Læknablaðið - 01.07.1930, Síða 21
LÆKNABLAÐIÐ
107
49% hjá óbólusetta flokknum. Einnig kemur þa8 til greina, að hlutar
hinna bólusettu liarna var einangraður, venjulega 1 mánuð eða lengur.
Þeir segjast munu halda áfram bólusetningartilraununum, en subcutant
eða intracutant, enda virðast þá meiri líkindi til immunitets, eins og tuber-
kulinreakt. bendir á.
A Norðurlöndum hefir bólusetningin langmest verið reynd í Noregi, sér-
staklega á fullorðnu fólki, og þá vitanlega subcutant eða intracutant, ])ví
öllum kemur saman um, að tilgangslaust sé að liólusetja fullorðna menn
peroralt.
Heimbeck hefir bólusett hjúkrunarkonur á Ullevál spítala i Osló og
fleira fólk. Hann hefir undanfarin ár gert Pirquet-prófun á hjúkrunar-
nemum, sem komu til spítalans og hefir komist að þeirri niðurstöðu, að þær
sem voru Pirquet, sýktust af berklaveiki miklu íremur en þær, sem voru
-f- Pirquet. Nú hefir hann bólusett þær hjúkrunarkonur sem sýndu -t- Pir-
quet, og finnur að þær smitast miklu sjaldnar en áður. Haralci Wcstcrgaard
hefir ritað smágrein utn reynslu Heimbeck’s og bendir á, hvernig auðveld-
ast sé að setja tölurnar upp hagfræðilega og heldur því fram, að það sé
„overvældende Sandsynlighed for at Vaccinationen virker beskyttende“, sam-
kvæmt þessum tölum.
Schecl, Schults og Skaar hafa i Trysil í Noregi, 1927—1929 bólusett
1079 börn og fullorðna með -f- Pirquet, og til samanburðar athugað 171
óbólusetta með h- Pirquet. Af hinum bólusettu telja þeir að aðeins 3, þ.
e. 2,8%c hafi sýkst eftir bólusetninguna: 2 fengu erythema nodosutn og
1 brjósthimnubólgu). Til samanburðar má geta ]iess, að einnig sýktust 3,
þ. e. i7,S%o af hinum óbólusettu með -i- Pirquet (1 eryth. nod., 1 pleuritis
og 1 meningitis). Það hefir þvi komið eitt alvarlegt tilfelli hjá hinum óbólu-
settu, en ekkert hjá hinuni, sem að vísu voru miklu fleiri. Af hinum 923
óbólusettu með -j- Pirquet kom berklaveiki fram hjá 10, þ. e. io8%0. Þessir
sjúklingar voru því smitaðir, og hér hefði bólusetning varla komið að gagni.
Eg get ekki séð, að þessar tölur séu sannfærandi, en höfundarnir halda því
fram, að bólusetningin hafi sýnt „sikker immuniserende Virkning".
I Danmörku hefir bólusetningin saina sem ekkert verið reynd, nema lítil-
lega á fæðingardeild Rikisspítalans, eins og áður er um getið.
Tiltölulega litið mun hún einnig hafa verið notuð í Svíþjóð, þó hefir
Wallgrccn í Gautaborg, nafnkendur barnalæknir, reynt hana, en mun vera
fremur efandi um árangurinn hingað til.
Að síðustu skal eg minnast á hin hræðilegu liólusetningaslys í Lúbeck
í 'vor og sumar, og er enn ekki séð fyrir endann á þeim. Bólusetning með
B. C. G. hefir lítið verið revnd fyr á Þýskalandi, enda hafði heil-
brigðisstjórnin varað við henni; þó hafa nokkur börn veriö bólusett í Bres-
lau, og bóluefnið ekki reynst þar skaðlegt. í fyrrasumar fékk prófessor
Dcyckc, yfirlæknir á Allgemeines Krankenhaus i Lúbeck, bóluefnið frá
Calmette. Það var svo ræktað þar áfram, eftir ])ví sem læknarnir segja,
gerðar tilraunir á dýrum, og virtist ])aö vera skaðlaust. 28. febrúar var
svo byrjað að bólusetja ungbörn, og í mars og apríl voru 243 börn bólu-
sett; en þá byrjuðu börnin að hrynja niður, og þegar seinast fréttist, 17.
]). m. (sbr. „Politiken") voru 40 börn dáin og 86 sjúk, og enginn efi er
á því, að hér er um illkvnjaða berklaveiki að ræða. Annars skal eg ekki
fjölyrða um þetta mál, enda hefir verið gerð grein fyrir því í síðasta Lækna-