Læknablaðið - 01.07.1930, Síða 13
LÆKN ABLAÐIÐ
99
P. Kolka. Bjóst vi'8 írá fyrstu, a8 einhverjir fengjust til þess að krækja
í stöður, ef stjórnin by'8i nógu hátt. Þetta hefir að litlu rætst, því að ná-
lega allir hafa haldið loforð sín. Var deigur i fyrstu, en ákveðinn nú að
halda hiklaust áfram.
Gunnl. Clacssen. Ekki verður þessi landsstjórn eilíf, og embættanefndin
þarf að búa svo undir, að gott samkomulag geti tekist við næstu stjórn.
Til þess nauðsynlegt, að embættanefnd sé ekki heimilt að velja úr aðeins
eina umsókn, en stinga hinum undir stól. Stjórnin ynni ekkert við þa'8 að
velja af lakari endanum, þó fleiri væru i boði. Lag'ði hann til, aö framvegis
skuli embættanefnd ætíð senda fleiri umsóknir en eina, ef fleiri sæktu
um embætti.
Dungal. Þetta er gamalt deilumál. Dr. Cl. vildi líka í fyrra láta nefnd-
ina aðeins raða umsækjendum. Nefndin er sía, sem velur aðeins vel hæfa
menn, og ekki „officiel".
G. H. mælti móti till. G. Cl. Kvað hana óþarfa, því framvegis myndi það
naumast koma fyrir, að ein umsókn væri send, ef fleiri sæktu. Reynslan
hefði sýnt það ópraktiskt, jafnvel þó réttur maður sé valinn.
Kolka kvað ekki vinsælla, að raða mönnum. Myndu margir móðgast
við það.
G. Cl. sagði, að sía embættanefndar hefði verið helsti fín. Óttaöist ekki
móögun, þótt læknum væri ra'ðað eítir verðleikum. Slikt gerðu t. d. dóm-
nefndir erlendis, við umsækjendur um háskólaembætti.
Ing. Gíslas. taldi nefndina verða að starfa líkt og verið hefir.
Breytingartill. frá P. Kollca, að fella burtu síðari málsgrein í i. gr. samþ.
Breyttill. G. CL: „Þó er embættanefnd ekki heimilt að senda aðeins eina
umsókn til veitingavaldsins, ef fleiri sækja um embættið". Feld. Tillögur
veitinganefndar annars samþ. óbreyttar.
3. Landlœknir flutti alllangt erindi um spítala og spítalalœkna á Norður-
lönduin. Sagði frá skipulagi, daggjöklum, kjörum lækna o. fl., á sjúkrah.
erlendis, skv. því sem Landlæknir kynti sér á ferö um Norðurlönd á s.l.
ári. Lagði til að 3 manna nefnd yrði kosin til þess að athuga spítalamál
landsins og kjör spítalalækna.
4. Próf. Sig. Magnússon flutti erindi um Calmettc’s bólusetn.
Kveðjuskeyti lcsið upp frá dr. Hclga Tóm. og Valtý Albertssyni.
Fundarhlé.
5. Reikningar lagðir fram. Samþ. í einu hljóði.
Reikningur Lœknafclags Islands niilli aðalfunda 1929 og 1930* *
T e k j u r:
I sparisjóði um aðalfund 1929............. kr. 2096.42
Árstillög meðlima ........................ — 3335.00
Vextir af sparisjóðsfé 1929............... — 86.72
___________ kr. 5518.14
* Það er athugavert við reikninginn, að mikið er eftir af ógreiddum árgjöldum,
en aftur hefir gjaldkeri ekki greitt Ekknasjóði og Læknablaði sinn hluta. Stafa
þessar misfellur af fjarveru gjaldkera. Verður síðar gefið nánara yfirlit yfir hag
félagsins. — Þeir, sem ekki hafa greitt árgjöld scndi þau t snatri til gjaldkera
(M. Júl. Magnús). G. H.