Læknablaðið - 01.06.1924, Blaðsíða 12
LÆKNABLAÐIÐ
9ó
Pétur Emil Júlíus Halldórsson, læknir, fæddist 17. ágúst 1850, í Reykja-
vík, og dó 19. maí 1924, í Borgarnesi, og var því kominn hátt á 74. áriS.
■— Foreldrar hans voru Halldór Kr. Friðriksson yfirkennari og kona hans,
C. C. Leopoldine, f. Degen, dönsk kona.
Hann varð stúdent 1869, kandidat 1872. Dvaldi svo tvö næstu árin í
i Kaupmannahöfn viö framhaldsnám. Árið 1874 var hann settur héraðs-
læknir í Þingeyjarsýslu, en fékk veitingu fyrir Húnavatnssýslu vestan
Blöndu (7. læknishérað) 1876. Bjó hann lengst af á eignarjörð sinni,
Klömbrum. þangað til héraðinu var skift, og hann varð að taka Blöndu-
óshérað 1901, og þá jafnframt að yfirgefa bújörð sína og setjast að á
Blönduósi. Var það áreiðanlega ekki aö hans skapi. Á seinni héraðslækn-
isárum hans þjáðist hann mjög af gigt, og mun það hafa verið af þeirri
ástæðu aðallega, að hann fékk lausn árið 1906 frá embætti sínu — eftir
32 ára þjónustu — og flutti ])á til Reykjavíkur og var þar þangað til
hann ílutti að Borgarnesi. Banamein hans mun hafa verið krabbamein.
Kona hans var Ingibjörg Magnúsdóttir Jónssonar, prests á Grenjaðar-
stað, og lifir hún hann. Þrjú börn eru á lífi: Halldór sýslumaður Stranda-
manna, Þóra kona Guðm. sýslumanns Björnssonar í Borgarnesi, og Maggi
Magnús læknir.
Júlíus Halldórsson var óvenjulega hraustur maður og harðger, eld-
fjörugur og ósérhlifinn, hvort heldur var að ræða um læknisferðir í ill-
viðrum og ófærð á nótt eða degi, eða um önnur störf, því hann var áhuga-