Læknablaðið - 01.07.1930, Qupperneq 42
128
LÆKNABLAÐIÐ
Kominn heim. Kristinn Bjarnarson, sem fyrirfarandi ár hefir lagt stund
á skurölækningar í Paris, er kominn heim, og sest að sem skurðlækn-
ir í Reykjavík.
Aðkomulæknar. Auk þeirra sem sóttu Læknaþingið, og getiö er í fund-
argerðinni, hafa þessir læknar veriÖ á ferÖ i bænum: Georg Gcorgsson,
Þorbj. Þóröarson, Sigurmnndur SigurÖsson, Sig. Magnússon, Ólafsf., og
Torfi Bjarnason.
Ljósmæðraþing. Arsfundur Ljósmæörafélags íslands fór fram 24.—25.
júlí og var fjölsóttur. A fundinn kom fulltrúi frá „Svenska Barnmorske-
förbundet“ — frk. Hansson —, enda hefir Ljósmæörafél. Isl. á síðari ár-
um komist í samband við norræn félög stéttarsystra sinna. — Ljósmæð-
urnar hafa, sem von er til, mikinn hug á að fá bætt kjör stéttarinnar, og
nrættu ísl. læknar gjarna styðja þær eftir mætti i öllum sanngjörnum launa-
kröfum.
Á Ljósmæðraþinginu fluttu erindi fyrv. héraðsl. Davíð Sch. Thorsteins-
son og dr. med. G. Clacsscn.
Tannlækningar lækna. Héraðslæknir B j a r n i Guðmundsson,
Brekku, dvaldi um tíma í Rvík í vor, til þess að læra að fylla tennur.
Þetta er mjög lofsverð framtakssemi, og skyldu fleiri héraðslæknar taka
upp þetta starf, þar sem aðrar annir leyfa. Er mesta furða að Háskólinn
skuli ekki gera tannfyllingu að skyldunámsgrein í læknadeildinni.
Svolátandi boð hefir borist til lláskólans, um þátttöku ísl. lækna í fundi
norræna taugalækna i Stokkhólmi:
Till Dekanus i Medicinska fakulteten vid Reykjavíks Universitet.
Herr Professor Gudmundur Thoroddsen.
Nordisk Neurologisk förening anordnar den 5—6 september 1930 sin
V. Nordiska neurologkongress i Stockholm. Tema för huvuddiskussionen
blir: Epilepsien, varjámte föredrag över andra neurologiska ámnen komma
att hállas.
Dá det skulle gládja oss att pá detta möte áven fá se representanter
för Islands lákarkár — neurologer eller andra för epilepsiens studium
intresserade lákare — sá beder jag hármed att Ni ville till Edra kolleger
'Cramföra kongresskommitténs hjártliga válkomsthálsning.
Med största jhögaktning
N. Wohlfahrt
Generalsekreterare
Adr.: Serafimerlasarettet — Stockholm.
Innheimtu- og afgreiðslumaður Lbl. er hr. Þorvaldur Jónsson,
Grettisgötu 37, Rvík.
FélagsprentsmiCjaa