi haldið lifandi í 10 vikur, og við svo góða heilsu, að menn fóru að efast um það, hvort hundurinn hefði diabetes, eða hvort allur pancreas hefði náðst úr hon- um. Til þess að ganga úr skugga um þetta, var hætt að gefa hundinum insulin, og 3 dögum seinna var hann dauður úr coma diabeticum. Næst tókst að ná hormoni úr pancreas fullorðinna nauta með alkoholi, en auðveldara er þó að ná því úr pancreas ýmsra fiska, sérstaklega skötu og hákarls-pancreas, því að hjá sumum fiskum finnast stórar Langer- hanseyjar, sem liggja út af fyrir sig, og þess vegna hægt að skilja frá öðrum pancreasvef. Nú hefir insulin verið rannsakað frá ýmsum dýrum og það hefir komiö i ljós, að hvaðan sem insulinið er tekið, eru verkanir þess eins, og virð- ist því svo sem hormonið sé hið sama hjá öllum dýrum. Insulin er gefið subcutant og enn ekki notað nema nýtt, því að menn vita ekki hve lengi það helst óbreytt. Sykurinn brennur miklu örar en áður, og viö það minkar mjög blóðsykurinn, seni venjulega er 0.08—0.1%. — En þegar blóðsykurinn er kominn niður í 0.04% er dýrunum hætta búin, þau fá krampa og collaps og deyja svo snögglega. Þeir Banting og Macleod fóru snemma að hugsa um það, hvort ekki mætti nota insulin við diabetes á mönnum, en voru lengi ragir við það bæöi vegna þess, að i bvrjun var efnið ekki hreint, en blandað ýmsum eggjahvítuefnum, sem geta haft skaðleg áhrif, og svo voru þeir hræddir um, að gefa ef til vill of mikið í einu, meðan óvíst var um styrkleika þeirra upplausna, sem gerðar voru. En það hefir tekist, að fá insulinið alveg eggjahvítulaust og styrkleikinn er nú mældur í insulin-einingum, en í hverri einingu er nóg insulin til þess að lækka blóðsykur kanínu niður í 0.04%, en þá byrja krampar, eins og fyr segir.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.