Læknablaðið - 01.11.1932, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ
171
fslandi (1916—25} var 68% af öllum berkladauða, á árunum o—4, hhb.,
í Noregi (1930) 75% og í Danmörku sama ár 58%. Það er því augljóst,
að örðugt er að benda á sérstaka ættgenga viðkvæmni á þessum árum,
en hins vegar gæti það bent á ættgengi, ef fleira en eitt hhb.-tilfellj hjá
sömu fjölskyldu kæmi fyrir á þeim aldri er hhb. ekki eru tíðir. Væri æski-
legt að safnað væri skvrslum um slíkt. Ef þesskonar tilfelli kæmi oft fyrir
hér á landi (en annarsstaðar er það sögð alger undantekning), gæti það
skýrt, hve hhb.-tölur eru hér afarháar. Eins og kunnugt er, halda margir
því fram, að miklu ráði um minkun berklaveikinnar, að viðkvæmustu ætt-
irnar deyi út.
í sambandi við viðkvæmni vissra fjölskyldna, má geta þess, að sumir
hafa lialdið því fram, að nokkur munur sé á hhb.-viðkvæmni hjá hinum
ýmsu þjóðum. T. d. hafa Hcrben og Asscrson haldið því fram, að í Ame-
ríku sé Italir, frar, Gyðingar og Svertingjar viðkvæmari fyrir hhb., held-
ur en aðrar þjóðir. En til þess að sanna Jætta, j)arf fyllri gögn, en komið
hafa fram. Vera kann, að hér ráði aðrar ástæður meiru en þjóðernis- eða
ætternis-viðkvæmni, svo sem J)röngbýli og illur aðbúnaður. Má í J)ví sam-
l)andi nefna nákvæmar og ágætar athuganir, sem gerðar hafa verið í Gel-
senkirchen (Wcndenburg og Gcrkcn) .*. Segir frá hjálparstöðvarstarfsemi
í nokkrum hluta borgarinnar, er var undir stöðugu eftirliti í 10 ár, frá
1920 til ársloka 1930. Þessar athuganir og eftirlit náði ekki aðeins til berkla-
veikra sjúklinga, heldur til allra heimilismanna J)eirra og félaga. Hið athug-
aða svæði hafði 73 J)ús. íbúa. Er skýrslan öll hin fróðlegasta, en eg skal
aðeins nefna í þessu sambandi, að hhb. virtist aðallega koma. fyrir í sér-
staklega þröngum híbýlum smitandi sjúklinga.
III.
Meningitis getur komið fyrir á öllum stigum berklaveikinnar, frumstigi,
miðstigi og 3. stigi (primer-, sekunder- og tertierstigi), en langalgengust
virðist hún vera nálægt takmörkum frumstigs og miðstigs (postprimár eða
frúhsekundár), en miklu sjaldnar seint á miðstigi (spátsekundár), og að-
eins örsjaldan á 3. stigi (organ-ftisis), og skal með nokkram orðum skýrt
frá ])essum tveim flokkum.
,.Postprimar“ eða ,,frúhsckundar“ meningitis (Upphafs-meningítis). Til-
tölulega flest hhb.-tilfelli koma skömmu eftir frumsmitun, en vitanlega er
oft örðugt að ákveða nákvæmlega frumsmitunar-timann, en helst er þó þéss
að vænta, að slíkt megi takast, er um ungbörn er að ræða, ])ví þá eru það
venjulega ekki nema fáar persónur, sem komið geta til greina.
Til eru nokkrar athuganir, sem virðast mega byggja á (Rcich, Hamburger,
Pollak, Dictl, Orosc o. fl.). Nefni eg fyrst athuganir Rcich, enda eru þær
einhverjar hinar fyrstu og merkustu, og það er eftirtektarvert, að þær komu
fram 1878, ]). e. áður en berklasýkillinn fanst. Tæringarveik ljósmóðir
smitar 10 nýfædd börn með innblæstri í lungu. Börnin eru öll á heimilum,
er enginn fanst berklaveikur. Börnin dóu öll úr meningitis. r eftir 2(4 mán-
uð; 1 eftir 3 mán.; 3 eftir 3^2 mánuð; 2 eftir 4 mán.; 1 eftir 6 mán.; 1
eftir Sy2 mán. og hið síðasta eftir 15)4 mánuð. Pollak segir frá 11 mán-
aða gömlu barni, er smitaðist af tæringarveikum sjúklingi, sem dvaldi hjá
* Beitr. z. kl. d. Tub. B. 81.