Læknablaðið - 01.11.1935, Side 16
82
LÆK NA BLAÐIÐ
son, um almenna þýöingu heilsu-
fræðinnar fyrir heilbrigöi manna,
ekki síður andlega en líkamlega.
Verkfræðingur Sig. Thoroddsen
yngri, um þýðingu húsakynnanna
fyrir heilsuna, hvers væri að gæta
og hvað væri að varast, læknir Jón
Jónsson: i. um vinnustellingar, 2.
um berklaveiki og berklavarnir, 3.
um meðferð ungbarna og þýöingu
hennar til varnar ungbarnadauð-
anum, 4. um kíghóstann og varnir
gegn honum.
Því miður gátu læknarnir á
staðnum ekki haídið þau erindi, er
þeir höfðu ætlað sér að flytja,
vegna forfalla .
Að sýningunni á ísafirði lokinni
var aíráðið að fara til Siglufjarðar.
Héraðslæknirinn Halldór Kristins-
son óskaði eftir að fá sýninguna
um söltunartímann og því var sýn-
ingin haldini þar frá 27. júlí til 18.
ágúst eða alls í 19 daga.
Bæjarfógetinn Guðm. Hannes-
son opnaöi sýninguna er komið
hafði verið fyrir i 4 herbergjum
barnaskólans. Skólanefndin haföi
góðfúslega lánað skólann endur-
gjaldslaust. Aðgangseyrir var hinn
sami og áður. Sýninguna skoðuðu
um hálft fjórða hundrað manns.
Félag kvenskáta liæjarins annaðist
dyravörslu og fékk fríau aðgang
fvrir, sömuleiðis fengu skólabörn-
in frian aögang undir umsjón
kennara.
Þessi erindi voru flutt á sýning-
unni: Héraöslæknir Halldór Krist-
insson: um meðferö ungbarna,
sjúkrahússlæknir Steingrimur Ein-
arsson : um berkla og berklavarnir,
Læknir H. Thorarensen: um gigt-
sjúkdóma og meðferð þeirra, lækn-
ir Jón Jónsson: um tannsjúkdóma
og meðferð jieirra og um farsóttir
og heilbrigðisástandið.
Allan þennan tíma, er sýningin
hafði verið opin á Siglufirði var
engin síldveiði er heitiö gæti: Fór
ég því inn til Akureyrar og átti tal
við héraöslæknir Stgr. Matthías-
son um hvenær og hvernig hentast
væri að halda sýninguna þar. Þar
á Akureyri hafði verið haldin iðn-
sýning og var hún haldin í hinu
nýja barnaskólahúsi bæjarins.Áleit
læknirinn heppilegast að þessi sýn-
ing yrði haldin á sama stað og
helst um mánaðamótin sept—okt.,
vegna skólafólks, sem þá væri
væntanlegt til bæjarins. Barnaskóli
Akureyrar tekur ekki til starfa fyr
en 12. okt. og var því auðsótt mál
að fá skólastofur lánaðar endur-
gjaldslaust fyrir sýninguna og hún
því ákveðin í 15 dag-a frá 22. sept.
til 6. okt. að b. m. t. En til þess að
láta nú ekki heilan mánuð ónotað-
ann átti eg tal við héraðslæknirinn
á Húsavík og bauð hann hús og
hita ókeypis. Fór ég þá þangað og
opnaði sýslumaður Júl. Havsteen
sýninguna þar í viöurvist margra
bæjarbúa er jiangað var boðið 8.
sept. Sýningunni var haldið þar
opinni til 15. sept. eða í 8 daga.
Aögangseyrir var hinn sami og
áður og börn fengu frían aðgang
undir umsjón kennara, því sýning-
in var haldin í barnaskólanum. Á
Húsavík reyndi eg að selja nokkra
aðgöngumiða á 5 kr. er giltu' fyrir
allan sýningartímann og voru ætl-
aðir fjölskyldum. Nokkrar fjöl-
skyldur notfærðu sér þetta.
Þessi erindi voru flutt á sýning-
unni: Héraðslæknir Björn Jósefs-
son : 1. um berkla og berklavarnir,
2. um liyggingu heilbrigðs líkama.
Héraðslæknir Kristján Þorvarðs-
son á iBreiðumýri: 1. um kynsjúk-
dóma. 2. um meðferö ungbarna,
læknir Jón Jónsson: 1. um tann-
skemdir og meðferð þeirra, 2. um
farsóttir og heilbrigðisástandið í
landinu.