Læknablaðið - 01.06.1927, Qupperneq 11
LÆKNABLAÐIÐ
89
gengur sjúkdónnir. — Hinar tegundir veikinnar get eg ekki dæmt um
af eigin reynslu.
Frá byrjun hefi eg gert mér aS fastri reglu. aS spyrja. þessa sjúklinga
um, hvort þeir vissu um blindu eða sjóndepru í ætt sinni. Ca. helntingur
Jteirra hefir svara'ð neitandi, flestir hinna vissu um 1—2—3 tilfelli á
stangli, og það voru aðeins fáir, sem uppvíst varð um að voru af typ-
iskum glaucomaættum.
Um skyldmennagiftingar liefi eg hinsvegar spurt fæsta af sjúklingum
minum. En eftir því sem eg þekki til á landinu, með útbreiðslu glaucoma
og blindu, eftir sveitum, finst mér ekki ástæða til að Itreyta skoðun minni.
Eftir því sem eg veit best, eru Vestfirðir og Skaftafellssýslurnar, þær
sveitir landsins, sem afskektastar eru, og mest um skyldmennagifting-
ar. Sjálfur hefi eg dvalið 4 ár sem héraðslæknir í V.-Skaftafellssýslu,
og er vel kunnugt um, að fólkið er yfirleitt nijög skylt innbyrðis.
Blindratalan úr þessum sýslum fer hjer á eftir, og jafnframt henni
tel eg sjúklinga þá með gl. simplex, er eg hefi rannsakað úr þeim :
Ibúar á
1 blindan Sjúkl.
Austur-Skaftafellssýsla ............. 96 4
Strandasýsla ....................... 118 4
Barðastrandarsýsla ................. 195 1
Vestur-Skaftafellssýsla ............ 364 6
ísafjarðarsýsla (utan ísafjarðar) 372 10
Hér á landi koma aö meðaltali 245 íbúar á 1 blindan, í kauiistöðum
510, í sveitum 199. Eftir því er blindratalan í 3 fyrsttöldum sýslum nokk-
uð há. Þó fer fjarri því, að eg álíti það stafa af því, að meira sé þar
af glaucoma, en í ýmsum sveitum landsins, heldur af hinu, að e i n m i 11
! j) e s s u m 3 s ý s 1 u m e r u m e s t i r qrðugleikar á þ v í f y r-
ir fólkið að leita sér lækíninga, Kvío'út heldur er til
R e y k j a v í k u r e ð a f a r a n d a u g n 1 æ k n a n n a, o g þ a ð e r
öðrum f r e m u r k o mið u p p í v a n a m e ð a ð vanrækja
sjúkdóminn. — Þar að auki þykir mér ekki ólíklegt, að fólkið í
jiessum sveitum sje að meðaltali harðgerðara og verði langlífara, en
viðast hvar annarstaðar á landinu, og gæti j)að átt nokkurn j)átt í j)ví,
að blindratalan yrði hærri.
Samkv. minni reynslu er það Noröur- og Austurland, þar sem mest er
um gl. simplex og útlireiðslan virðist nokkuð lík í sýslunum. Sama er að
segja um blindu. Eftir landshlutum verður útkoman ])essi yfir alt landið:
Austurland: 1 blindur af 156 ib. Vestfirðir: 1 blindur af 241 íb.
Norðurland: 1 — - 170 — Suðvesturland: 1 — - 252 —
Suðurland: 1 — - 222 —
Stærri kauptún eru hvergi talin með.
Hvort fólkið á Norður- og Austurlandi er minna blandaö, en i sveit-
um þeim, er eg tilnefndi fyrst, geta sjálfsagt mér kunnugri menn dæmt
nákvæmar um. En eg býst fastlega við að svo sé ekki. —
S u m m a s u m m a r u m : Eg get ekki fallist á, að erfðir og skyld-
mennagiftingar séu aðalorsök til glaucoma simplex hér á landi, og
tæ])lega neinstaðar.