Læknablaðið - 01.11.1935, Qupperneq 17
LÆKNABLAÐIÐ
83
Sýninguna skoöuöu á þriðja
hundrað manns.
A Akureyri var sýningin opnuð
at’ bæjarstjóra St. Steinsen i nýja
Barnaskólahúsinu að viðstöddum
mörgum bæjarbúum er þangað
hafði verið boöið, og var sýningin
þar höfð opin eins og áður greinir
í 15 daga (frá 22. sept. — 6. okt.).
Kl. 4—7 og 8—10 síðd. dag hvern.
— Aðgangseyrir kr. 1 fyrir full-
orðna, kr. 0.25 fyrir börn, en auk
þess voru seldir aðgöngumiðar á
2 kr. er giltu fyrir allan sýningar-
timann. Var þetta gjört með sér-
stöku tilliti til skólafólks sem vildi
notfæra sér sýninguna sem best,
gætu notað hverja stund eftir á-
stæðum til að vera á sýningunni.
Skólabörn fengu frían aðgangund-
ir umsjón kennara, sem og skátar,
sem önnuðust dyravöröslu og sáu
um útdreifing auglýsinga um bæ-
inn.
Þessi erindi voru flutt: Héraðs-
læknir Steingrimur Matthíasson:
1. um lækningar fornmanna, 2. um
berklarannsóknir og berklavarnir
hér og í öðrum löndum, 3. um heil-
lirigðisástand fyrrum og heilbrigð-
ishorfur nú. læknir Arni Guð-
inundsson: urn meðferð ungbarna,
tannlæknir Engilbert Guðmunds-
son: um tannbyggingu, tann-
skemdir og aðgerð, auglæknir
Helgi Skúlason: um áverka á aug-
un, læknir Jón Geirsson: um kyn-
sjúkdóma. aöallega lekanda, lækn-
ir Pétur Jónsson: um krabbamein,
læknir Valdemar Steffensen: um
sóttvarnir og framkvæmd þeirra í
nútimanum, læknir Jón Jónsson:
1. um æfisögu tannarinnar — vöxt
— skentdir — eyðileggingu og að-
gerð, 2. um ófriðinn i líkamanum
(baráttan við sýklana), 3. um far-
sóttir í landinu fyrrum og nú.
Þau kvöld er ekki voru flutt
íræðsluerindi voru ein eða fleiri
deildir sj’ningarinnar útskýröar.
Sýninguna skoðuðu á 5. hundrað
manns. Þó sýningunni væri komið
fyrir i 4 stofum var hún í 7 deild-
um.
1. deild: Bygging líkamans og
heilbrigði: Líkön, myndir og skýr-
ingagreinar.
2. deild: Meðferð ungliarna:
Myndir, skýringargreinar og línu-
rit.
3. deild : Berklaveikin : Myndir
og línurit.
4. deild: Vöxtur tanna, skemdir
og meðferð: Myndir.
5. deild : Vinnustellingar: Mynd-
ir.
6. deild : Kynsjúkdómar: Drátt-
myndir og ljósmyndir, línurit og
skýringar.
7. deild: Farsóttirnar í landinu:
Línurit yfir útbreiðslu farsótta um
10 ára bil eftir heilbrigðisskýrsl-
unum. —
Þrátt fyrir óhagstæða sumartíð
norðanlands og ýmsar örðugar að-
stæður var mér mikil ánægja að
ferðast um með sýningarmunina
og fékk hvarvetna hinar ákjósan-
legustu viðtökur hjá læknunum og
forráðamönnum bæjanna og skól-
anna, sem allir vildu fúslega i ein-
um hug aðstoða mig og styðja að
því, að sem flestir gætu og vildu
færa sér i nyt þá fræðslu, sem sýn-
ingin gat veitt. Vil ég flvtja ]>eim
aiúðarfylstu þakkir, liæði fyrir
hönd félagsins og mína, en alveg
sérstaklega vil ég flytja þakklæti
til skátafélaganna og allra þeirra
ungra stúlkna og pilta, sem með
lofsverðum áhuga, alúð og ósér-
plægni voru boðin og búin til að
veita sina hjálp.
Þó að sýningargestir yrðu von-
um færri, sem að sumu leyti hafði
sínar eðlilegu orsakir — síldarleys-