Læknablaðið - 01.01.1930, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ
23
hefir geysaÖ þar. Nú hefir hann, eins og kunnugt er, mikla kenslu á hendi
viÖ Háskólann, og kemur sér afarilla aÖ missa hann frá henni, því vart
geta aðrir gengið þar i hans stað. Kindurnar voru í ])etta sinn látnar ganga
fyrir mönnunum, en próf. Guðm. Thoroddsen heldur uppi kenslu Dungals
eftir föngutn. Sýnir þetta, auk margs annars, hve nauðsynlegt þaÖ er, að
fastur aðstoðarmaÖur sé viö Rannsóknarstofuna. — Annars hefir ]tað frétst
frá Dungal, að hann starfar aÖ rannsóknunutn á Kleppjárnsreykjum, og
rekur þær með atorku. Hefir hann þar 30 kindur til tilrauna, hefir fundiö
sýkilinn, sem veldur veikinni og vinnur nú að því að finna bóluefni gegn
henni. Hefir hann von um að sér takist það. Væri þá mikið happaverk
unnið, ])ví veikin hefir reynst hinn mesti vogestur. Til ]>ess að draga úr
kostnaÖi við rannsóknirnar, hélt hann fund með hreppstjórum í sýslunni
og féllust ]>eir á aö hver hreppur legði til nokkrar kindur, til nauðsynlegra
tilrauna.
Krabbameinsrannsókn. Læknar í Westmorland á Englandi hafa undir
forustu dr. L. Sambons, sem heimsótti oss fyrir nokkrum árum, rannsak-
aÖ krabbamein í héraðinu svo langt, sem skýrslur náðu, en það var hátt
upp í 100 ár. Sagt er, að það hafi komiÖ í ljós við rannsóknina, að mikið
væri um krabbamein i sumum sveitum eða sveitaþorpum, en litið eða ekkert
í öðrum. Þykir dr. Sambon þetta henda á að sýklar valdi veikinni, þó fæstir
trúi nú á þá kenningu. — Það væri ef til vill ástæða til að veita því eftir-
tekt, hvort þessu sé þannig háttað hér á landi, að krabbamein séu tíð í
sunmm sveitum, en engin í öðrum. Sérstaklega kynnu eldri læknar að vita
eitthvað um þetta meÖ vissu, og væri þá rétt að geta þess i Lbl. eða árs-
skýrslu.
F r é 11 i r.
Embætti. Flateyjarhérað hefir enn eigi verið auglýst laust til umsóknar.
Héraðshúar læknislausir síðan hr. Sigv. Kaldalóns var skipaður í Kefla-
vikurhérað.
Embættispróf. Þessir kandídatar luku embættisprófi við Háskólann í
febr. s.l.: Jón Karlsson Bjarnasonar prentara, eink. 122ýá stig. Jón Stcffcn-
sen, Vald. St. læknis, Akureyri, eink. 184^ st. Stcfán Guðnason Jónssonar,
kaupm. frá Vopnaf., eink. 1621/; st. — Vcrkcfni í skriflega prófinu: Lvf-
læknisfræði: Orsakir uppsölu og greining ])eirra. Handlæknisfræði: Chole-
lithiasis, einkenni, greining og meðferð. Réttarlæknisfræði: Lýsið druknun
og þeim einkennum, sem bent geta á, að um druknun sé að ræða.
Doktors-nafnbót. Háskóli Kaupmannahafnar hefir tekið gilt til doktors-
prófs rit eftir cand. med. Skúla V. Guðjónsson; titill ritsins er: „Experi-
ments on Vitamin A Deficiency in rats and the quantitative determination
of vitamin A“. Doktorsprófið fer fram þ. 10. apríl 11. k.
Heiðursmerki. Eyrv. héraðslæknir Þorgrímur Þórðarson í Keflavik, hefir
verið sæmdur riddarakrossi Fálkaorðunnar. VarS sjötugur 17. des. s.l.