Læknablaðið - 01.12.1935, Page 10
92
LÆIC NA B LAÐIÐ
Áhrif Ijóssins á innvortis
líffæri og líkamsathafnir.
Erindi flutt á læknakveldi Landspítalans 24. okt. 1935.
Eftir dr. G. Claessen.
Þvi er ekki a‘ð leyna, að ljós-
böö og sólskinsböð hafa tíðast
verið um hönd höfð af mörgum
læknum, með fremur óvísindaleg-
um aðferðum og indicatio. Er það
reyndar nokkurt vorkunnarmál,
því biologisk áhrif ljóssins hafa
einkum verið tekin til rækilegrar
athugunar vísindamanna á síðari
árum. Eg vildi í þessu stutta yfir-
litserindi drepa á helstu niðurstöð-
ur, sem fengist hafa í þessari vís-
indagrein. Þess má geta, að áhrifa-
mestu geislarnir, sem efnabreyt-
ingum valda, eru taldir útfjólubláu
geislarnir í ljósinu.
Efnaskifti líkamans. — Ljósið
veldur meiri bruna á eggjahvítu,
og þar af leiðandi gefur líkaminn
frá sér meira köfnunarefni. Lítilla
áhrifa gætir á fituefna-byltinguna.
Öðru máli gegnir um kolvetnin.
Ljósböð breyta reyndar ekki blóð-
sykri heilbrigðra, en draga úr
blóðsykri sjúklinga með sykur-
sýki. Þetta kemur til af því, að-
ljósið örfar insulin-framleiðsluna í
þvottabrisinu, og er ástæðan til
þess, að sumstaðar erlendis em
ljósböð notu'ð við diabetes.
Merkilegt er sambandið milli
steinefna og ljóss, einkum að því
er snertir kalkskiftin. Kalkvinslan
verður meiri, og kalkið frekar
bundið, en áður. Beinin styrkjast
því, og má hafa gagn af ljósum
eftir beinbrot. Eins koma ljósböö-
in líka að liði konum, um með-
göngutímann, vegna þess kalk-
missis, sem þá á sér jafnaðarlega
stað.
Ljóslækningin, sem eins og all-
ir vita, er mikilsverð við rachitis,
fer þar urn krókaleiðir. Ljósið
framleiðir D-fjörvi úr ergosterin
hörundsins, en fjörvið hindrar Ca-
og Fosfat-missi út í þarmana. Af
þessu leiðir svo aukin kyrsetning
á kalki, og bati á beinkröm.
Vinnuþolið. — Ljósið eykur út-
hald vöðvanna, og getur það orð-
ið alt að 60%. Þetta hefir verið
margprófað með erfiðismæli (er-
gometer). Ljósböð geta því — um
stund —■ jafnast á við þjálfun í-
þrótta- og fjallgöngumanna. Hef-
ir það valdið meiningarmun meðal
íþróttalækna, hvort það geti talist
„unfair“ af íþróttamanni, að taka
ljóskúr á undan íþróttakepni. Sum-
ir hafa haldið því fram, að hér
væri líkt á komið eins og við ó-
leyfilega notkun lvfja, sem geta
aukið fjör og þrótt í svip.
Blóðþrýstingur lækkar eftir
ljósbað um 10—12 mm. Hg, og
helst það nokkra daga. Þetta mun
standa í sambandi vi'Ö, að histamín
myndast vegna ljóssins. (Ein af 4
ómissandi amínósýrum líkamans
er histídín í hörundinu, en af því
myndast histamin). Slíkar efna-
breytingar réttlæta það, að kalla
útfjólubláa ljósið kemiska geisla.
Blóðþrýstingslækkunin kann a'ð
þykja lítil, en þó telja sumir ljós-
læknar góðan palliatív árangur við
hypertoni, einkum gagnvart höf-
uðverk og svima.