Læknablaðið - 01.11.1935, Page 3
KNABLAÐIÐ
GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
JRITSTJÓRN: HELGI TÓMASSON, HALLDÓR HANSEN, SIG. SIGURÐSSON
21. árg. Reykjavík 1935. s th1 .......
Evipan -svæfing.
Eftir E. Guttormsson,
Vestmannaeyjum.
í nóvemberblaöi Lbl. 1933 drap
ég í grein minni um mænudeyf-
ingu á Evipan-natrium, sem ég sá
notaö á nokkrum stö'öum á Norö-
urlöndum meö mjög skemtilegum
árangri.
Þaö er notaö í tvennskonar til-
gangi:
1. Til svæfinga við stuttar að-
gerðir (chirurgia minor).
2. Til að innleiöa svæfingu
(basal Narcosis) við stærri aö-
geröir. Meö þessum forsendum
byrjaði H. Weese aö reyna meða!-
iö í praxis, og fékk það brátt
mikla útbreiðslu. Þaö er natrium
saltið af N-methylcyclo-hexenyl-
methyl-barbitursýru og því af bar •
bitur-flokknum eins og Pernokton,
en það er miklu hættuminna og
þægilegra fyrir sjúklinga, lækna
og hjúkrunarfólk, því að óróaköst
og uppköst eru sjaldgæf. Ev.-Na.
er þrautprófað, sent svæfingarlyf
til inndælinga í æöar, þaö hefir
náð geysimikilli útbreiðslu, eg sá
t. d. nýlega í Monde Medicale aö
Frakkar hældu því sem basal-nar-
coticum og er þá mikiö sagt um
þýskt patentlyf.
Þaö er ,,Bayer-Meister-Lucius'‘
præparat og flyst í öskjum meö 5
og 25 amp. á 1,0 gr. Ev.-Na í þur-
substans, og jafnmörgum gler-
hylkjum á 10,5 gr. aq. dest. ster.
Saltið er leyst upp nteð því, aö
dæla vatninu ofan í það rétt áöur
en á aö nota upplausnina. Menn
hafa reynt meðaliö á köttum og
fundið aö therapeutisk starfs-
breidd þess er ca. 4, en það þýðir,
aö dosis letalis er fjórfalt stærri
en svæfingarskamtur, talið er aö
þessu sé svipað háttað um mann-
inn.
Það, sem einkum rak mig til aö
biðja Lbl. fyrir grein um þetta
efni, voru kostir þeir, er eg hygg
aö Ev.-Na hafi að bjóða ísl. lækn-
um, sent ósjaldan þurfa aö inna
störf sín af höndum undir hinum
erfiöustu kringumstæðum, með lé-
lega eða enga aðstoð og í slæmum
húsakynnum. Þegar svona stæöi á
teldi eg Ev.-Na ómetanlega hjálp.
Læknirinn tekur þá sína 10 ccnt.
Record-dælu, opnar glerhylki,
leysir upp saltið í vatninu og dæl-
ir því inn i olnbogavenu með viö-
eigandi suggestion, sofnar sjúkl.
þá að kalla momentant, fær rétt
tíma til að geispa, algengt er að
sjúkl. sofni á meðan fyrstu 2—3
ccm er dælt inn, og má nokkuö